Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Page 59
FERÐAMÁL
Myndin er tekin af Vaiahnúk, þar sem fyrsti vitinn á islandi,
Reykjanesviti, var reistur áriö 1878. í jaröskjálftum, sem uröu á
árinu 1887, brást undirstaöa vitans, og er varöan viö vinstri brún
myndarinnar teifar hennar. Tveimur áratugum siöar var núverandi
Reykjanesviti reistur á Bæjarfeiti, á miörimynd. Hús vitavaröarins
erþarfyrirneðan. Bæjarfelliöstendur73m yfirsjávarmáli, enupp
á vitann eru 249 þrep aö ganga, 152 upp felliö og 97 tröppur inni
í vitanum. Úr vitanum þykir mikiö útsýni.
Suðurnesjum hefur alltaf verið fyrir
hendi, og á hverju ári fjölgar þeim
hópum, sem eru á ferð um Suðvest-
urland og heimsækja Suðurnes.
Naubsynlegt vegasamband
Þau eru fjölmörg málin, sem líta
þarf til, ef veruleg atvinnuuppbygg-
ing á að verða á Suðurnesjum í
ferðaþjónustu. Má þar nefna vega-
gerð sem eitt afgerandi dæmi. Þau
eru sannanlega fá landsvæðin, sem
búa jafn illa að vegamálum og
Reykjanesiö. Hér er um mjög fjöl-
sóttan feröamannastað að ræða,
sem væri aðgengilegur allt árið, ef
vegurinn frá Þorlákshöfn til Grinda-
víkur og áfram um Reykjanes til
Hafna og Sandgerðis væri til. Þetta
er einn aðalþröskuldurinn í þróun
ferðaþjónustu á Suðurnesjum. Ekki
einungis ferðaþjónustu, heldur líka
uppbyggingu sjávaratvinnugreina
frá Suðurnesjum til Árborgarsvæðis.
Með vegasambandi þessu væri að-
gengi ferðafólks ríkulega bætt til
Suðurnesja. Það háir skipulagi
ferðaþjónustunnar, að til og frá Suð-
urnesjum er ekki önnur leið fær en
um Reykjavík, sem leggur óþarfa
fram og til baka akstur á ferðalang-
inn.
Ferðamólasamtök SuÖurnesja
Ferðamálasamtök Suðurnesja
(FSS) hafa starfað frá árinu 1984. Á
síðastliðnu ári var fyrst ráðinn fastur
starfsmaður, ferðamálafulltrúi, til
samtakanna. Starfssvið ferðamála-
fulltrúans hefur fyrst og fremst verið
fólgið í því að efla ferðaþjónustu á
svæðinu, gera hana aðgengilegri og
aðstoða við verkefnaöflun. I sam-
vinnu við sveitarstjórnir er unnið að
kynningu á svæðinu og möguleikum
þess. Bæði er hér um að ræða ein-
stök átaksverkefni innan sveitarfé-
laga sem og fyrir heildina. Unnið er
að bættu aðgengi ferðamanna að
Suðurnesjum. Ferðamálasamtökin
efndu til almennra funda sl. vetur á
Suðurnesjum um ferðaþjónustumál.
Fundirnir voru fjölsóttir, og er greini-
legur áhugi fyrir þessum möguleika
til uppbyggingar nýrra atvinnutæki-
færa. Hver hefði t.d. trúað því fyrir 10,
jafnvel 5 árum, að haldin yröi ráð-
stefna sérstaklega um eflingu ferða-
þjónustu í Grindavík, einum öflug-
asta útgerðarbæ landsins?
Ný vakning á
ferðinni
Hér er ný vakn-
ing á ferðinni, sem
hefst með tilkomu
Bláa lónsins. Bláa
lónið á eftir að
færa bæjarfélag-
inu og ferðaþjón-
ustunni væna
umbun, er fram
líða stundir. Veita
þarf nýjum hug-
myndum brautar-
gengi, nýjum fyrir-
tækjum umburðar-
lyndi og eldri tæki-
færi til umsköpun-
ar. Það er einu
sinni svo, að tekjur
af ferðamönnum
dreifast meir og
örar um þjóðfélag-
ið en af nokkurri
annarri öflun. Þess
vegna er eðlilegt,
að ferðaþjónustan
fái til baka til upp-
byggingar og þró-
unar úr stóra
kassanum. í raun
var settur ákveð-
inn tekjustofn ætl-
aður ferðaþjónust-
unni til ákveðinna
verkefna og fjár-
magnið eingöngu
tekið af ferða-
mönnum. Þessar
tekjur eru enn til,
en skila sér ekki til
atvinnuvegarins, því miður. Á þessu
þarf að verða breyting hiö fyrsta.
Ferðamálaráð þarf að geta staðið
betur að kynningu á ferðaþjónustu á
landinu, erlendis sem innanlands.
Mikill hluti ferðaþjónustufyrirtækja
úti um land getur tekið á móti fleiri
ferðamönnum en nú. Varast verður,
að fjöldi ferðamanna og sókn á
markaði komi til með að takmarkast
af eða einskorðast við þjónustugetu
Reykjavíkur.
Virk atvinnugrein
Ferðamálasamtök íslands vinna
að framgangi ferðaþjónustu úti um
land og að sameiginlegri hags-
munagæzlu ferðamálasamtaka
landshlutanna. Landshlutasamtökin
þarf að styrkja og efla með ákveðnari
þátttöku ferðaþjónustuaðila og sveit-
arfélaga á viðkomandi svæðum.
Samtökin þarf að efla fjárhagslega til
virkrar sóknar. Þingmenn og sveitar-
stjórnarmenn ættu að gefa sér tíma til
að kynna sér starfsemi ferðamála-
samtakanna. Hér er ekki um tóm-
stundabúskap að ræða, heldur virka
atvinnugrein, sem er, ef rétt er að
staðið, góður „skaffari".
Með starfsemi Ferðamálasamtaka
Suöurnesja hefur tekizt virkt og öflugt
samstarf ferðaþjónustuaðila og
sveitarfélaga undir forystu Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum
til sóknar og kynningar á Suðurnesj-
um. Hér er ekki um að ræða bráða-
birgðalausnir né skammtímaúrræði,
heldur raunhæf og gjafmild mark-
mið.
185