Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 43
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
Samþykktir adalfundar-
ins
Aðild að ákvarðanatöku um
virkjanir
í einni af mörgum samþykktum
aðalfundarins var þess krafist að
stjómvöld geri orku- og stóriðju-
nefnd SSA, starfsnefnd samtaka
sveitarfélaga á Austurlandi í orku-
málum, kleift að koma með virk-
ari hætti að stefnumótun og
ákvarðanatöku um virkjanir og
nýtingu orkunnar í fjórðungnum.
I annarri ályktun var tekið undir
erindi Reyðarfjarðarhrepps vegna
fjárveitingar til umhverfismats á
Sómastöðum til stóriðjunýtingar.
Atvinnuþróun
Fundurinn fagnaði samstarfi
aðildarsveitarfélaga Atvinnuþró-
unarsjóðs Austurlands og
Byggðastofnunar um fjármögnun
þriggja ára þróunarverkefnis á vegum Atvinnuþróunar-
félags Austurlands. Jafnframt var hvatt til enn frekara
samstarfs þessara og fleiri aðila á sviði atvinnuþróunar í
fjórðungnum.
Fagnað var eflingu Þróunarstofu Austurlands og
stjóm SSA og stjómvöld hvött til að halda vöku sinni og
stuðla með öllum tiltækum leiðum, m.a. með aukinni
menntun, að eflingu atvinnulífs í fjórðungnum.
Hvatt var til aukins starfs á sviði vöruþróunar og
markaðsmála sem tengjast þeim sviðum, sem sterkust
eru fyrir í undirstöðuatvinnugreinunum.
Sveitarfélög eru hvött til að gæta þess við útboð á
þeirra vegum að við val á verktökum sé frekar litið til
þeirra er bjóða íslenska framleiðslu.
Rannsóknum á jarðgangagerð haldið áfram
Aðalfundurinn skoraði á Alþingi að sjá til þess að
haldið yrði áfram rannsóknum á jarðgangagerð á Aust-
urlandi, sem hafi það að markmiði að rjúfa vetrarein-
angrun byggðarlaga og stuðla að atvinnuuppbyggingu.
Rannsóknum verði hraðað svo sem unnt er þannig að
taka megi ákvörðun um verkefnaröð og hefjast handa
sem fyrst. í þessu sambandi er minnt á fyrri samþykkt
Alþingis um að Austfjarðagöng skuli koma næst á eftir
Vestfjarðagöngum en nú þegar hafi Hvalfjarðargöng
verið tekin fram fyrir.
Vegamál
Fundurinn mótmælti öllum áformum um niðurskurð
til vegamála á Austurlandi og lítur svo á að enn skorti
mikið á að vegakerfi fjórðungsins sé komið í ásættanlegt
horf. Nær væri að Austfirðingar fengju stærri hluta af
Fyrrverandi formenn og framkvæmdastjórar SSA ásamt mökum voru i afmælishófinu kali-
aöir upp á sviö. Þar var þeim afhent viöurkenning fyrir störf í þágu sambandsins.
vegafé, segir í ályktun fundarins um samgöngumál.
Itrekað var að breikka þurfi einbreitt slitlag og ein-
breiðar brýr á þjóðvegum í fjórðungnum og bent á mikil-
vægi þess að hraðað yrði framkvæmdum á þeim vega-
köflum sem enn eru óuppbyggðir í kjördæminu sunnan
Reyðarfjarðar.
Hvatt var til athugunar á hagkvæmni nýs vegar og brú-
ar yfir Homafjarðarfljót, ítrekaðar fyrri samþykktir um
að nýr vegur frá þéttbýlinu í Vopnaftrði út að Hellisheiði
verði bundinn slitlagi eins og aðrir nýir vegir og skorað á
Vegagerðina að sjá til þess að Hellisheiði eystri verði
haldið opinni yfir vetrartímann eins og öðmm fjallveg-
um milli byggða á Austurlandi. Lögð var áhersla á að
fjármagn verði tryggt til vegagerðar í Heiðarenda svo
bjóða megi verkið út og ljúka því sumarið 1998 eins og
ráð sé fyrir gert.
Hugmyndum Trausta Valssonar um hálendisveg var
vísað til samgöngunefndar SSA til umfjöllunar.
Flugmál
Fagnað var því samráði sem tekist hefði milli heima-
manna og flugmálayfirvalda, ítrekað að bæta þurfi sem
fyrst aðflugsskilyrði við Homafjarðarflugvöll og fagnað
ákvörðun um að setja klæðningu á flugvöllinn á næsta
ári.
Jafnframt minnti fundurinn á að ljúka þurfi frágangi
við bflastæði og aðkomu á flugvellinum á Egilsstöðum.
Samskipti ríkis og sveitarfélaga
Aðalfundurinn mótmælti þeim vinnubrögðum sem
viðhöfð hefðu verið á Alþingi við breytingar á lögum um
framhaldsskóla að ekkert tillit skyldi tekið til ábendinga
1 05