Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Side 43
STJÓRNSÝSLA
er í höndum sýslumanna. Fram til
þessa hafa í reynd verið jafn mörg
stjórnsýsluumdæmi. Þar hafa setið
sýslumenn, sem eru kenndir við
þær landfræðilegu sýslur, sem þeir
sitja í, og bæjarfógetar í bæjum
með kaupstaðarréttindi.
Enginn greinarmunur er lengur
gerður á embættisheitum eftir um-
dæmum, sem sýslumenn sitja í.
Þar með falla niður embættisheitin
bæjarfógeti, borgarfógeti og lög-
reglustjórinn á Keflavíkurflug-
velli. Sýslumaður er því kenndur
við þann stað, þar sem aðsetur
hans er, t.d. sýslumaðurinn í
Reykjavík, sýslumaðurinn á Akra-
nesi, sýslumaðurinn í Borgarnesi
o.s.frv. Skrifstofur sýslumanna eru
þær sömu og sýslumanna, bæjar-
fógeta og borgarfógeta fyrir 1.
júlí.
Sýslumannsembættið í Reykja-
vík nýtur nokkurrar sérstöðu, þar
sem starfsemi, sem sýslumenn
utan Reykjavíkur annast að öllu
leyti, skiptist niður á sýslumann,
tollstjóra og lögreglustjóra í
Reykjavík og Tryggingastofnun
ríkisins. Þessi verkaskipting kem-
ur til af því, að Reykjavík er lang-
stærsta stjórnsýsluumdæmi lands-
ins.
Breytt umdœmamörk á landinu
L Mörk dómumdœma
Áður kom fram, að mörk dóm-
umdæma fylgja kjördæmamörkum
með undantekningu þó hvað varð-
ar umdæmamörk héraðsdómstól-
anna í Reykjavík og á Reykjanesi.
Nokkur sveitarfélög eru því í um-
dæmi héraðsdóms Reykjavíkur í
stað þess að vera í umdæmi
Reykjanesdómstólsins, ef miðað
væri við kjördæmamörk. Þessi
sveitarfélög eru:
- Seltjarnarnesbær
- Mosfellsbær
- Kjalarneshreppur
- Kjósarhreppur
Sú augljósa skýring er að baki
breytingunni, að íbúar í þessum
sveitarfélögum þurfa að fara mun
skemmri veg til héraðsdóms
Reykjavíkur heldur en til héraðs-
dóms Reykjaness í Hafnarfirði.
2. Mörk stjórnsýsluumdœma
A. Breytingar á mörkum stjórn-
sýsluumdœma Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar
Sú breyting er gerð með að-
skilnaðarlögunum, að sömu sveit-
arfélög og færast á milli dómum-
dæma Reykjavíkur og Reykjaness,
þ.e. Seltjarnarnesbær, Mosfells-
bær, Kjalarnes- og Kjósarhreppur,
færast á milli stjórnsýsluumdæma.
í stað þess að tilheyra umdæmi
sýslumannsins í Hafnarfirði, til-
heyra þau nú umdæmi sýslu-
mannsins í Reykjavík.
íbúar í þessum sveitarfélögum
sækja því þjónustu til sýslu-
mannsins í Reykjavík og áður-
greindra þriggja embætta, toll-
stjórans og lögreglustjórans í
Reykjavík og Tryggingastofnunar
ríkisins.
B. Reglugerð um skiptingu
landsins í stjórnsýsluumdœmi og
breytingar á umdœmamörkum
samkvœmt henni
Aðskilnaðarlögin kveða á um,
169