Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 20

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 20
FERÐAMÁL gangsröðin skynsamleg. Fyrri árin tvö beinast fram- kvæmdir að því að bæta þjónustu við ferðafólk sem kemur á svæðið og með því aukast líkur á að það snúi ánægt heim. Það er síðan fyrst þegar mál verða komin á góðan rekspöl heima í héraði sem ætlunin er að leggja í markaðssókn. Ein af þeim nýjungum sem áformaðar eru næstkom- andi sumar er að hanna og vinna samræmda nágrennis- bæklinga fyrir gististaði í sýslunni. Þeir verða sniðnir að þörfum þeirra ferðalanga sem komnir eru á staðinn og í þeim má finna upplýsingar um afþreyingu í grenndinni, kort um athyglisverða staði, brot úr sögu svæðisins, gönguleiðir í nágrenninu og vegalengdir til nálægra staða. Þá eru framundan heilmiklar úrbætur á gönguleið- um í sýslunni. Stutt er síðan göngukort með vel völdum leiðum var gefið út og héraðið hefur alla burði til að verða afar vinsælt útivistarsvæði fyrir þá sem leggja land undir fót. Ætlunin er að merkja leiðimar svo fólk fari sér ekki að voða, gefa út sérstaka leiðsögubæklinga um nokkra staði, hlaða upp vörður, hreinsa og laga til. Handverkshús og sjóstangaveiöi Fleira er á döfinni á Ströndum í sumar. Handverksfólk hefur verið afar iðið á síðustu árum og um miðbik sýsl- unnar starfar félagsskapurinn Strandakúnst. Hópurinn hefur haft opna sölubúð á Hólmavík sem nú er til húsa í anddyri félagsheimilisins, en komið hefur til tals að reka þar einnig upplýsingamiðstöð í sumar. í eigu handverks- hópa á Ströndum er ennfremur forláta sölutjald, sem hefur verið nýtt duglega til útimarkaða. Margir munir eru unnir úr efnum sem tengjast sérstöðu sýslunnar, t.d. má nefna galdrabækur sem áhugaleikarinn Sigurður Atlason á heiðurinn af. Þær eru að öllu leyti unnar úr náttúrlegum efnum, rekaviði, selskinni og hlýraroði, og auk þess er ýmislegt sem rekur á fjörur á Ströndum nýtt til skreytinga, eins og krabbaklær og næfur. Engar tvær bækur eru eins því lögun og áferð rekaviðarbútsins ræð- ur útliti þeirra. Mesta nýjungin í handverksmálum er þó ótvírætt rekaviðarhús sem bóndinn og smíðasnillingurinn Val- geir Benediktsson í Arnesi er þessa dagana að reisa norður í Trékyllisvík. í því hyggst hann selja gestum og gangandi handverksmuni, einkum útskoma og rennda gripi úr rekaviði. Þá fyrirhugar Valgeir að setja þar upp sýningu á einkasafni sínu af minjum frá liðinni tíð. Þá er á döfinni önnur nýbreytni í ferðaþjónustu á Ströndum, því á Drangsnesi er í bígerð að búa út bát til sjóstangaveiði og siglinga. Líklegt er að allt verði reiðu- búið síðari hluta sumars. Framtak sem þetta er gleðiefni og eykur mjög fjölbreytni ferðaþjónustu á svæðinu. Enn verður þó að auka valkosti ferðafólks á Ströndum, eink- um hvað varðar vetrarafþreyingu. tekið upp á sína arma er uppsetning galdrasýningar í Trékyllisvík. Hugmyndin er að hún verði opnuð vorið 1998, en ötullega þarf að vinna að undirbúningi ef sú áætlun á að standast. Galdrasýningin er enn sem komið er aðeins hugmyndir á blaði og í kollum aðstandenda en við undirbúninginn verða settar á laggimar bæði lista- smiðja og leiksmiðja. Galdraofsóknimar á 17. öld em eitt af því sérstæða í sögu Strandasýslu. Arið 1654 voru þrír menn brenndir fyrir galdra í gjánni Kistu í Trékyllisvík, eftir að hafa ját- að að bera ábyrgð á undarlegum sjúkleika kvenna við messur í Ámeskirkju. Fleiri galdramál komu upp á öld- inni, auk þess sem sýslumaðurinn Þorleifur Kortsson, sem sagður hefur verið ötulastur allra við að koma mönnum á bálið, var búsettur á Ströndum. Auk ofsókn- anna, eða kannski vegna þeirra, hefur löngum loðað við Strandamenn að þeir viti lengra en nef þeirra nær og séu jafnvel rammgöldróttir. Mikill sagnaarfur ber þessu órækt vitni. Á galdrasýningu verða auðvitað ekki til sýnis munir úr fórum galdramanna, föt þeirra né skruddur, heldur að mestu tilbúnir gripir sem sýna þann hugmyndaheim sem fóstraði galdratrúna. Listaverk, teikningar og tónlist skapa réttu stemninguna, ásamt tólum og tækjum til galdrakúnstarinnar, beinum, níðstöng og galdrastöfum skomum í rekavið, að ógleymdum réttlætisins rannsókn- artólum og refsivöndum. Leitast verður við að sýningin verði eins lifandi og kostur er, leikhljóð, lykt og lýsing eiga að skipta máli. Fólk mun geta gengið milli mynda og muna, skoðað og snert. Skýringartextar og stuttar þjóðsögur eiga að prýða veggi. Þá er stefnt að því að í tengslum við sýninguna verði leiksýningar og kvöldvök- ur, og skipulögð verði sérstök gönguleið um galdraslóð- ir. Þannig á að opna gestum glugga inn í fortíðina. Vonandi eru lesendur nú nokkm fróðari um ferðaþjón- ustu í Strandasýslu og nýsköpunarverkefnið Ferðaþjón- usta og þjóðmenning. Umræðan um bætta ferðaþjónustu hefur verið mikil á svæðinu og fjölmargar hugmyndir um úrbætur og nýjungar komið fram. Þó skiptir mestu að í mörgum tilvikum hafa Strandamenn látið hendur standa fram úr ermum og framkvæmt. Eins og við var að búast er að koma á daginn að markviss vinna og skipu- lagning, jafnt í markaðssetningu og þeirri list að þjóna ferðamönnum, skilar árangri. Ferðafólki fjölgar hægt og sígandi þar sem unnið er að úrbótum, og atvinnu- og mannlíf nýtur góðs af. Galdrasýning í Trékyllisvík Annað framtak sem Héraðsnefnd Strandasýslu hefur 82

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.