Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 49

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 49
FRÆÐSLUMÁL Hvað segja heimamenn um stöðu og þró- un sérkennslumála í grunnskólanum við yfirtöku sveitarfélaga á þessum málaflokki? Þættir úr könnun um menntamál Berit H. Johnsen, candpolit. Hver telst vera helsti ávinningur af því að skapa menntunarskilyrði fyrir nemendur sem þurfa á sér- kennslu að halda? Hvaða atriði á að þróa áfram til að bæta þau? Þessar spumingar voru meðal annarra sem lagðar voru fyrir fræðslustjóraemb- ættið og skólastjóra í tólf grunnskól- um á Austurlandi á vorönn 1995. í greininni beinist athyglin að hug- myndum þáv. fræðslustjóra og skólastjóra að stöðu og þróun sér- kennslumála og þörf heimaskóla fyrir samstarf við aðra aðila. Hér er um að ræða viðtalskönnun sem fjallar um þjónustu við nem- endur í heimaskóla sem þurfa á sér- kennslu að halda. Þá var umræða í fullum gangi um yfirtöku sveitarfé- laga á öllum málefnum sem varða grunnskóla, þar á meðal verkefnum fræðsluskrifstofa, svo sem úthlutun sérkennslustunda, ráðgjöf og eftirliti með sérkennslu. Eins og komið hef- ur fram í fyrri tölublöðum Sveitar- stjórnarmála er yfirtaka sveitar- stjóma á þessum málaflokki nú um garð gengin (Sjá m. a. Sveitarstjóm- armál nr. 2/1996). í framhaldi af því hafa sveitarstjómir valið ólíkar leið- ir við framkvæmd þeirra málefna sem fræðsluskrifstofur báru ábyrgð á fyrir yfirtöku. I sumum umdæm- um er verkefnunum skipt milli margra smærri skólamálaskrifstofa, í öðrum hafa sveitarstjómir myndað samstarf um eina eða fáar slíkar ein- ingar. A tímamótum sem þessum er eðlilegt að staða sérkennslu, ráð- gjafar og samstarfs milli skóla og annarra stofnana sé metin og endur- skoðuð. Þó að könnunin, sem sagt verður frá hér, nái einungis til eins umdæmis, geta niðurstöður og spurningar, sem vakna í kjölfar hennar, væntanlega orðið að gagni við stöðumat og endurskoðun sér- kennslustarfs í öðrum sveitarfélög- um. I þessari grein mun ég fyrst fjalla um tildrög þessarar könnunar og tengsl við aðrar kannanir. Aðal- markmið hennar, framkvæmd og niðurstöður verða kynntar í stuttu máli. Meginefni greinarinnar mun, eins og komið hefur fram, fjalla um hugmyndir þáv. fræðslustjóra og skólastjóra um stöðu og þróun sér- kennslumála í heimabyggð. Að lok- um mun ég setja fram nokkrar til- lögur að því hvemig hægt væri að nýta niðurstöður sem þessar við mat og endurskoðun skólastarfs. Tildrög könnunarinnar og tengsl viö aörar kannanir Könnun sú sem hér er greint frá var gerð fyrir Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra á Austurlandi. Hún er hluti af stærri könnun um þróun heildstæðrar og einstaklingsmiðaðr- ar þjónustu fyrir fatlaða í heima- byggð. Markmiðið var að lýsa stöð- unni þegar könnunin var fram- kvæmd í ljósi þróunar síðustu ára. Heildarkönnunin tók til aðstæðna og þjónustu við fatlaða á sviði at- vinnu, búsetu, félagslegrar þjónustu og menntunar. Þessi könnun, sem var um menntamál grunnskóla, náði til Fræðsluskrifstofu Austurlands og tólf grunnskóla í þeim tíu sveitarfé- lögum á Austurlandi sem voru í úr- taki heildarkönnunarinnar. Skýrsla könnunarinnar kom út 1996 á veg- um Svæðisskrifstofunnar (Johnsen 1996)." Markmiö Markmið könnunarinnar var skipt í fjóra þætti: • Að kanna þróun og stöðu sér- kennslumála í heimabyggð. • Að athuga sérstaklega hvernig ábyrgð skiptist/er álitið að skiptist milli aðila sem vinna að sérkennslu- málum. • Að kanna þróun og samvinnu innan sveitarfélaga og landsfjórð- ungs um þjónustu við nemendur sem fá sérkennslu. • Að leita eftir hugmyndum þeirra 1 1 1

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.