Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Qupperneq 48
VERKASKIPTING RÍKIS OG SVEITARFÉLAGA
hefur beðið skipbrot. Óhögguð er
samt sú skoðun mín, að þróun
búsetu verði að beina af þeirri
óhagkvæmu braut, sem hún líður
eftir nú.
Ég tel, að það verði bezt gert
með eflingu þeirra þéttbýlisstaða
vítt um land, sem vegna stærðar
sinnar og landfræðilegrar legu
muni eiga möguleika á að geta
boöið íbúum byggöarlagsins fjöl-
breyttara atvinnulíf og umhverfi en
viðgengizt hefur. Það kallar á ný
viðhorf sveitarstjórnarmanna.
Hreppapólitík verður að leggja að
velli, og sveitarfélögin verða að
koma sér saman um ákveðna
verkaskiptingu sín á milli, þannig
aö afbrýðisemi og öfund út i ná-
grannann verði ekki til þess að
viðhalda óbreyttu ástandi, sem
bitnar á öllu þjóðfélaginu.
í þessu efni geri ég þá kröfu til
samtaka sveitarfélaga, að þau
móti stefnuna og hafi forystu um,
að til þessa verks verði gengið.
Það er ekkert lögmál, að við séum
sífellt í vörn og kennum alltaf vondu
ríkisvaldi um það, sem miður fer.
Við eigum að sækja - á okkar eigin
forsendum, sem við mótum sjálf.
Sveitarfélögin verða að hafa svör
við því, hvernig þau ætla að taka
við auknum verkefnum og geta
sýnt fram á, hvaða verkefni þau
vilja taka og þá um leið hvernig.
- Það er ekki sjálfgefið, að örfá
sveitarfélög á suðvesturhorni
landsins njóti allra ávaxtanna, sem
vaxa af frumvinnslugreinum at-
vinnuveganna.
- Það er ekki sjálfgefið, að til-
færsla starfsemi á vegum ríkis og
þjónustugreina þjóöfélagsins mið-
ist við fáeina útvalda staði.
- Það er ekki sjálfgefið í Ijósi
einhæfrar uppbyggingar margra
sveitarféiaga, að komiö verði í veg
fyrir tilfærslu byggöar og bú-
seturöskun.
- Það er ekki sjálfgefið að halda
því fram, að sjávarpláss vítt um
land eigi „siðferðilegan" rétt á því
að stunda sjávarútveg, en hafna
um leið kröfu þeirra til annarrar at-
vinnusamsetningar.
Með öðrum orðum þá kalla ég á,
að jafnhliða þeirri miklu vinnu, sem
framlögð tillaga að ályktun fulltrúa-
ráðsfundarins gerir ráð fyrir, verði
hafizt handa um mótun opinberrar
byggðastefnu, sem taki mið af
þeim atriðum, sem ég hef rakið
hér að framan.
Undanfarin ár hafa smá-
skammtagjafir í anda hómópatans
verið látnar duga, og t.d. var vin-
sælasti lífselexírinn í áraraðir
gengisfellingin, en löngu tímabært
er aö taka upp fagmannlegri
vinnubrögð í takt við veruleika nú-
tímans.
Hofurh avallt
-■ ■ ■ ,• ! ■■■■ ■
fvrirlinnianrii
fyrirliggjandi.
Gosbrunna, úti og inni,
yttur, dælur og Ijós,
irðöverga, fugla o.fl.
til garðskreytinga..
Vörufell hf.
Opið 14-18 eða eftir samkomulagi
Lokað þriðjudaga.
174