Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Blaðsíða 65
ERLEND SAMSKIPTI
hópi tæknimanna og sérfræðinga til
þess að skiptast á skoðunum og
reynslu um málefni sem varðar upp-
byggingu og enduruppbyggingu
borga og bæja.
Rædd verða ýmis málefni er
varða uppbyggingu þéttbýlis, s.s.
hlutverk tæknideilda í uppbyggingu
og þróun, umhverfismál, endur-
vinnsla, gagnavinnsla og tölvumál,
uppbygging gatna og gatnastaðla,
kostnaðarþátttaka rikis og sveitarfé-
laga í uppbyggingu mannvirkja o.fl.
Meðal frummælenda verða fulltrúar
frá borgarverkfræðingsembættinu í
London, vatnsveitu Kaupmanna-
hafnar, finnska umhverfisráðuneyt-
inu, fínnsku vegagerðinni, húsnæð-
isstofnun Berlínar, borgarverkfræð-
ingi Björgvinjar, Sambandi franskra
sveitarfélaga og borgarstjómarskrif-
stofum St. Pétursborgar.
Ráðstefnan verður í tveimur hlut-
um. Fyrri tveir dagamir fara fram í
Helsinki og þeir síðari í St. Péturs-
borg. Farið verður með ferju á milli.
I Helsinki verður ráðstefnan í Fin-
landiahöllinni og í St. Pétursborg
verður hún í Mariinskyhöllinni.
Samhliða ráðstefnunni verða sýn-
ingar frá ýmsum borgum og bæjum
ásamt kynningu á vöm og þjónustu
sem sveitarfélögum stendur til boða.
Einnig gefst þátttakendum kostur á
skoðunarferðum til vatnsveitunnar
og borgar- og umferðarskipulags-
deildar í St. Pétursborg.
Þátttökugjald á þeim hluta
ráðstefnunnar sem fram fer í
Helsinki er 51 þús. ísl. kr. og í St.
Pétursborg 9 þús. kr. og siglingin
milli bæjanna að meðtöldu fæði og
gistingu um borð er 33 þúsund ísl.
krónur.
Aðaltungumál ráðstefnunnar er
enska.
Almennur skráningarfrestur er til
31. maí nk., en þá hækkar skráning-
argjaldið um 10%. Lokafrestur er til
15. ágúst nk.
Frekari upplýsingar um ráðstefnur
þessar veitir Unnar Stefánsson í
síma 581-3711.
rltlll 3
---------------------------TT7----------------------------------------------
Vænn kostur þar sem tími og peningar skipta máli
Einingarnar koma á byggingarstað tilbúnar
að utan og innan. Uppsetningin er eftir því
fljótleg eða 500-1000 m2 á dag.
Lett-tak er vinsælasta þakeiningin í Noregi.
Þar hafa Lett-tak einingar verið notaðar á
þök póstþjónustunnar, á flugskýli SAS og
á fjölmörg íþrótta- og verslunarhús, að
ógleymdum þúsundum fermetra í
Lillehammer.
Frábær hitaeinangrun, steinull frá 25 cm
þykkt.
Frábær hljóðeinangrun, Rw gildi frá 50 DB.
Burðarhaf eininganna er allt að 12
metrum.
Þyngd eininga er aðeins 45 kg hver
fermetri.
Ytri klæðning getur verið Sarnafil dúkur
eða bárujárn.
Mjög hagstætt verð.
fagtún hf
Póstmiðstöð Jönköping
Sími 621370 Fax 621365
Verslunarmiðstöð í Karlstad
l 27