Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 37

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 37
SKIPULAGSMÁL Iðnaðarsvæðið á Grundartanga Magnús H. Ólafsson, arkitekt FAl Aldrei sem fyrr er áætlanagerð hjá sveitarfélögum nauðsynleg og gerð skipulagsuppdrátta þar sem reynt er að sjá inn í framtíðina getur verið þeim mikill bakhjarl í baráttunni við að halda í atvinnutækifæri svo og í að fjölga þeim. „Getur verið“ segi ég, því mörg sveitarfé- lög nota ekki þetta stjómunartæki, sem skipulag er, sér til framdráttar. Það er ekki einungis að samþykkt skipu- lag sé stjómunartæki heldur er sú þekking sem skapast við upplýsingasöfnun, úrvinnslu upplýsinga og tillögu- gerð mikilvæg fyrir sveitarstjórnarmenn og góður grunnur til að taka ákvarðanir. Samþykkt skipulag breytir óvissu í öryggi. Eins og kemur fram í grein Guðrúnar Jónsdóttur kollega míns í þessu blaði staðfesti umhverfisráðherra svæðisskipulag sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar hinn 26. apríl 1994. Svæðisskipulagið er viðamikið verk og í raun tímamótaverk vegna staðfestingarinnar. Mikil- vægt var að öll sveitarfélögin vom sammála um að af- greiða skipulagið til staðfestingar og sýndu þar með mikla samstöðu og einurð. Undirritaður hvetur sveitar- stjómarmenn að kynna sér skýrsluna og nota hana sem viðmiðun í áætlanagerð heima í héraði. Eitt markmið svæðisskipulags sveitarfélaganna sunn- an Skarðsheiðar var að skapa grunn að áframhaldandi skipulagsvinnu innan svæðisins. Núverandi iðnaðar- svæði á Grundartanga er í Skilmannahreppi, sem er eitt þessara fimm sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar. I svæðisskipulaginu var gert ráð fyrir að iðnaðarsvæðið stækkaði miðað við staðfest aðalskipulag frá 1975, sem gert var í tengslum við uppbygginguna á Járnblendi- verksmiðjunni. A miðju ári 1995 fór Skilmannahreppur þess á leit við undirritaðan að safna gögnum og undirbúa áframhald- andi skipulagsvinnu á iðnaðarsvæðinu á Gmndartanga á grundvelli svæðisskipulagsins. Á haustmánuðum barst svo fyrirspum frá Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytis- ins og Landsvirkjunar (MIL) til Skilmannahrepps um hvort iðnaðarsvæðið gæti tekið á móti álveri. Um það leyti hófust viðræður MIL og Columbia-álfyrirtækisins í Bandaríkjunum. Skipulagsvinnan tók þá mið af þessari ósk og í framhaldi af henni gerðist Hvalfjarðarstrandar- hreppur aðili að skipulagsvinnunni og hafa þessi tvö sveitarfélög staðið saman að skipulagsmálum á iðnaðar- svæðinu á Gmndartanga. Sérstakur áhugi Columbia á þessu svæði grundvallað- ist á þeirri staðreynd að til var staðfest svæðisskipulag af svæðinu sem gerði ráð fyrir mögulegum stóriðnaði, að höfn var til staðar og að á svæðinu var stóriðnaður fyrir og að hefð er fyrir rekstri slíks fyrirtækis. Vegna starf- rækslu Jámblendiverksmiðjunnar á Grundartanga myndi álver raska samfélagsgerðinni minna, þ.m.t. atvinnu- skiptingu, en ef álverið yrði byggt upp á ónumdu landi. Ekki spillti fyrir áform um vegstyttingu um Hvalfjörð í formi jarðganga undir fjörðinn frá Saurbæ á Kjalamesi að Innra-Hólmi í Innri-Akraneshreppi. Samhliða auglýsingu á mati á umhverfisáhrifum á rekstri álvers á Grundartanga í janúar 1996 var auglýst nýtt deiliskipulag á iðnaðarlóðum. Með afgreiðslu um- hverfisráðherra á matsskýrslunni í júní 1996 hófst loka- vinnsla við skipulag á svæðinu. Skipulagsvinnan fólst í að gera smávægilegar breytingar á svæðisskipulaginu, endurskoða og endurvinna staðfest aðalskipulag á grund- velli svæðisskipulagsins og ljúka við nýtt deiliskipulag þriggja iðnaðarlóða. Þessari vinnu lauk með auglýsingu á deiliskipulaginu í desember 1996. Samþykkt gildandi deiliskipulagskort er birt með þessari grein. Eins og sést er gert ráð fyrir þremur iðnaðarlóðum á svæðinu, einni lóð fyrir verksmiðju Jámblendifélagsins, einni lóð fyrir álver Norðuráls og einni lóð fyrir ofan lóð Jámblendifé- lagsins, sem hefur nú verið úthlutað til Jámblendifélags- ins. 1 þessu deiliskipulagi er ekki gert ráð fyrir fleiri iðn- aðarlóðum enda er skipulagt svæði nær uppurið fyrir þessar tvær verksmiðjur. Nokkur áhugi er hjá ýmsum fyrirtækjum í þjónustu á lóðum á Gmndartanga en sam- kvæmt núgildandi skipulagi er ekki hægt að úthluta fleiri lóðum. Fyrirsjáanlegt er að stækka þarf Grundartanga- höfn, ekki síst vegna tíðari skipakoma, og áætlanir um stækkunina era fullmótaðar en framkvæmdir ekki hafn- ar. Hafnarkanturinn verður lengdur um 195 metra og verður samtals 250 metra langur. Ákvörðun um staðarval álvers á Grundartanga byggð- ist ekki hvað síst á því að til var staðfest svæðisskipulag og það verður aldrei nægjanlega undirstrikað hversu mikilvægt það er fyrir sveitarfélög, eins og er í þessu til- felli fyrir sunnan Skarðsheiði, að hafa fastan, sameigin- legan homstein, sem hægt er að nota til þess að skipu- leggja fyrir framtíðina. Framkvæmdir Norðuráls hf. á Grundartanga eru hafn- 99

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.