Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 43
HAFNAMÁL
taki tillit til svæðisbundinna sjónar-
miða. Skorað er á samgönguráð-
herra að hraða setningu nýrrar
reglugerðar um hafnamál, þar sem
sett verði skýr ákvæði um styrk-
hæfni hafnargerðar. Vakin er at-
hygli á þýðingu aukinna fjárfram-
laga undanfarinna ára til hafnar-
gerðar sem bætt hafi stöðu hafnar-
sjóða. Jafnframt er lýst óánægju
með tillögu um fjárframlög til hafn-
argerðar í fjárlagafrumvarpi fyrir
árið 1995. Vakin er athygli á þeirri
þróun að með aukinni þjónustu við
erlend fiskiskip í höfnum aukist
þörftn fyrir góðar og vel búnar hafn-
ir með öruggri innsiglingu.
Verði dregið úr framkvæmdum
við hafnimar blasi sú hætta við að
þær verði vanbúnar til að þjóna auk-
inni umferð.
• Bent er á mikilvægi viðskipta
við erlend skip fyrir rekstur hafna
og atvinnulífið víða um land og
talið brýnt að aflétta hindrunum sem
enn kunna að standa í vegi fyrir
áframhaldandi þróun þessara við-
skipta.
• Þeim tilmælum var beint til
stjómar Hafnasambandsins að reyna
að ná fram breytingu á lögum um
úreldingu ftskiskipa þannig að hags-
munir hafnarsjóðanna verði ekki
fyrir borð bomir. í því sambandi sé
hugað að ákvæðum um að við úr-
eldingu skipa verði förgun þeirra
tryggð, að við úreldingu skipa, sem
gerð verða út utan fiskveiðilögsög-
unnar, verði ákveðnu hlutfalli úreld-
ingarverðmætisins haldið eftir sem
nokkurs konar skilagjaldi þar til
förgun hefur verið tryggð eða skipið
selt úr landi og það farið út úr ís-
lenskri efnahagslögsögu og að við
úreldingu skips verði tryggt að kröf-
ur hafnarsjóðanna, s.s. hafnagjöld,
orkukostnaður o.þ.h., verði greidd-
ar.
• Loks var því beint til stjómar-
innar að hún vinni að því að lög-
gilding hafnarvoga verði fram-
kvæmd á sem hagkvæmastan hátt
og að hafnimar greiði einungis fyrir
þá þjónustu sem þeim er veitt í
þessu sambandi.
Stjórn Hafnasambandsins
I stjóm Hafnasambands sveitarfé-
laga til eins árs voru kjömir Pétur
Jóhannsson, hafnarstjóri í Keflavík-
Njarðvík-Höfnum, Arni Þór Sig-
urðsson, formaður stjómar Reykja-
víkurhafnar, Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri á Akranesi, Kristján Þór Júlí-
usson, bæjarstjóri á ísafirði, Brynjar
Pálsson, formaður hafnarstjómar á
Sauðárkróki, Guðmundur Sigur-
bjömsson, hafnarstjóri á Akureyri,
Þorvaldur Jóhannsson, bæjarstjóri á
Seyðisftrði, og Ólafur M. Kristins-
son, hafnarstjóri í Vestmannaeyjum.
Formaður stjórnar var kosinn
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á
ísaftrði.
Sem endurskoðendur hlutu kosn-
ingu Inga Jóna Þórðardóttir, fulltrúi
í stjóm Reykjavíkurhafnar, og Sig-
urður Valur Ásbjarnarson, bæjar-
stjóri í Sandgerði.
Ársfundinn sátu 114 fulltrúar og
gestir, en í Hafnasambandinu em 58
hafnir.
Skoöunarferó um Snæ-
fellsnes
I lok fyrri fundardagsins var farið
í skoðunarferð um hafnimar á norð-
anverðu Snæfellsnesi. Staldrað var
við í Grundarfirði og í Ólafsvík þar
sem snæddur var kvöldverður í boði
bæjarstjómar Snæfellsbæjar.
Skjalaskápar
E
á góðu verði! a.
f H I?
.1 |
Kr. 21.999 Kr. 16.415 Kr. 19.254
SHEER PRIDE
(Éláifiidís a <g® imih, Sundaborg 5 104 Reykjavík Sími: 684800
1 05