Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Síða 19
AFMÆLI
Snyrting sett nifiur á tjaldsvæöi. Greinarhöfundur, Jón Eiríksson, tók myndirnar
mefi greininni nema myndina af fimleikaflokki Umf. Skeifiamanna, en hann var
einn í hópnum; þá mynd tók Baldur Kristjónsson.
lýst ánægju með tillögu Erlings Petersen,
arkitekts hjá Húsameistara ríkisins, að við-
byggingu í suðvesturhorn hússins. Þá
höfðu hreppsnefnd og skólanefnd raunar
ákveðið að svo yrði og húsið lagfært.
Unnið var áfram að endurskoðun teikn-
inga og að tryggja stuðning stjómvalda.
Gekk það eftir og í ársbyrjun 1985 voru
teikningar tilbúnar og samþykki mennta-
málaráðuneytis lá fyrir.
A fundi nefndanna 1. febrúar 1985 var
samþykkt að hefja framkvæmdir með vor-
inu og kosnir í byggingamefnd þeir Jón Ei-
ríksson, Leifur Eiríksson og Sigmar Guð-
bjömsson.
Endurbygging hússins tók fjögur ár.
Viðbyggingu og tengingu við gamla húsið
var lokið á tveimur ámm og kennsla hafin
þar 2. desember 1986. Var því fagnað með
hátíðarsamkomu og hreppsfundi þrettánda-
kvöldið 6. janúar 1987.
Viðbyggingin er 94 m2 á tveimur hæðum, eða 188 m2
alls og um 600 m3. Þetta var nokkuð flókin framkvæmd,
sérstaklega tengingin við gamla húsið og að nokkru
famar nýjar leiðir. Má þar nefna að veggir eru einangr-
aðir að utan og múrhúðaðir með Ispó múrhúðun. Þá eru
blágrýtisflísar á gólfi forsalar og stiga, ættaðar úr Hóla-
hnjúki í Hmnamannahreppi.
Það tók tvö ár til viðbótar að ljúka endurbyggingu
hússins, en á árunum 1987 og 1988 var kennsluálma
lagfærð, eldhúsið endurbyggt og gengið frá skólalóð.
Eg mun ekki lýsa endurbyggingu hússins frekar hér
enda skammt um liðið - og sjón er sögu ríkari. Eg vil þó
láta í ljósi þá skoðun mína að hér hafi vel til tekist enda
hef ég orðið var við almenna ánægju með þessar endur-
bætur. Vil ég þakka það snjöllum arkitekt og góðu hand-
bragði iðnaðarmanna, bæði aðkomumanna og heima-
manna.
Kostnaður var um 17,5 milljónir króna, þar af greiddi
ríkið nær helming á nokkmm ámm, en verðbætt.
Brautarholt hefur verið og er hið sameiginlega heimili
Skeiðamanna, fræðslustofnun og félagsheimili, þar sem
yngri og eldri koma saman til starfa og í leik.
Með sundlaugarbyggingunni og endurbyggingu húss-
ins hefur ekki aðeins aðstaðan stórbatnað heldur opnast
nýir möguleikar.
Húsið þjónar nú veigamiklu hlutverki í vaxandi ferða-
mannaþjónustu á staðnum og er eftirsótt á summm fyrir
fjölskylduhátíðir og ættarmót.
Verum á varóbergi
Eg hef hér á undan rakið nokkuð ítarlega fram-
kvæmdasögu Brautarholtsskóla en minna rætt skóla-
starfið sjálft. Astæða væri nú til að einhver áhugasamur
og fróður maður tæki sig til og rifjaði upp og ritaði sögu
bamafræðslunnar hér í sveit frá upphafi.
Skólastjórar hafa verið 6 við Brautarholtsskóla og
þessir;
Klemens Þórleifsson, Þorsteinn Eiríksson, Stefán
Hallsson, Haraldur Antonsson, Pálmar Guðjónsson og
Þorsteinn Hjartarson, núverandi skólastjóri.
Breytingar hafa verið miklar, þótt ekki sé farið lengra
aftur en til þess að skóli hófst hér í Brautarholti í ársbyri-
un 1934.
Allur aðbúnaður bamanna hefur stórbatnað og skólinn
hefur verið að lengjast, er nú 9 mánaða skóli í 7 vetur
fyrir börn á aldrinum 6-12 ára, en síðustu tvo vetur
skyldunámsins eru bömin í sameiginlegum unglinga-
skóla Skeiða- og Hreppamanna að Flúðum.
Kennumm hefur verið að fjölga, námið er fjölbreyttara
og námsgögn vel búin í hendur nemenda.
Skóladagur er samfelldur, börnin fá heita máltíð í
skólanum og er ekið í skólann og heim.
A 60 ára afmæli Brautarholtsskóla fögnum við því að
eiga góðan skóla.
Mikil umræða er nú í landinu um skólamál og ekki
sjálfgefið að litlir skólar eins og okkar lifi áfram.
Brautarholtsskóli er ekki aðeins fræðslustofnun heldur
einnig menningarstofnun sveitarinnar.
Við skulum því slá um hann skaldborg, verja hann og
efla í framtíðinni.
Til hamingju með 60 ára afmælið.
Heimildir:
Bœkur og skjöl SkeiÖahrepps og Brautarholtsskóla.
Dagbók Eiríks Jónssonar, Vorsabæ.
Bókin Þjóð í önn.
Greinin er að stofni til ræða sem flutt var á hátíðarsamkomu 11. desem-
ber 1993 í tilefni af 60 ára afmæli Brautarholtsskóla. Henni hefur lítið
eitt verið breytt.
8 1