Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Page 21

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Page 21
AFMÆLI svo dýrmæt sem metur þau réttilega að hreppstjórinn verður að hafa gleði af að uppskera þar sem hann sáir og vera bæði vinsæll og mikils metinn af hreppsbændun- um. En það mun honum best heppnast ef embættisstörf hans liggja ljós og opinber fyrir almenningssjónum. Góðir menn hafast ekkert að sem skýlu þarf yfir að draga og hvar sem athafnir embættismanna eru huldar í þoku, þar er líka tortryggnin á aðra hönd og spáir í eyð- umar og spinnur togann milli hinna einstöku atgjörða sem almenningur þekkir, þangað til allt sýnist vera orðið að neti yfir einhvurri gröf eða gildru sem hún bendir mönnum á og biður þá að forðast vélina. 2. Hreppsbóndanum ríður þó enn meira á að sveitarinn- ar ástand sé lagt fyrir al- menningssjónir og það lítur svo út að hann eigi fullan rétt á að krefjast þess. Hvað mættu þeir segja hrepps- bændumir sumir hvurjir sem svara til sveitar og halda hreppsómaga og vinna baki brotnu til að geta staðið í skilum og vita þó ekki á hvaða grundvelli félag þeirra er byggt og hvurt því er skynsamlega fyrir komið, því síður að þeir viti nokkurn hlut hvurt þeir bera byrðina með öðrum hreppsbændum eftir réttum jöfnuði eða hvurt á þá er hallað af hlutdrægni embættismanna. Engin von er á að þessir menn gjaldi góðfúslega það sem þeim ber úti að láta til almennings- þarfa, af því þeir geta ekki lifað við þá tilhugsun að þeir séu bræður í nytsömu félagi og viti hvurs það þurfi við; því það verða þeir að vita, eigi þeir að þjóna því með góðu geði. Besta ráðið að rýma burt þessari vanþekking á sínum högum og ógeði á að taka þátt í almennings- kjörum er eflaust það að birta þeim hreppsreikningana öllum saman, hvurt þeir vilja það eða ekki - því sumir hafa líklega ekki sinnu á að íhuga þá í fyrstunni - og skýra þeim frá öllu ástandi sveitarinnar eins greinilega og orðið getur. Þá mun ekki líða langt um áður félags- andinn vakni í bændunum og þá er ekki unnið til ónýtis; því þegar hann er vaknaður, greiða þeir allt með góðum hug sem félag þeirra við þarf og sé á einhvum hallað, hvurt sem þar er vísvitandi eða ekki, kemst það upp í tækan tíma svo rangindum og hlutdrægni verður ekki framgengt. Hvað hreppana svertir þurfa samt ekki þeirra peningar að liggja arðlausir í handraðanum. Það er handvömm og ætti hvurgi að viðgangast! Konungurinn hefur leyft að peningar allra almenningsfjársjóða á íslandi og þeirra sem eru ekki ráðandi fjár síns, megi koma á rentu í jarða- bókarkassann við skuldabréfum er segja má upp með missiris fresti, hvunær sem eigandi vill. Að vísu hafa margir séð hvaða hagnaður þetta er og orðið til að nota sér konungsleyfið, en samt fer varla hjá því að það eru miklu fleiri sem enn þá geyma peningana heima - að minnsta kosti var það svo fyrir tveimur árum, og sást best á því hvað tvær eða þrjár sýslur sköruðu langt frarn úr öllum hinum. Það er nú vonandi að hreppamir færi sér í nyt þessa ráðstöfun og eng- inn láti hirðuleysi eða heimskulega tortryggni aftra sér frá að lofa eignum þeirra að ávaxtast. Enn verður að minnast á eitt sem kemur að sönnu ekki höfuðefninu við en þykir þó vera svo áríðandi að ekki megi ganga fram hjá því; það er hreppstjórakosningin. Það er nú auðvitað að því vinsælli sem hreppstjórinn er og því meira traust sem bændur hafa á dugnaði hans og réttsýni, þess hægra á hann með að koma öllu góðu til leiðar í sveitinni og þess meiri not verða almenningi að stjórn hans og umsýslu. Menn ættu því að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess hvur sveit fái þvílíka hreppstjóra, og er þá mest komið undir því hvurnig kosningunni er háttað. Sýslumenn ættu að koma því til leiðar að hrepp- stjórar yrðu teknir á vorþingi eftir atkvæðafjölda og allir bændur ættu þar að kjósa. Þetta er svo fyrirhafnarlaust og allt virðist að mæla svo fram með því, að það er vonandi yfirvöldin verði því ekki mótdræg. Þegar svona er að farið fá þeir embættið sem flestir mundu kjósa, og þeir sem kosnir eru fá um leið ljósasta vitni um traust það og virðingu sem félags- bræður þeirra hafa á þeim og getur þá ekki hjá því farið að þetta fremur öllu öðru upphvetji þá til dugnaðar og at- orku í embætti sínu og hreppstjórinn þjóni því með gleði og endurgjaldi svo í verki hylli sinna félagsbræðra. Það er nú sjálfsagt bágt, og einhvur mesta ógæfan fyrir hreppana að hreppstjóramir fá ekkert, að kalla má, fyrir alla sína mæðu og fyrirhöfn. Margur dugandi maður, sem á erfitt uppdráttar, verður því að hafa sig undanþeg- inn, þó það hvurki komi til af leti né hugsunarleysi á al- I-ÁEÍX o n D um hreppanu á Istaudi. Eítt al' j>ví, tcin vorir dagar hvíinla af livurri stjórn, er lieíta vill réttvís og góð og ávinna scr livlli siiina undirinanna, er jiað: að skýlaus jjrciu se (cjörð fyrir meðferð á öliu Jiví fé, sein al- menníngur liefur greítt af liendi til einllvurra nota fyrir jijóðina. J)cssi krafa er ekki eímingis sanngjörn jiegar gjöra er um fjársjóðu lauda og ríkja, hehlur ber lienni eínnig að fulluægja í hinum smœrri félögum, sem skotið liafa fé sanian til franikvæmdar eínlivurjiini ásetníugi; og jiað er margreýnt, að jiau feliig, sem gjöra Ijósa og skýlausa greín fyrír atgjörðum síuuin, koinast æfinlega í mestau blóma, og keinur jiað til af mörgu, sein hér skal verða drepið á seínna meir. EÍU af jiessum félögum eru hreppamir. Hændurnir í hvurjum lirepp eru R-lagsbræður sein allir eíga að hjálpast til að auka velgengni i sveít- inni. og koma góðri reglu á, so lilið verði jieim Fremsta síðan í grein Jónasar i Fjölni 1835. 83

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.