Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 17

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 17
FERÐAMÁL auki verða að koma til marg- víslegar framkvæmdir sem grundvallast á þeirri hugsun að ánægðir ferðamenn séu besta auglýsing sem svæðið getur fengið. Markaðssetning má aldrei vera fólgin í innan- tómum frösum um frábæra skemmtun, sögustaði, ómeng- að land og náttúruperlur, sem ferðamenn verða síðan hvergi varir við. Ekkert er hættulegra fyrir íslenska ferðaþjónustu. Vemdun og viðhald minja um liðna tíð verða að fá aukið vægi og einnig umhverfis- vemd og landhreinsun. Svæð- ið verður að standa undir ímyndinni. Án þess verður öll markaðssetning hjáróma froðusnakk. II. Aö láta verkin tala Til allrar hamingju átti ekki fyrir hugmyndaplagginu Ferðaþjónusta og þjóðmenn- ing að liggja að lokast niðri í loftlítilli skúffu, eins og stundum vill brenna við. Eftir að hafa kynnt sér efni skýrslunnar ákvað héraðsnefnd að láta til skarar skríða, koma hugmyndafræðinni á framfæri heima fyrir og hrinda ýmsum tillögum í framkvæmd. Til þess vom Jón Eigendur Café-Riis, hjónin Magnús Magnusson og Þorbjörg Magnúsdóttir, standa viö einn bar- inn sem prýöir hundraö ára gamalt húsiö. Greinarhöfundur tók myndina. Börn aö leik í rekaviöarfjöru í Bjarnarfirði. Fyrr á öldum voru Strandamenn þekktir fyrir smíöar á listmunum og nytjavöru úr rekaviöi og seldu búsáhöld víöa. Ljósm. Ester Sigfúsdóttir. Jónsson og þjóðfræðineminn Rakel Pálsdóttir ráðin lil starfa heima í héraði sumarið 1996. Suinarstarfið ó Ströndum Verkefni starfsmannanna var fyrst og fremst að varpa á loft ýmsum tillögum um framtak og úrbætur og ræða þær fram og aftur við heima- menn. Af öllum mætti var þó forðast að þröngva hugmynd- um upp á fólk, enda skiptir öllu að framtak í ferðaþjón- ustu sé samstiga vilja þjón- ustuaðila og að frumkvæði til breytinga komi frá heima- mönnum. En starfsfólkið gerði ýmislegt fleira en að viðra misgóðar hugmyndir við misjafnar undirtektir. Það var ferðaþjónum innan handar og aðstoðaði eftir megni við allt sem tengist afþreyingu, bækl- ingagerð, kynningu og sýn- ingarhaldi. Uppbygging afþreyingar var þó í öndvegi, enda óhætt að segja að Strandamenn hafi verið nokkuð á eftir nágrönn- um sínum á því sviði. Ymsar markverðar nýjungar komust á koppinn, margar með aðstoð starfsmanna eða fyrir frum- 7 9

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.