Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 36

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 36
SKIPULAGSMÁL Belgholtshólma að Súlueyri. Jökulgarður í landi Fiskilækjar sem er merk jarðsögu- myndun og stærstu flóar sem eftir eru á svæðinu með sínu sérstaka lífríki eru einnig sýndir í friðunarlit. Mikilvægt er að draga þessi sérkenni svæðisins fram og auka þekkingu á þeim. Við það verður svæðið áhugaverðara og hættan á því að rnenn spilli verðmæt- unum, sem í því eru fólgin að eiga svæðin óspillt, verður minni. Samspil þéttbýlis og dreifbýlis á svæðinu styrkir það á margan hátt bæði hvað snertir verslun og þjónustu. Þá sjást einnig merki þessa samspils í atvinnumynstrinu. Þannig stunda t.d. margir sem í dreifbýlinu búa vinnu á Grundartanga, Akranesi og jafnvel í Borgarnesi sam- hliða búskap. Þá er bústofninn yfirleitt sauðfé og hestar. Svæðisskipulagsáætlunin gerir ráð fyrir því að íbúðar- byggðin þróist, einkum á Akranesi og í Innri-Akranes- hreppi. Þó er gert ráð fyrir vissri þéttbýlisþróun á Haga- mel og í Hlíðarbæ. Lóðum undir iðnaðarstarfsemi er Katanes, Miöfellsmúli og Skarðsheiöi í baksýn. Myndirnar sem greininni fylgja teiknaöi Guörún Jónsdóttir. fyrst og fremst ætlaður staður á Akranesi og Grundar- tanga, en svæðið við Litlasand og Miðsand getur þó þró- ast sem sérhæfður atvinnukjami. Hvað snertir verslun og þjónustu er gert ráð fyrir að þróunin verði fyrst og fremst á Akranesi. Aðrir þjónustu- kjamar verði Litli-Lambhagi og Hlaðir/Hlíðarbær. Nokkur ný sumarbústaðasvæði eru sýnd á skipulags- uppdrættinum. Áætlað er að sumarbústöðum fjölgi úr um 400 bústöðum í 800 bústaði á skipulagstímabilinu. Vakin er athygli í skipulaginu á ýmsum merkum sögu- og menningarminjum sem á svæðinu eru, en þær eru ófáar. Slíkt eykur mjög gildi svæðisins, vekur forvitni og skapar því sérstöðu bæði í hugum heimamanna og þeitra sem þar dvelja sem gestir. í lokakafla greinargerðarinnar er sett fram 3-5 ára framkvæmdaáætlun sem sveitarfélögin hafa komið sér saman um að vinna sérstaklega að. Nú þegar hefur sumu sem þar er getið um verið hrundið í framkvæmd og ann- að er á döfinni. í skipulagslögum er gert ráð fyrir því að skipulags- áætlanir séu endurskoðaðar með vissu millibili. í raun má segja að þær séu í stöðugri endurskoðun og endur- mati. Erfitt er að spá fram í tímann og áherslur og við- horf breytast ört. Engu að síður eða öllu heldur einmitt þess vegna eru þessar áætlanir svo mikilvægar. Allir verða að hafa sitt leiðarljós. Skipulagsáætlanir endur- spegla hið mögulega á hverjum tíma, það sem menn geta kontið sér saman um að setja á blað og vinna eftir í ná- inni framtíð. Það skipulag sem hér er sagt frá er fyrsta skipulagsáætlunin fyrir svæðið sunnan Skarðsheiðar. Enginn efi leikur á því að í næstu áætlun verður skyggnst dýpra og byggt á enn betri gögnum en hér varð við kom- ið. Samvinnunefnd og íbúum svæðisins, sem ég hafði töluverð samskipti við, skulu þökkuð góð kynni og ánægjulegt samstarf. 98

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.