Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 22

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 22
FERÐAMÁL Aö hiröa kirkjugaröinn innan borgfirska fjallahringsins. Ungling- ar í vinnuskólanum á Borgarfiröi eystra tóku myndirnar sem greininni fylgja. það er ferðamáti sem ætti að henta vel í flestum íslenskum þorpum og er ferðamönnum kærkominn eftir setu í langferðabifreið. Tíminn reyndist naumur, en fyrst í stað sýndu krakkamir eigin kan- ínubúr, sem þeir höfðu innréttað í sameiningu. Roskin kona, sem býr á Borgarfirði á sumrin og heldur við torfhúsinu Lindarbakka, tók alltaf á móti hópnum og gekk með um hús- in sín sem ókeypis framlag til ferða- þjónustunnar á staðnum. Kirkjan með Kjarvalsmynd sinni var skoð- uð, elsta húsið sýnt, rölt var upp á Álfaborg og litið í kringum sig og horft var niður í gjá við sjávarsíð- una, þar sem ritan verpir og maður bjargaðist fyrir fáum árum úr sjáv- arháska. Endað var við Álfastein, þar sem hópurinn gat skoðað steina- sýningu og keypt vaming. Ferðamennimir, sem flestir voru útlendingar, voru allir sem einn mjög ánægðir með að tala við krakka og að heyra sögur staðarins frá innfæddum. Þetta fer eftir upp- skrift „grænu ferðamennskunnar“, því gengið var um bæinn, ekki ekið, og heimafólk og menning þess var í brennidepli. Að vísu keypti fólk lít- ið í Álfasteini, en flestir pöntuðu mat í félagsheimilinu. I raun styrktu allir byggðina með því að taka þátt í að þjálfa börn staðarins til framtíðarstarfa og framkomu. Hreppurinn gaf Philip og Svenna framlag vinnu- skólans, a.m.k. í þessari fyrstu at- rennu. Öruggt er að ferðamennim- ir urðu jákvæðir í garð Borgarfjarð- ar og muna lík- lega nógu vel eft- ir honum til að geta nefnt stað- inn við fleiri Is- landsfara í heimalandi sínu. Stundum var einnig numið staðar í kaupfélaginu á leiðinni úr firðinum til að kaupa hressingu fyrir heim- ferðina og áningarstaðina úti í nátt- úrunni. Vonast var jafnvel til að ungling- amir og kennarinn gætu unnið sér inn aukatekjur með þessari leiðsögn utan vinnuskólans eftir kl. 17.00, en það varð lítið. Umferðin til Borgar- fjarðar hleðst því miður á miðjan dag, þar sem vegurinn þangað er botnlangi. Aðrir staðir, t.d. við hringveginn, væru heppilegri til að skapa smáhópi unglinga og um- sjónarmanni aukatekjur síðla dags, þegar vinnuskólanum lýkur, eða jafn- vel allan daginn. Mjög fáir ís- lendingar á ferð með fjölskyldu sinni fóm í þessa gönguferð; Is- lendingar virðast yfir höfuð rétt vera að byrja að átta sig á hvemig þeir geta aukið ánægju sína af ferðalagi með því að kaupa sér leiðsögn - ekki síst þegar hún er eins ódýr og í þessu tilfelli. Full- orðnir borguðu aðeins 200 kr. og það kostaði ekkert fyrir bömin. Við sem skipulögðum þetta verkefni teljum helst að kynna þurfi þjónust- una betur. Einna helst dettur undir- rituðum í hug að unglingamir læri að vinna með gömul íslensk bygg- ingarefni, klömbrur og steina, og reisi sér kofa við bæjarlækinn þar sem fjölskyldubílarnir koma inn í þorpið, eða á grasfletinum fyrir framan félagsheimilið, þar sem hann gæti einnig nýst grunnskólan- um sem dúkkukofi á vetuma. Aug- lýsa þyrfti þjónustuna á skilti við kofann og nefna í stikkorðum við- komustaði og verð. Þá þyrftu krakk- amar bara að standa vakt á réttum tímum. Eg er viss um að slík þjónusta eigi framtíð fyrir sér. Einnig er ég viss um að það sé ekki fráleitt hjá mér að segja frá þessum hugmynd- um. Ferðamannafyrirtæki og byggð- arlög um allt land munu styrkjast með því að gera þjónustu sína við ferðamenn fjölbreyttari og ríkari. Fjölbreyttust verður hún þegar hún er græn, þ.e.a.s. þegar hún dregur fram og styrkir það sem einkennir hvem stað um sig. Af hverju getur sveitarfélag verið stoltara en að sýna og þroska sín eigin böm? 84

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.