Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 41

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 41
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM Fundarmenn og gestir í Lystigaröinum í Neskaupstaö. Sigurður Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri SSA, flutti fundinum kveðjur og ámaðaróskir og þakk- aði gott samstarf fyrri ára. Jón Kristjánsson flutti fundinum kveðjur og ámaðar- óskir þingmanna Austurlands og þakkaði gott samstarf. Ennfremur heimsóttu Páll Pétursson félagsmálaráð- herra og kona hans, Sigrún Magnúsdóttir, aðalfundinn og ávarpaði hann fundarmenn. Fjallaði hann m.a. um flutning gmnnskólans til sveitarfélaganna, er hann taldi vel heppnaðan, og nefndi fleiri málaflokka, t.d. málefni fatlaðra og aldraðra, sem einnig gætu vel átt heima hjá sveitarfélögunum. Fjölþættir möguleikar fjóröungsins - hlutverk Þróunarstofu Austurlands Fyrri dag fundarins vom tvö mál til umfjöllunar. Flutt vom þrjú framsöguerindi um hið fyrra. Snorri Styrkársson, hagfræðingur í Neskaupstað og formaður Atvinnuþróunarfélags Austurlands, flutti er- indi sem nefndist „Þróa viljum þrjú í ár“. Meginefni er- indisins var að til þess að bæta atvinnuástandið í fjórð- ungnum yrði að styrkja grunninn, t.d. með aukinni og bættri menntun. Gunnar Vignisson, framkvæmdastjóri Þróunarstofu Austurlands, flutti framsöguerindi er hann nefndi „Aura festum austan lands“. Gerði hann m.a. grein fyrir svo- nefndu fjárfestingarverkefni á vegum heimamanna og stofnana á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins. Ennfremur kynnti hann nýjan samning milli Byggða- stofnunar og Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands um þriggja ára þróunarverkefni. Þjóöarbúsins þríöja stoð Trausti Valsson skipulagsfræðingur flutti framsöguer- indi um hið síðara efnið og nefndi það „Þjóðarbúsins þriðja stoð“. Fjallaði hann m.a. um möguleika á því að tengja Austurland samgönguæðaneti landsins á skilvirk- ari hátt en nú er, t.d. með gerð sérstakra hálendisvega. Samhliða erindi Trausta var lögð fram ritgerð hans um sama efni, sem nú er til umfjöllunar hjá samgöngunefnd SSA. Austurland og nýting auölindanna Þorvaldur Jóhannsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði og for- maður OSSA, orku- og stóriðjunefndar SSA, flutti erindi um breytta stöðu í orkumálum og velti fyrir sér hvað væri framundan. „Fór hann röskan vítt um sviðið“, eins og segir í fundargerðinni „og taldi nauðsynlegt að hefjast handa hið fyrsta um nýtingu orkulinda Austurlands." Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra fjallaði þessu næst um orkuöflun, orkudreifingu og orkusölu og möguleika Austfirðinga á þessu sviði. Sagði hann margt að gerast í orku- og iðnaðarmálum enda vöxtur og jafnvel þensla í efnahagsmálum. Flest væri þó enn á athugunar- og um- 1 03

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.