Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Síða 44
STJÓRNSÝSLA
að sett skuli reglugerð um stjórn-
sýsluumdæmi að fenginni umsögn
viðkomandi sýslumanna og sveit-
arstjórna. Eftir að hafa leitað til-
lagna frá þessum aðilum, setti
dómsmálaráðherra reglugerð um
stjórnsýsluumdæmi nr. 57/1992,
sem var birt þann 20. febrúar síð-
astliðinn, en hún öðlaðist gildi 1.
júlí. Með henni voru gerðar ýmsar
breytingar á mörkum stjórnsýslu-
umdæma.
1) Mörk stjórnsýsluumdœma í
Eyjafirði
Fyrir 1. júlí þurftu íbúar sveit-
arfélaga við austanverðan Eyja-
fjörð að sækja þjónustu til sýslu-
manns Þingeyjarsýslu á Húsavík,
þótt mun skemmri vegur og greið-
ari samgöngur væru til Akureyrar.
Þessu var breytt með reglugerð-
inni um stjórnsýsluumdæmi. Tvö
sveitarfélög í austanverðum Eyja-
firði, Svalbarðsstrandarhreppur og
Grýtubakkahreppur, færðust því í
umdæmi sýslumannsins á Akur-
eyri 1. júlí, í stað þess að tilheyra
umdæmi sýslumannsins á Húsavík
við óbreytt umdæmamörk.
2) Mörk stjórnsýsluumdœma á
Austurlandi
Með gildistöku reglugerðarinn-
ar urðu ýmsar breytingar á um-
dæmamörkum sýslumannanna á
Seyðisfirði, Neskaupstað og Eski-
firði. Eftirtalin sveitarfélög flutt-
ust milli stjórnsýsluumdæma á
Austurlandi:
- Skriðdalshreppur, Valla-
hreppur, Eiðahreppur og Egils-
staðir fluttust úr umdæmi sýslu-
mannsins á Eskifirði í umdæmi
sýslumannsins á Seyðisfirði.
- Norðfjarðarhreppur fluttist úr
umdæmi sýslumannsins á Eski-
firði í umdæmi sýslumannsins í
Neskaupstað.
Af þessu má sjá, að stjórnsýslu-
umdæmi sýslumannsins á Eski-
firði er nokkuð minna en umdæmi
sýslumannsins í Suður- Múlasýslu
og bæjarfógetans á Eskifirði var
fyrir 1. júlí, því samanlagt fimm
sveitarfélög fluttust þaðan í hin
stjórnsýsluumdæmin tvö á Aust-
urlandi.
3) Mörk stjómsýsluumdœma
Keflavíkur og Keflavíkurflugvallar
Umdæmi sýslumannsins á
Keflavíkurflugvelli minnkaði
nokkuð þann 1. júlí miðað við
umdæmi lögreglustjórans á Kefla-
víkurflugvelli áður. Samkvæmt
reglugerðinni um stjórnsýsluum-
dæmi breyttust umdæmamörk með
þeim hætti, að íbúabyggð utan af-
girtra svæða varnarliðsins fluttist
úr umdæmi sýslumannsins á
Keflavíkurflugvelli í umdæmi
sýslumannsins í Keflavík.
Samkvæmt samkomulagi á milli
dómsmálaráðuneytisins og utan-
ríkisráðuneytisins annast lögregl-
an í Keflavík nú löggæzlu á svæð-
um, sem teljast til varnarsvæða á
Suðurnesjum, en eru utan afgirtra
svæða varnarliðs Bandaríkjanna.
Helztu störf sýslumanna
Lögreglustjórn, tollstjórn og
innheimta opinberra gjalda
Sýslumenn eru lögreglustjórar
hver í sínu umdæmi eftir 1. júlí,
eins og þeir hafa verið áður. Emb-
170