Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 13
AFMÆU
Brautarholtsskóli. Sundlaug til hægri og dæluhús hitaveitu nær.
Brautarholtsskóli sextugur
Jón Eiríksson, jv. oddviti Skeiðahrepps
Svipmyndir úr barnaskóla
Á 60 ára afmæli Brautarholtsskóla verður
mér hugsað til bamaskólaára minna, en ég
var tæplega 10 ára þegar skólaganga mín
hófst haustið 1931.
Leiðin lá þá í gamla skólann á hlaðinu á
Húsatóftum, lítið jámklætt timburhús og illa
búið að húsgögnum, byggt árið 1910. Húsið
var ein kennslustofa og lítið herbergi fyrir
kennslutæki, kölluð kompan. Þar var einnig
lestrarfélag sveitarinnar til húsa. Engin
hreinlætisaðstaða var í húsinu en útikamar notaður.
Nemendur urðu að ganga í skólann og var það oft
harðsótt í vondum veðrum, sérstaklega hjá þeim sem
langt áttu að sækja og sumir um vegleysu. Þeim sem
allra lengst áttu var þó komið fyrir á bæjum í grennd.
Kennt var í tveimur deildum, eldri deild og
yngri deild, hálfan mánuð hvorri í einu.
Skólinn hófst um miðjan október og lauk um
miðjan apríl. Þetta var því 6 mánaða skóli en
í raun ekki nema þriggja mánaða kennsla
sem hver nemandi fékk.
I þessu litla skólahúsi átti ég samt góðar
stundir. Krakkahópurinn var stór og sam-
komulagið yfirleitt gott, að mig minnir. Þeg-
ar veðrið var gott fórum við í frímínútunum í
leiki út á tún, aðallega í risaleik og pottleik.
Mikið var hlaupið - og sjálfsagt höfum við ekki alltaf
farið vel með túnið hans Eyjólfs en ekki man ég eftir að
hann amaðist við látunum í okkur.
Leikfimi var engin en gegnum húsið var svert rör til
að haida því saman og notuðum við það eins og svifrá nú
7 5