Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Síða 53
UMHVERFISMÁL
Garðyrkju- og umhverfisstjórar
sveitarfélaga stofna samtök
Garðyrkjustjórar á stohfundinum í skoðunarferð á Akureyri, staddir í Kjarnaskógi. Á myndinni
eru, talið frá vinstri, Kristján I. Gunnarsson, Hafnarfirði, Jóhann Pálsson, Reykjavik, Katrín
Ólafsdóttir, Akranesi, Oddgeir Þ. Árnason, Mosfellsbæ, Erla Bil Bjarnardóttir, Garöabæ, Ást-
hildur C. Þórðardóttir, ísafirði, Einar E. Sæmundsen, Kópavogi, Ágúst Þ. Bragason, Blönduósi,
Snorri Sigfinnsson, Selfossi (á bak við er Helga Guðlaugsdóttir, Sauöárkróki), Steinunn Árna-
dóttir, Seltjarnarnesi, og Árni S. Jóhannsson, Akureyri. A myndina vantar Héöin Helgason frá
Húsavík.
Hinn 30. janúar sl. voru á Akur-
eyri stofnuð Samtök garðyrkju- og
umhverfisstjóra sveitarfélaga.sem
skammstöfuð eru SAMGUS. Á
stofnfundinum voru fulltrúar frá 13
sveitarfélögum.
Þessi starfsgrein er ung hjá
flestum sveitarfélögum. Garðyrkju-
og umhverfisstjórar eiga það sam-
eiginlegt að hafa daglega umsjón
með umhverfismálum sveitaríé-
laga, og er viðfangsefni þeirra m.a.
skipulag, framkvæmdir og rekstur
á útivistarsvæðum og stofnanalóð-
um sveitarfélaga, rekstur vinnu-
skóla, skólagaröa og garðlanda
þeirra. Einnig almenn umhverfis-
vernd, s.s. náttúruvernd, ytri
mengun og umgengni, og þeir
eiga að stuðla að þróun ræktunar
og verktækni í störfum sínum.
Á fundinum kom í Ijós, að
menntun félagsmanna er svipuð,
tengd garðyrkju, þótt reynsla og
framhaldsmenntun sé af ýmsum
toga. Samtökin hyggjast starfa á
svipuðum grunni og önnur samtök
starfsmanna hjá sveitarfélögum.
Tilgangur samtakanna er:
a) að stuðla að þróun umhverf-
ismála f víöasta skilningi þess
hugtaks hjá sveitaríélögum.
b) að vinna að bættri menntun,
endurmenntun og aukinni fag-
þekkingu félagsmanna.
c) að stofna til umræðu og
fræðslu um umhveríismál sveitar-
félaga meðal félagsmanna, t.d.
með fundahöldum, námsstefnum
og umræöu í fjölmiölum.
d) að vinna að því að auka
skilning almennings á mikilvægi
umhveríismálefna sveitaríélaga.
e) aö vinna aö samstaríi við
Samband íslenzkra sveitaríélaga
og aðra þá, sem vinna að málefn-
um sveitarfélaga.
f) að hafa samvinnu við hliðstæð
samtök á Norðurlöndum og á al-
þjóðavettvangi.
Eins og upptalningin ber með
sér, er félagið stofnað til þess að
auka þekkingu og áhuga þeirra,
sem starfa að umhverfismálum
sveitarfélaga, og gera þá hæfari til
þess að sinna starfi sínu.
Láta mun nærri, að 80% þjóðar-
innar búi í 34 þéttbýliskjörnum,
sem hafa 1.000 íbúa eða fleiri. Ekki
er óraunhæft í Ijósi vaxandi áhuga
og áherzlu á umhverfismál að gera
ráð fyrir, aö á næstu árum muni
staría garðyrkjustjórar eöa um-
hverfisstjórar hjá flestum þessara
sveitaríélaga.
í fyrstu stjórn samtakanna voru
kjörin Einar E. Sæmundsen, garð-
yrkjustjóri Kópavogsbæjar, sem er
formaður, Árni Steinar Jóhanns-
son, umhverfisstjóri Akureyrarbæj-
ar, og Erla Bil Bjarnardóttir, garð-
yrkjustjóri Garðabæjar.
179