Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 51

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Síða 51
FRÆÐSLUMAL Fötfuö börn og ófötluö saman í Egilsstaöaskóla. vinnu og umfjöllun um þessi efni. Fjöldi ábendinga um þörf fyrir ráð- gjöf, námskeiðahald, menntun, þró- unarverkefni og samvinnu um sér- kennslumál styrkir þessar niðurstöð- ur. Það sýnir einnig að starfsmenn grunnskólanna gera sér grein fyrir þessari þörf og hafa hug á að halda áfram þróun sérkennslumála. • Mikil áhersla var lögð á þörf fyrir fræðslu- og ráðgjafarþjónustu grunnskóla og bent á mikilvægi þess að bæta þessa þjónustu. Mörg- um hagnýtum ábendingum var komið á framfæri í þessu sambandi. • Margar upplýsingar og ábending- ar um samstarf menntamála-, félagsmála- og heilsugæsluaðila, leikskóla, grunnskóla, framhalds- skóla, sveitarfélaga og atvinnulífs, fræðsluskrifstofu og Svæðisskrif- stofu málefna fatlaðra benda til að skólafólk í heimahéraði og fræðslu- yfirvöld leggi áherslu á að styrkja þróun og samvinnu í málefnum fatl- aðra innan fjórðungsins. Einnig komu fram skýrar óskir um að sam- starf við sérstofnanir á vegum rikis- ins yrði aukið og bætt. • Margar upplýsingar og ábending- ar, sem varða samstarf fleiri aðila innan og utan skólans í heimahér- aði, benda til þess að mikil áhersla sé lögð á að kennsla og önnur þjón- usta við nemendur með sérkennslu- þarfír eigi að fara fram í heimahér- aði og að samstarf um þetta sé þegar komið vel af stað í nokkrum sveitar- félögum. Hugmyndir um þróun sér- kennslumáia í umdæminu Eins og fram kom framar í grein- inni var fjórða markmið könnunar- innar að leita eftir hugmyndum þeirra sem starfa í grunnskólum um áframhaldandi þróun sérkennslu- mála í fjórðungnum. I þessum kafla verður greint frá mati á þróun sér- kennslumála fram til dagsins í dag og hugmyndum um áframhaldandi þróun. Viðmælendur voru spurðir hvem þeir teldu vera helsta ávinninginn af því að skapa menntunarskilyrði fyrir nemendur sem þurfa á sérkennslu að halda í grunnskólum umdæmis- ins síðan lög um gmnnskóla öðluð- ust gildi árið 1974. Fræðslustjóri benti sérstaklega á tvennt: • framboð á sérkennslunámi fyrir austan • tilboð Kennaraháskóla íslands um annað ár í sérkennslufræðum. Frá viðmælendum í gmnnskólum úrtaksins komu eftirtalin atriði: • aukinn fjöldi sérkennslustunda (7 skólar) • viðhorfsbreyting (6 skólar) • framhaldsnám í sérkennslufræð- um (5 skólar) • viðhorfsbreyting í samfélaginu (2 skólar) • viðhorfsbreyting hjá kennurum (2 skólar) • ráðgjöf á vegum fræðsluskrifstofu (2 skólar) • betri kennaramenntun (2 skólar) Eftirtalin atriði voru nefnd einu sinni: Tilkoma reglugerðar um sér- kennslu, aukin umræða um sér- kennslu, viðhorfsbreyting hjá for- eldrum, sérkennslunám á Austur- landi, meiri sérkennslu inn í bekk, þátttaka sveitarstjórna í kostnaði, aukið framboð á námsgögnum til sérkennslu og aukin sérkennslu- fræðileg þekking og fæmi. Spurt var hvaða atriði viðmæl- endur teldu að ætti að þróa áfram til að tryggja og bæta kennslu nem- enda í heimaskóla sem þurfa á sér- 1 1 3

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.