Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 29
FÉLAGSMÁL
öllum sveitarfélögum en greiðslur fari fram ígegnum
skattakerfið á vegum ríkisins:
- Húsaleigubótakerfið næði til 165 sveitarfélaga með
um 268 þús. íbúa eða 100% landsmanna og 100% af
leiguhúsnæði í eigu annarra en ríkis og sveitarfélaga.
- Heildarupphæð bótanna verður um 450 millj. kr. en
nettóupphæð þeirra eftir að tekið hefur verið tillit til
skattalegra áhrifa um 320 millj. kr.
- Obeinn stuðningur rfkis og sveitarfélaga við leigj-
endur mun áfram nema um 400-500 millj. kr.
- Ríkið annist framkvæmd húsaleigubótakerfisins um
skattakerfið.
4. valkostur
Óbreytt kerfi frá því sem nú er en kerfið tekið upp hjá
öllum sveitarfélögum en greiðslur fari fram hjá sveit-
arfélögunum án þátttöku ríkisins:
- Húsaleigubótakerfið næði til 165 sveitarfélaga með
um 268 þús. íbúa eða 100% landsmanna og 100% af
leiguhúsnæði í eigu annarra en ríkis og sveitarfélaga.
- Heildarupphæð bótanna verður um 450 millj. kr. en
nettóupphæð þeirra eftir að tekið hefur verið tillit til
skattalegra áhrifa um 320 millj. kr.
- Óbeinn stuðningur ríkis og sveitarfélaga við leigj-
endur mun áfram nema um 400-500 millj. kr.
- Sveitarfélögin annist framkvæmd húsaleigubóta-
kerfisins með hefðbundnum aðferðum.
5. valkostur
Óbreytt kerfifrá því sem nú er en kerfið tekið upp hjá
öllum sveitarfélögum, greiðslur fari fram hjá sveitar-
félögunum án þátttöku ríkisins og húsaleigubœtur
nái til alls íbúðarhúsnœðis. Skattlagning bótayrði
aflögð:
- Húsaleigubótakerfið næði til allra sveitarfélaga og
alls íbúðarhúsnæðis óháð eignaformi þess.
- Heildarupphæð bótanna verður um 620 millj. kr.,
þ.e. 320 millj. nettó miðað við núverandi kerfi í öllum
sveitarfélögum að viðbættum um kr. 300 millj. nettó
vegna félagslegs íbúðarhúsnæðis sveitarfélaga o.fl.
- Óbeinn stuðningur ríkis og sveitarfélaga við leigj-
endur fellur niður að undanskildum niðurgreiddum
vöxtum vegna hluta leiguíbúða sveitarfélaga.
- Sveitarfélögin annist framkvæmd húsaleigubóta-
kerfisins með hefðbundnum aðferðum að því viðbættu
að allar leiguíbúðir á þeirra vegum yrðu leigðar á mark-
aðsleigu og húsaleigubætur greiddar vegna þeirra.
Tillögur fulltrúa sambandsins
Þótt bæta megi við ofangreinda valkosti nýjum út-
færslum hefur ekki þótt ástæða til þess að sinni. Fulltrú-
ar sveitarfélaganna telja að framkomnir valkostir lýsi
helstu atriðum sem rædd hafa verið í nefndinni og víðar
um endurbætur á húsaleigubótakerfinu.
Tillögur fulltrúa sveitarfélaganna eru eftirfarandi:
1. Að halda áfram greiðslu húsaleigubóta á vegum
sveitarfélaga á grundvelli endurbœtts kerfis.
Rökstuðningur:
• Húsaleigubótakerfið hefur reynst vel sem mikilvægt
úrræði fyrir tekjulága leigjendur til að standa undir
kostnaði við leiguhúsnæði.
• Framkvæmd laga um húsaleigubætur hefur tekist vel
al' hálfu sveitarfélaga. Nálægð þess við skjólstæðinga
kerfisins eykur skilvirkni og tryggir eins rétta fram-
kvæmd og nokkur kostur er miðað við núverandi og fyr-
irsjáanlegt skipulag á starfsemi rikis og sveitarfélaga.
2. Að húsaleigubœtur nái til alls fbúðarliúsnœðis í
öllum sveitarfélögum.
Rökstuðningur:
• Ekki er talið eðlilegt að húsaleigubætur nái einungis
til hluta sveitarfélaga og þar með til einungis hluta lands-
manna, sérstaklega m.t.t. þess að ríkissjóður hefur fram
til þessa tekið þátt í greiðslu bótanna. Jafnræði ríkir því
ekki milli allra landsmanna ef einungis sum sveitarfélög
greiða húsaleigubætur.
• Sé gert ráð fyrir því að allt íbúðarhúsnæði sem leigt
er út verði leigt á markaðsleigu/kostnaðarleigu er eðlilegt
að húsaleigubætur verði greiddar vegna alls íbúðarhús-
næðis. Þannig verði unnt að mæla þennan húsnæðis-
stuðning við leigjendur á nákvæman hátt og tryggja með
þeim hætti að stuðningurinn verði samræmdur til allra
sem á honum eiga rétt.
2. mynd. Heildargreiðslur húsaleigubóta
Ár Fjöldi íbúafjöldi ibúafj. sem hlutfall Greiöslur I
sveitarfélaga sveitarfélaga af heildaribfjölda millj. kr.
1995 28 158.009 59% 215
1996 35 167.556 63% 311
1997 39 173.553 65% 320
1998 165 267.809 100% 450
3. Að afnema eigi skattlagningu húsaleigubóta.
Rökstuðningur:
• Ekki getur talist í raun eðlismunur á stuðningi hins
opinbera við öflun íbúðarhúsnæðis hvort heldur er um
eignar- eða leiguhúsnæði að ræða. Vaxtabætur að upp-
hæð 3.300 millj. kr., niðurgreidd lán í félagslega íbúða-
kerfinu að upphæð 1.130 millj. kr. og óbeinar niður-
greiðslur leiguíbúða í eigu ríkis og sveitarfélaga að upp-
hæð 500 millj. kr. eða samtals 4.930 ntillj. kr. eru hús-
næðisstuðningur sem ekki er skattlagður á sama tíma og
húsaleigubætur að upphæð 311 millj. kr. eru skattlagðar
þannig að nettóstuðningurinn er um 214 kr. millj. eða
um 4% af heildarstuðningi hins opinbera á árinu 1996.
• Á grundvelli þess að auknar húsaleigubætur verði