Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 33
SKIPULAGSMÁL
Svæðisskipulag sveitarfélaganna
sunnan Skarðsheiðar
1992-2012
Guðrún Jónsdóttir, arkitekt FAI
Svæðisskipulag sveitarfélaganna sunnan
Skarðsheiðar 1992-2012 var gefið út í
vönduðu riti síðla árs 1994. Umhverfisráð-
herra staðfesti skipulagsáætlunina hinn 26.
apríl það ár, en þetta er fyrsta svæðisskipu-
lagsáætlunin sem hlýtur staðfestingu ráð-
herra.
Það kont í hlut Hermanns Guðjónssonar,
formanns samvinnunefndar um svæðis-
skipulag sunnan Skarðsheiðar, að rita for-
mála, en þar segir m.a.:
„Forsögu þessa verkefnis má rekja aftur
til ársins 1988. Þann 16. desember það ár
rituðu forsvarsmenn fimm sveitarfélaga í Borgarfjarðar-
sýslu bréf til Skipulags ríkisins þar sem farið var fram á
að gert yrði svæðisskipulag, er næði til þeirra allra.
Sveitarfélögin eru þessi: Akraneskaupstaður, Hvalfjarð-
arstrandarhreppur, Innri-Akraneshreppur, Leirár- og
Melahreppur og Skilmannahreppur. ... Hlutverk svæðis-
skipulags er að sýna í einstökum atriðum stefnumörkun
sveitarstjóma um þróun byggðar og landnotkun innan
svæðisins. Markmiðið er að móta samræmda stefnu og
samræma skipulag sveitarfélaganna innan svæðisins og
jafnframt að stuðla að hagkvæmri þróun
byggðar miðað við allar aðstæður svo sem
landfræðilegar, hagrænar og félagslegar.
Það er trú mín að í stórum dráttum hafi
náðst þau markmið sem sett voru við upp-
haf verkefnisins. Þá vænti ég þess að hér sé
lagður grunnur að enn öflugra samstarfi
sveitarfélaganna fimm en verið hefur og að
það samstarf eigi eftir að verða íbúum
þessa svæðis til mikilla hagsbóta.“
En víkjum þá að nokkrum efnisatriðum
áætlunarinnar.
Þar er gengið út frá því að íbúum svæð-
isins sunnan Skarðsheiðar fjölgi á skipulagstímabilinu
um 800-1000 manns miðað við tilteknar forsendur. Þar
með þarf atvinnutækifærum að fjölga á sama tíma um
600-700 ársverk ef full vinna á að haldast á svæðinu.
Áætlað er að svæðið verði allt eitt atvinnusvæði og að
sem flestir íbúar fái vinnu við sitt hæfi innan þess.
Helstu áherslur í atvinnumálum eru sem hér segir:
Fjölgun starfa í fiskvinnslu og matvælaiðnaði m.a.
vegna veiða og vinnslu á fleiri tegundum sjávardýra,
betri nýtingu sjávarafla og fullvinnslu hans, einkum er
95