Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 19
FERÐAMAL
Síldarvagnar í Djúpavík og verksmiöjan í baksýn, en á Hótel Djúpavík er boöin leiösögn um
hana. Besta myndin í Ijósmyndasamkeppni héraösnefndar sumariö 1996. Ljósm. Jóna Ingibjörg
Bjarnadóttir.
bók með völdum þjóðsögum
úr Strandasýslu. Bókin ber
nafnið Ægishjálmur, eftir
galdrastaf sem verið hefur
merki sýslunnar frá 1930 og
er tekin saman af Magnúsi
Rafnssyni, bókmenntafræð-
ingi á Bakka í Bjarnarfirði.
Verkefnið er nátengt ferða-
þjónustuátakinu, enda útgáfan
miðuð við að bókin sé að-
gengileg ferðamönnum jafnt
sem heimamönnum.
Skemmtigildið réð mestu um
val sagnanna, söguslóðirnar
eru merktar á uppdrætti, brot-
ið miðast við hanskahólf í
smærri bílum og ritið er í
kiljuformi. Bókinni hefur ver-
ið vel tekið, enda er verðinu
stillt svo mjög í hóf að hér-
aðsnefnd hagnast ekki á fram-
takinu fyrr en síðasta eintakið
selst.
III. Bjart framundan
Vissulega er ekki sjálfgefið að Héraðsnefnd Stranda-
sýslu standi straum af kostnaði við skipulag ferðaþjón-
ustu um aldur og ævi. Þau sjónarmið sem nú eru helst
uppi eru að eðlilegt megi teljast að nefndin standi fyrir
afmörkuðum verkefnum, stefnumótun og ákveðnu
brautryðjendastarfí. Æskilegra sé þó að ferðaþjónustuað-
ilar taki sjálfir að sér forustuhlutverk í málaflokknum í
framtíðinni. Með verkefninu leggur héraðsnefndin sitt af
mörkum, enda hagsmunamál allra íbúa að ferðaþjónusta
á svæðinu sé öflug og vönduð. Sérhvert starf skiptir
verulegu máli í jafn fámennu samfélagi og Strandir eru.
Nœstu skref Itéraðsnefndar
I framhaldi af þeirri áherslu
sem lögð var á uppbyggingu
afþreyingar í sumar hefur
mótast tillaga sem nú er á
stefnuskrá héraðsnefndar. 1
stuttu máli er hún á þá leið að
nefndin standi að verkefninu
Ferðaþjónusta og þjóðmenn-
ing í tvö ár til viðbótar. A
næsta ári er ætlunin að leggja
áherslu á að bæta upplýsinga-
þjónustu innan sýslu, merkja
staði og gönguleiðir, gefa út
bæklinga fyrir ferðamenn sem
komnir eru á staðinn o.s.frv.
Síðasta árið verður sýslan svo
kynnt á markvissan og fjöl-
breyttan hátt sem áhugaverður
áningarstaður fyrir þá ferða-
menn sem héraðsnefnd vill
höfða til.
Með þessu móti virðist for-
Hólmvíkingur á tiræöisaldri fæst viö net í fjörunni. Einar Hansen varö landskunnur 1963 þegar
hann rakst á risavaxna leöurskjaldböku úti á Húnaflóa og dró hana til lands. Ljósm. Ásdís
Jónsdóttir.