Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 44
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
fjárlaganefnd Alþingis hvött til að
styðja sveitarfélög fjárhagslega
við fomleifaskráningu í landinu.
Barátta gegn áfengis- og fíkni-
efnavandanum
Fundurinn skoraði á ríki og
sveitarfélög að taka höndurn sam-
an og hrinda af stað sameiginlegu
átaki í baráttunni gegn áfengis- og
fíkniefnavandanum.
og athugasemda Sambands íslenskra sveitarfélaga þegar
lagaákvæðum var breytt á þann veg að nú ber sveitarfé-
lögum að kosta 4/10 í byggingu heimavista franthalds-
skóla í stað þess að áður greiddi ríkissjóður byggingar-
kostnaðinn að fullu.
„f>að er ljóst að vinnubrögð af þessu tagi stuðla ekki
að betri samskiptum þessara aðila en mjög mikilvægt er
nú, þegar umræðan um yfirtöku verkefna frá ríki til
sveitarfélaga er allsráðandi, að traust ríki milli samn-
ingsaðila," sagði í greinargerð með tillögunni. „Sveitar-
félögin sætta sig ekki við að ríkisvaldið ákveði einhliða
útgjaldaauka hjá þeim án þess að ráð sé gert fyrir tekju-
stofnum á móti.“ Þá var samþykkt viljayfírlýsing fund-
arins um að beðið verði með allar meiri háttar breytingar
á samskiptum ríkis og sveitarfélaga þar til árangur og
ávinningur af flutningi grunnskólanna væri kominn í
ljós.
Háskólamenntun á Austurlandi
Stjóm SSA var á fundinum falið að undirbúa í sam-
vinnu við stjómvöld og forsvarsmenn skóla á háskóla-
stigi að koma á fót háskólamenntun á Austurlandi í
tengslum við austfirskt atvinnulíf og til að efla þekkingu
og menntun í fjórðungnum.
Embœtti minjavarðar og fornleifaskráning
í ályktun var fagnað þeim áfanga sem náðst hefði með
samningi milli Þjóðminjaráðs og SSA um embætti
minjavarðar á Austurlandi og Þjóðminjasafn íslands og
F réttaþjónusta
Fundurinn samþykkti að lýsa
yfir ánægju sinni með góða frétta-
þjónustu Stöðvar 2 í fjórðungnum.
Jafnframt lýsti fundurinn yfir
furðu sinni á því að Ríkissjón-
varpið skuli ekki enn telja sig hafa
fjárhagslega burði til þess að hafa
fréttaritara og tökumann í fullu
starfi á Austurlandi.
Jafnframt er lýst megnri
óánægju með að Ríkisútvarpið
hafi ekki enn komið hlustunarskil-
yrðum Rásar 1 á Austurlandi í
Stjórn SSA
í stjóm SSA til eins árs voru kjörnir sem aðalmenn
Broddi B. Bjamason, bæjarfulltrúi á Egilsstöðum, sem er
formaður, Ólafur K. Sigmarsson, hreppsnefndarmaður á
Vopnafirði, bæjarfulltrúarnir Davíð Ó. Gunnarsson á
Seyðisfirði, Benedikt Sigurjónsson og Steinunn L. Aðal-
steinsdóttir, Neskaupstað, Jóhanna Hallgrímsdóttir,
hreppsnefndarfulltrúi á Reyðarfirði, sveitarstjóramir Al-
bert Ó. Geirsson á Stöðvarfirði og Rúnar Björgvinsson á
Breiðdalsvík og Ólafur Sigurðsson, hreppsnefndarmaður
í Hofshreppi.
Einnig voru kosnar til eins árs orku- og stóriðjunefnd
SSA og stjóm Safnastofnunar Austurlands (SAL), skip-
uð fimm fulltrúum hvor, samgöngunefnd SSA, skipuð
átta fulltrúum, tveir endurskoðendur, fjórir fulltrúar á
ársfund Landsvirkjunar, einn fulltrúi í stjóm Ferðamála-
samtaka Austurlands og einn í rekstrarstjóm Heilbrigðis-
eftirlits Austurlands.
Næsti aöalfundur á Fáskrúösfiröi 28. og
29. ágúst
Albert Kemp, oddviti Búðahrepps, bauð fundarmönn-
um til næsta aðalfundar á Fáskrúðsfirði. Fundurinn hefur
nú verið ákveðinn dagana 28. og 29. ágúst.
Þeir mynduöu kvartett í afmælishófinu, taliö frá vinstri, Þorvaldur Jóhannsson, bæjarstjóri
á Seyöisfiröi, Sturlaugur Þorsteinsson, bæjarstjóri Hornafjaröarbæjar, Smári Geirsson, for-
seti bæjarstjórnar Neskaupstaöar, og Ásbjörn Guðjónsson, bæjarfulltrúi á Eskifiröi og fv.
stjórnarmaður SSA.
viðunandi horf.
1 06