Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 24
FERÐAMÁL
Steinunn Ásmundsdóttir
ferðamálafulltrúi
Fljótsdalshéraðs og
Borgarfjarðar eystri
^ Steinunn As-
mundsdóttir,
W,—. nýráðinn ferða-
' málafulltrúi
; Fljótsdalshéraðs
og Borgarfjarðar
eystri, er fædd í
Reykjavík
I. mars 1966. Hún á ættir að rekja á
Hérað, þar sem móðir hennar,
Ragnhildur Pétursdóttir, búsett í
Reykjavík, var dóttir hjónanna Guð-
laugar Sigmundsdóttur frá Gunn-
hildargerði og Péturs Sigurðssonar
frá Hjaltastað. Faðir Steinunnar hét
Asmundur Matthíasson, ættaður frá
Patreksfirði og var lengst af yfir-
maður í Lögreglunni í Reykjavík.
Hann lést árið 1994.
Steinunn nam við Menntaskólann
í Reykjavík til 1985 og lagði síðar
stund á rússneskar og spænskar
bókmenntir, siðfræði og tungumál,
auk þess að hafa réttindi sem land-
vörður. Hún starfaði m.a. fyrir
Morgunblaðið 1987-1988, hjá Nátt-
úruverndarráði frá 1989 til 1994,
sem landvörður og náttúrufræðari í
þjóðgarðinum á Þingvöllum frá
1994 til 1996, sem enskukennari í
Mexíkó veturinn 1993-1994, var
búsett í Þýskalandi veturinn
1995-1996 og starfaði sem leið-
beinandi á vemdaða vinnustaðnum
Stólpa á Egilsstöðum frá september
1996.
Gefnar hafa verið út þrjár ljóða-
bækur eftir Steinunni, Einleikur á
regnboga, 1989, Dísyrði, 1993, og
Hús á heiðinni, ljóð frá Þingvöllum,
1996. Hún var ritstjóri og í ritstjóm
bókmenntatímaritisins Andblær
1994 til 1997.
Sambýlismaður Steinunnar er
Þorsteinn Ingi Steinþórsson, mjólk-
urtæknifræðingur hjá Mjólkurstöð
Kaupfélags Héraðsbúa.
BYGGÐARMERKI
Súlan hyggðarmerki
Reykjanesbæjar
Á sl. ári efndi Reykjanesbær til
hugmyndasamkeppni um byggðar-
merki fyrir hið sameinaða sveitarfé-
lag.
Á þriðja hundrað tillagna barst.
Bæjarstjórnin sjálf skipaði dóm-
nefndina. Eitt það fyrsta sem hún
gerði var að taka frá þær tillögur um
merki sem líktust þeim merkjum
sem hin eldri sveitarfélög, Keflavík,
Njarðvík og Hafnahreppur, höfðu
átt. „Bæjarstjórnin vildi fá alveg
nýtt merki sem ekki bæri svipmót
neins merkis eldri sveitarfélag-
anna,“ sagði Hjörtur Zakaríasson,
bæjarritari Reykjanesbæjar, við
Sveitarstjómarmál.
Eftir allmargar umferðir í at-
kvæðagreiðslu í bæjarstjórninni
varð hlutskörpust tillaga um einfalt
tákn fyrir sveitarfélagið, fuglinn súl-
una.
Höfundur hennar reyndist vera
Guðjón Davíð Jónsson, grafískur
hönnuður í Prentsmiðjunni Odda hf.
í Reykjavík.
Höfundur merkisins lét svofellda
greinargerð fylgja því:
,,I suðvestur frá Reykjanesi rís
móbergskletturinn Eldey og leiðir
hugann að ævarandi umbrotum
jarðskorpunnar. En þar dafnar líka
fjörugt og lifandi samfélag, súlu-
byggð, sem er þekkt langt út yfir
strendur íslands fyrir að vera með
þeim stærstu í heimi.
Margir telja súluna einn glæsileg-
asta sjófugl á norðurhveli jarðar og
veiðiaðferð hennar, svonefnt súlu-
kast, vekur furðu áhorfenda - og
forvitni hinna, sem um heyra, enda
fáheyrt að fuglar steypi sér úr ógn-
arhæðum niður í hafdjúpið og grípi
síðan feng sinn á uppleiðinni.
Fáir munu draga í efa að súlu-
byggðin í Eldey undan Reykjanesi
sé einstakt náttúrufyrirbæri sem
nágrannar í mannabyggðum megi
vera stoltir af.
Höfundur tillögunnar telur því
vel við hæfi að bæjarfélag sem
kennir sig við Reykjanes geri súl-
una að einkennisfugli. Súlan verð-
ur þá tákn hinnar ómetanlegu nátt-
úru. En jafnframt getur hún verið
tákn fyrir athafnalíf. Súlan er fé-
lagslyndur fugl og býr þröngt, svo
helst minnir á þéttbýli mannfólks-
ins, forsendu blómlegra viðskipta;
súlan sækir lífsbjörgina í sjóinn
eins og menn hafa gert um aldir;
og súlan ræður yfir flugtækninni
sem varð mönnum hvati til að
virkja draum sinn og svífa sjálfir
um loftin.
Á merkinu rís upp hvít súla sem
tákn um lifandi samfélag. Súlan
breiðir út vængina og hefur sig til
flugs. En um leið eiga vængimir að
minna á hvítfyssandi öldur. Grunn-
flöturinn er blár; himinn og haf,
pantone 293.“
Merkið var samþykkt í bæjar-
stjóm Reykjanesbæjar 10. desem-
ber 1996 og tekið í notkun hinn 1.
apríl 1997.
86