Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 18

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 18
FERÐAMÁL Hólmavík á fögrum haustdegi, þjónustumiðstöö og höfuöstaöur Strandasýslu. Ljósm. Stefán Gíslason. kvæði þeirra. Svo dæmi séu tekin voru skipulagðar gönguferðir með leiðsögn í samráði við svæðisleiðsögu- menn og valda heimamenn, og í fyrsta sinn var á Ströndum gefinn kostur á skipulögðum hestaferðum. I sjávarþorpinu Drangsnesi var haldin vegleg bryggjuhá- tíð, kaffileikhús var vikulega á veitingahúsinu Café-Riis á Hólmavík og þar var einnig sett upp ljósmyndasýning um mannlíf á Hólmavík. Þegar sumri fór að halla var haldin á Hótel Laugarhóli þjóðsagnakvöldvaka - þar sem sagt var frá dvergum og draugum, álfum og tröllum - og galdrakvöld voru haldin á Hólmavík og í Djúpavík. Þar voru gestir fræddir um galdrabrennur á Ströndum og galdrakúnstir kenndar. Veitingasalar og áhugaleikarar héldu fjölskyldudaga, og ferðamenn áttu þess kost að komast í smalamennsku og réttir. Margt af þessu verður eflaust að árvissum viðburðum, annað sem ekki er nefnt í þessari upptalningu var áður til staðar, og fleiri við- burðir og sýningar eru í burðarliðnum. Café-Riis og Strandahestar Ferðaþjónusta á Ströndum virðist með öðrum orðum á réttri braut. Nýjungamar eru margar, en mikilvægast er jákvætt viðhorf ferðaþjóna á svæðinu. Samstarf hefur stóraukist, og allir virðast velta fyrir sér einhverri ný- breytni og leita leiða til að styrkja ímynd svæðisins og skemmta ferðamönnum með hjálp sögunnar. Eins skiptir miklu að ný fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa markvisst tekið mið af sögulegri sérstöðu sýslunnar. I elsta húsi Hólmavíkur - sem verður 100 ára nú í sumar - er nú rekið stórglæsilegt veitingahús sem kallað er Café-Riis, eftir kaupmannin- um Riis sem reisti húsið. Byggingin er nýlega uppgerð í samráði við húsafriðunar- nefnd, og var reynt að nálgast upprunalegt útlit hennar sem mest. Húsið er t.d. málað í lit- um sem oft prýddu slík stór- hýsi um síðustu aldamót. Þar sem endumýja þurfti gólf var notaður rekaviður úr Ofeigs- firði á Ströndum, og barina þrjá sem prýða hver sinn sal- inn skreytti Erlendur Magnús- son frá Hvolsvelli með galdra- stöfum og útskurði. Café-Riis er í senn veitinga- og pizzu- staður, kaffihús og krá. Síðasta sumar höfðu heima- menn einnig í fyrsta sinn á boðstólum skipulagðar hesta- ferðir, stuttar og langar skoð- unarferðir frá Hólmavík. Kvöldferðir eru vinsælar, en þá liggur leiðin oftast í kring- um Þiðriksvallavatn þar sem eyðibyggðir og fagurt út- sýni gleðja leiðangursmenn. Hjá Strandahestum er lögð áhersla á að lífga upp á ferðimar með vandaðri leiðsögn og fræðslu um liðna tíð. Upplýsingaþjónusta og skipnlagsmál Enda þótt uppbygging afþreyingar hafi skipað heiðurs- sess hjá starfsmönnum verkefnisins, fengu upplýsinga- þjónusta og skipulagsmál einnig nokkra athygli. Svo dæmi séu tekin var gefið út atburðadagatal fyrir svæðið og Ferðamálafélag Strandasýslu vakið af væmm blundi. Félagið hefur starfað ötullega síðan, undir öruggri stjóm Sigríðar Elínar Óladóttur, hótelstým á Laugarhóli. M.a. hefur það gefíð út þjónustubækling þar sem ferðamönn- um er kynnt hvaða þjónusta stendur til boða í sýslunni. Atburðadagatalið er allmerkilegt fyrirbæri og ættu sem flest svæði landsins, sem ekki hafa þegar hafið slfka út- gáfu, að gera það. Víða gætir þess misskilnings að ferða- fólk búi yfir sömu vitneskju og heimamenn og því sé óþarft að upplýsa það um ýmsa viðburði. I dagatalinu er sumarið kortlagt og dag- og tímasettir atburðir sem ferðamenn gætu haft áhuga á, gönguferðir, hestaferðir, hátíðahöld, kvöldvökur, kaffíleikhús o.s.frv. Þá er greint frá möguleikum til að nálgast leiðsögn, komast í veiði eða golf, á sýningar eða hestbak, svo fátt eitt sé nefnt. Jafnframt var unnið að nokkmm verkefnum sem hér- aðsnefnd beitti sér fyrir, t.d. var haldin ljósmyndasam- keppni undir nafninu Mannlífog náttúra á Ströndwn. Þá aðstoðuðu starfsmenn við annað stórverkefni héraðs- nefndar í menningarmálum, en hún gaf síðastliðið vor út 80

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.