Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Qupperneq 15
FERÐAMAL
Margt smátt gerir eitt stórt
Hugmyndaskýrslan hlaut góðar viðtökur og vakti
verðskuldaða athygli á verkefninu, sem m.a. var eitt af
þremur sem fengu Nýsköpunarverðlaun forseta Islands
árið 1996. Segja má að inntak skýrslunnar sé að margt
smátt geri eitt stórt. Litlar hugmyndir, sem eru tiltölu-
lega auðveldar í framkvæmd, eru í fyrirrúmi. Leitast er
við að byggja á því sem þegar hefur verið gert vel -
þjónustu og afþreyingu sem fyrir er í sýslunni - um leið
og tekið er mið af hugmyndafræði umhverfisvænnar
ferðaþjónustu. Hugmyndir um markaðssókn og úrbætur
eru miðaðar við þá hópa ferðafólks sem Strandamenn
vilja helst fá í heimsókn, enda verður að teljast æskilegt
að hafa stjóm á fjölda ferðamanna og álagi á einstök
svæði. Það hlýtur að vera skynsamlegt að byggja ferða-
þjónustuna upp í jafn mikilli sátt við umhverfið og kost-
ur er. Því er markmið héraðsnefndar að höfða einkum til
fjölskyldufólks og rólyndra unnenda náttúru og sögu.
í skýrslunni eru útfærðar nákvæmar leiðir til að nýta
sérstöðuna, enda er helsti galli úttekta sem þessarar oft
að markmið eru skilgreind en leiðir til að nálgast þau
verða útundan. Hugmyndavinnan beinist að Stranda-
sýslu allri og þeim þáttum sem eðlilegt er að Stranda-
menn vinni sjálfir og hafi frumkvæði að. Svipuð hug-
myndavinna hentar vissulega fleiri svæðum, en Strandir
eru þó afar heppilegar fyrir tilraunaverkefni af þessu
tagi. Möguleikar til að ná árangri í ferðaþjónustu eru
góðir - öll uppbygging er skammt á veg komin, svo
hægt er að standa vel að málum frá upphafi. Ef vel tekst
til skapast nokkur ársstörf við ferðaþjónustu til viðbótar
á Ströndum og aukatekjur fyrir býsna marga.
Listin að skemmta ferðamönnum
Kröfur ferðamanna hafa breyst mikið á síðustu árum.
Þótt það sé enn stórbrotin og óspillt náttúra sem laðar
fólk á Strandir og til Vestfjarða dugar hún ekki lengur
ein og sér til að skemmta ferðalöngum. Þeir leita vissu-
lega að fögrum hlíðum og fjallasýn, en vilja einnig láta
leiða sig á vit sögunnar og að landinu sé gefið líf með
faglegri upplýsingamiðlun. Eins vilja ferðamenn að ým-
is skemmtun standi til boða og sjá ekki eftir að borga
hóflegt verð fynr vandaða afþreyingu. Á þessu breytta
viðhorfi hafa Islendingar víða verið lengi að átta sig.
Umbætur þurfa ekki endilega að kosta mikið og margt
smálegt er vel til þess fallið að krydda tilveru ferða-
langsins. Lítil en skemmtileg ljósmyndasýning getur
sem best verið fólgin í tíu vel völdum mannlífsmyndum
og vönduðum myndatextum. Þá er auðvelt að merkja
gönguleiðir að sögustöðum með vörðum, smíða prílur
yfir hindranir eða afmarka göngustíg með steinum. Á
Ströndum er t.d. kjörið að bjóða ferðamönnum að rétta
úr sér og rölta að steintröllunum sem forðum ætluðu að
grafa Vestfjarðakjálkann frá meginlandinu og hafa út af
fyrir sig. Til þess þarf aðeins að setja upp söguskilti við
þjóðveginn og vísa veginn.
Til þess að skemmta ferðamönnum með hjálp sögunn-
ar þarf að bjóða fram fjölbreytilegustu afþreyingu. Mik-
ilvægt er að handverk sem tengist sérstöðu svæðisins sé
á boðstólum, og jafnvel má setja sögulega sérstöðu fram
á matseðlum veitingahúsa. Sögustaði þarf að gera að-
gengilega með merkingum, kortum, bæklingum, skiltum
og göngustígum án þess þó að ofbjóða umhverfinu. Upp-
lýsingaþjónusta verður að vera þaulskipulögð og mark-
viss. Einnig verða skipulagðar ferðir að standa til boða -
gjaman á fjölbreyttum fararskjótum. Hátíðahöld af ýmsu
tagi þurfa að byggja á sérstöðunni, og misviðamiklar
minja- og myndasýningar eru góð aðferð til að koma
sögu á framfæri.
Söguslóðir á Ströndum
I Strandasýslu er fjöldinn allur af stórmerkum sögu-
77