Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Blaðsíða 55
TÆKNIMÁL
Sjálfsagt er aö setja snjóbræöslulagnir, þar sem hreyfi-
hamlaöir feröast mikiö eða eru aö leik. Hér er verið aö
leggja snjóbræðslupípur á teiksvæöi deildar fyrir fötluö
börn i Múlaborg viö Háaleitisbraut í Reykjavík. Piltamir
á myndinni eru Stefán Baldur Árnason, til vinstri, og
Arnar Halldórsson, til hægri. Unnar Stefánsson tók
myndimar.
langsamlega mestu um rekstrar-
kostnað. Dæmi er um kostnað
upp á 80 þúsund krónur á ári fyrir
að bræða snjó af bílastæði fyrir
framan bílskúr, og mun mörgum
þykja þaö hátt gjald fyrir snjóleys-
ið.
Þegar hugað er að uppsetningu
stærri kerfa, er nauðsynlegt aö
hafa samband við viðkomandi
hitaveitu og athuga, hvort hægt sé
að fá nægilegt vatnsmagn fyrir
kerfiö. f mörgum eldri kerfum var
ekki gert ráð fyrir snjóbræðslum,
og götulagnir geta ekki lengur
annað þessu aukna álagi.
í nokkrum eldri bæjarhlutum í
Reykjavík er hitaveitukerfið
sprungið undan álagi. Sem dæmi
um álag má nefna, að við skoðun-
arstöð Bifreiðaskoðunar íslands í
Reykjavík er vatnsþörf vegna hit-
unar húss og loftræsingar 48
mínútulítrar, en 120 mínútulítrar
vegna snjóbræðslu á aðkeyrslu-
brautum að skoðunarstöðinni.
Samt er allt afrennslisvatn hússins
nýtt til hins ýtrasta í snjóbræðslu-
kerfinu. [ framtíðinni má búast við,
að f verzlunarhverfum fari meira
vatn til snjóbræðslu á bílastæöum
en til hitunar húsa.
Einnig þarf að kynna sér þær
reglur, sem viðkomandi hitaveita
hefur um snjóbræðslulagnir. Enn-
þá eru engar samræmdar reglur
til, en yfirleitt mun vera stuðzt við
þær venjur og reglur, sem gilda á
veitusvæði Hitaveitu Reykjavíkur.
Þannig munu t.d. mismunandi
reglur gilda um heimæðagjöld
vegna snjóbræðslu eftir hitaveit-
um.
Hönnun kerfa og útlagning
Þegar búið er að ákveða stærð
snjóbræðslukerfisins, er hægt að
snúa sér að hönnun kerfisins.
Samkvæmt byggingarreglugerð
skal það gert af þar til hæfum
manni, eins og önnur lagnakerfi í
húsinu, og snjóbræðslulagnir eru
úttektarskyldar af byggingarfull-
trúa eins og aðrar lagnir. Það hefur
verið allt of algengt, að þeir, sem
hafa tekið að sér að hanna snjó-
bræðslulagnir, hafi ekki kynnt sér
þær reglur, sem gilda um lagn-
ingu kerfanna, þannig að pípu-
lagningamenn hafa orðið að
breyta hönnuninni á staðnum og
lagt kerfin eftir sínu höfði.
Varðandi hönnun eru ýmsar
reglur, sem þarf aö fylgja. Má þar
nefna reglur um lengd hverrar
slaufu, bil á milli lagna, dýpt á
lagnir undir yfirborði, stýringu,
söndun, útloftun, hraöa á vatni í
lögnunum og fleira.
Algengast er aö nota afrennsl-
isvatn frá húsum í snjóbræðslu-
kerfin. Hitastig á því er á bilinu
30-40° C, sem er hæfilegt hitastig
fyrir snjóbræöslu. Ef affallsvatn frá
húsinu er ekki nægilegt til að gefa
næga orku fyrir snjóbræðslukerfið,
þarf að bæta inn á kerfið vatni frá
hitaveitunni. Það er yfirleitt gert
181