Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 16

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 16
FERÐAMÁL Steintröll á Ströndum sem gleymdu sér viö aö grafa Vestfirði frá meginlandinu og dagaöi uppi i Drangavík viö Kollafjaröarnes. Þriöja trölliö varö aö steindrangi þeim sem þorpiö Drangsnes er kennt viö. Ljósm. Stefán Gíslason. stöðum, eins og annars staðar á landinu. Eyðibyggðimar norðan við Ófeigsfjörð - með öllum sínum náttúruperl- um - heilla margan göngumanninn, Trékyllisvík var vettvangur galdrabrenna á 17. öld og á Gjögri var stærsta hákarlaveiðistöð landsins. 1 Djúpavík og á Eyri við Ingólfsfjörð standa risavaxnar og yfirgefnar sfldar- verksmiðjur sem minnisvarðar um fallvaltleika mann- lífsins, og verslunarstaðurinn Kúvíkur er nú rústir einar. í fjallið Kaldbak gekk galdrameistarinn Svanur á Svans- hóli eftir dauða sinn og skriðumar í Kaldbakskleif vom forðum vígðar af Guðmundi góða, rétt eins og gömul setlaug á Laugarhóli. Þar liggur trú á lækningamætti vatnsins. Á Kaldrananesi, Ámesi og Stað í Steingríms- firði em gömul og glæsileg guðshús - byggð skömmu eftir miðja síðustu öld, og á Felli í Kollafirði er gamall og gróinn kirkjugarður. Þar er líka Svartfoss sem Fjalla- Eyvindur faldist á bak við á flótta undan réttvísinni. Á Óspakseyri í Bitru varðist óeirðaseggurinn Óspakur mönnum Snorra goða úr virki sínu og í Hrútafirði er þorpið Borðeyri sem á sér ótrúlega merka verslunar- sögu. Söguleg sérstaða héraðsins er einnig allmikil. Strandasýsla var harðbýl fyrr á öldum, hafís lá oft að ströndum og vetrarrfld getur verið mikið. Hlunnindi eins og selveiðar og rekaviður, sem gnótt er af, skiptu meira máli en víðast annars staðar. Fjölmargar jarðir eru falln- ar úr byggð, en eins og menn vita þykir fróðlegt að litast um á eyðilendum. Þá eru þjóðsögur, þjóðtrú og galdrar býsna umfangsmikill þáttur í sögu sýslunnar. En hvemig má nýta sérstöðuna - hvemig á að koma henni á framfæri? Upplýs- ingaþjónusta og ýmiss konar útgáfa skiptir vissulega mestu máli, en hugmyndin er að sög- unni verði komið til skila á margvíslegan annan hátt, t.d. með hátíðahöldum og kvöld- vökum. Gömul hús, sem hafa verið friðuð, er sjálfsagt að gæða lífi sem höfuðstöðvar sýningarhalds eða upplýsinga- þjónustu. Þetta á t.d. við um Riis-húsið á Borðeyri, sem nú er verið að lagfæra, en það var reist á sjöunda áratugi 19. ald- ar. Þá vilja ferðamenn eiga þess kost að komast í skipu- lagðar ferðir með vandaðri leiðsögn um óspillta og stór- brotna náttúru, eyðislóðir og sögustaði. Nóg er af slíkum leiðum á Ströndum. Ekki er á dagskrá að setja upp söfn í héraðinu, enda eru Strandamenn aðilar að Byggðasafninu á Reykjum þar sem hákarlaveiðar og rekanytjar eru í forgrunni. Uppsetning safna er dýr, kall- ar á geymslupláss, rannsóknir og rnikið söfnunar- og skráningarstarf. Hætta er á að slík framkvæmd myndi gleypa alla aura sem renna til menningarmála. Vænlegri valkostur er að á hverjum tíma verði í gangi nokkrar litl- ar sýningar á Ströndum. Þar verði tekið á afmörkuðum þemum sem tengjast sögu sýslunnar - göldrum, hákarla- veiðum, vinnslu úr rekaviði, verslunarsögu og fleiri mannlífsþáttum. Því miður virðist ekki einu sinni sumt safnafólk gera sér grein fyrir muninum á sýningu og safni, og því er sveitarfélögum hætt við að reisa sér hurðarás um öxl með minjasöfnum sem varla standa undir nafni. Að byggja upp íwyiid Með markvissum aðgerðum er þannig ætlunin að gera ferðamönnum um Strandir kleift að komast í kynni við áhugaverða og spennandi fortíð, atvinnuhætti og atburði, þjóðlíf og þjóðtrú. Þetta virðist m.a. nauðsynlegt vegna þess að um allar jarðir gera ferðaþjónar út á „einstæða og ómengaða náttúru". Náttúran er dulúðug og stórbrotin á Ströndum og vegur þungt í ímyndinni, en markmiðið er að styrkja söguna, hughrif hennar og hlutfallslegt vægi. Það auðveldar leikinn að í huga íslendinga hafa Strandir orð á sér sem hrífandi snertiflötur við fortíðina og sagt er að sambúð manns og náttúru hafi óvíða verið nánari. Hér verður að undirstrika að ekki er nóg að kynna eitt- hvert hérað og halda vel úthugsaðri ímynd á lofti. Að

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.