Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Page 60
ERLEND SAMSKIPTI
R U N A V I K
Nýr vinabær Egilsstaða
Broddi Bjarni Bjarnason, bæjarfulltrúi á Egilsstöðum
Fulltrúar Egilsstaöa á heimleiö frá vinabæjamóti á Eidsvoll á Fornebuflugvelli viö Ósló í lok júní á sl. sumri. Á myndinni eru, taliö frá
vinstri, greinarhöfundur, Broddi Bjarni Bjarnason, bæjarfuiitrúi, Emil Björnsson, aöstoöarskóiameistari og formaöur deildar Nor-
ræna féiagsins á Egiisstööum, Sóley Guömundsdóttir, kona Brodda, Laufey Eiriksdóttir, eiginkona Emits, Þuríöur Backman, bæj-
arfuiitrúi, Þórhallur Eyjólfsson, bæjarfulltrúi, Björn Kristleifsson, arkitekt og eiginmaöur Þuríðar, Sigurbjörg Aifreösdóttir, kona Þór-
halls, Einar Haiidórsson, húsgagnasmiöur, og Geröur Aradóttir, eiginkona Einars. Myndina tók Unnar Stefánsson.
Á sl. sumri stofnuðu Egilsstaða-
búar og íbúar Runavíkur kommunu
í Færeyjum til vinabæjatengsla, og
er þetta fimmta erlenda bæjarfé-
lagið, sem Egilsstaðir tengjast á
þennan hátt. Reyndar er hér ekki
um hefðbundin vinabæjatengsl að
ræöa, heldur nokkurs konar vina-
samband, þar sem fyrirhuguð eru
t.d. samskipti á sviði menningar-
mála, gagnkvæmar heimsóknir
íþróttamanna og samskipti milli
skóla, og tekur deild Norræna fé-
lagsins á Egilsstöðum einnig þátt
í þessu samstarfi.
Til þess að festa þessi vina-
tengsl í sessi með formlegum hætti
kom bæjarstjóri Runavíkur, Hans
T. Olsen, í heimsókn til Egilsstaða
sl. sumar ásamt Vinnu Jensen,
bæjarritara, og Marin Olsen, bæj-
arfulltrúa. Þau Ásta Sigfúsdóttir,
form. bæjarráðs Egilsstaða, og
Einar Rafn Haraldsson, bæjarfull-
trúi, og makar þeirra sóttu svo
Runavíkurbúa heim skömmu síðar,
og var til þess tekið, hve móttökur
Færeyinga voru höfðinglegar.
íbúar Runavíkur kommunu eru
2.400, og er bærinn þriðja stærsta
sveitarfélagið í Færeyjum.
Runavík stendur við austanverð-
an Skálafjörð á Austurey og er um
hálftíma akstur frá Þórshöfn. Fisk-
veiðar og fiskiönaður er aðalat-
vinnuvegur Runavíkur, og einnig er
höfnin þar ein af stærstu útflutn-
ingshöfnum eyjanna.
Aðrir erlendir vinabæir Egils-
staða eru Skara í Svíþjóð, Suolahti
í Finnlandi, Eidsvoll í Noregi og
Sorö í Danmörku. Vinabæjamót
með þátttöku fulltrúa frá öllum
bæjunum eru haldin á tveggja ára
fresti, þannig að tíunda hvert ár
eru haldin vinabæjamót í hverju
sveitarfélagi. Síðast var slíkt mót
haldið í Eidsvoll sl. sumar, og var
það ákaflega vel heppnað. Næst
verður vinabæjamót haldið í Sorö
1993, og eru menn þegar farnir að
hlakka til þess. Norrænu félögin
á hverjum stað eru virkir þátttak-
endur í samstarfi bæjarfélag-
anna.
Vinsamleg ábending
Samskipti sveitarstjórnarmanna
hér á landi við starfsbræður sína
annars staðar á Norðurlöndum eða
í öörum löndum eru vísast með
ýmsum hætti, og má vafalaust
deila um, hvort þeim tíma og pen-
ingum sé vel varið, sem í slíkt starf
fer. Óumdeilanlega hlýtur þó slíkt
samstarf að auka víðsýni þeirra,
sem taka þátt, og ekki sakar að
skoöa það, sem vel fer hjá ná-
grannanum hinum megin við hafið
með það í huga að heimfæra
hlutina upp á íslenzkar aðstæður,
ef vill. Umræður um þennan þátt
sveitarstjórnarmála hafa ekki farið
hátt, þrátt fyrir kjörinn vettvang til
þess hér í blaðinu, og gott væri, ef
hinn ágæti ritstjóri þess, Unnar
Stefánsson, sæi færi á að bæta
þar úr.
186