Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 53

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 53
FRÆÐSLUMAL ingar eru nauðsynlegar. Fjöldi atriða sem fram koma bendir til þess að ít- arleg umræða hafi átt sér stað í mörgum grunnskólum úrtaksins um sérkennslumál. Fjölbreytni svara og það að einungis fá atriði skera sig úr við að vera nefnd í mörgum skólum getur bent til þess að litlar umræður um sérkennslumál eigi sér stað milli skóla umdæmisins. Önnur ástæða fyrir þessu getur verið að aðstæður og þarfir eru ólíkar rnilli skóla. At- riði sem komið hafa fram í síðustu þrem spumingum, sem greint hefur verið frá í þessum kafla, eru að mörgu leyti endurtekningar á ábendingum sem komið hafa fram við spumingum um þróun ráðgjafar og samvinnu framar í skýrslunni og styrkja því mikilvægi þessara þátta í mati viðmælenda. Sömu atriði koma fram hjá viðmælendum í grunnskólanum og hjá fræðslu- stjóra. Auk þess koma fram mörg atriði hjá skólunum sem fræðslu- stjóri nefnir ekki, enda fjöldi viðtala í grunnskólum tólf á móti einu við- tali við fræðslustjóra. Öllum svömm við spurningunum þremur er hér komið á framfæri. Nánari umfjöllun um þær mun falla saman við loka- umfjöllun skýrslunnar hér á eftir. Hugmyndir um notagildi könnunarinnar Að lokum sný ég aftur að spum- ingu sem sett var fram í inngangi greinarinnar. Þar sem aðalmarkmið könnunarinnar, sem hér um ræðir, var að meta stöðu og þróun sér- kennslumála í grunnskólum eins umdæmis, er spumingin hvort nið- urstöður hennar geti komið að gagni fyrir önnur sveitarfélög. Ég tel svo vera. Allir grunnskólar í landinu starfa samkvæmt sömu opinberum markmiðum. Upplýsingar frá hlið- stæðum könnunum annars staðar á landinu og frá öðrum löndum hafa verið gagnlegar til samanburðar á ýmsum sviðum könnunarinnar, en á sumum sviðum hafa ekki fundist upplýsingar sem henta til saman- burðar2’. Ætla má að upplýsingar sem fram koma í þessari skýrslu geti gagnast við hliðstæðar kann- anir í öðmm um- dæmum landsins og einnig til sam- anburðar við önnur lönd. Niðurstöður úr þessari skýrslu má einnig bera saman við upp- lýsingar um önn- ur skólastig, svo sem leikskóla og framhaldsskóla, við upplýsingar fatlaðra sjálfra og aðstandenda ásamt upplýsing- um frá sveitar- stjómum. I framsetningu skýrslunnar hefur verið reynt að koma til skila áherslumun í mati og tillögum fremur en að flokka svör við- mælenda í fá at- riði. Tilgangur- inn var að sýna fram á þann fjölbreytileika í þörfum og hugmyndum sem ríkir í mála- flokknum. Þær upplýsingar sem fram komu í þessari skýrslu voru ekki tæmandi. Þær gefa heldur ekki örugga vísbendingu um hugsanlega forgangsröðun framtíðarverkefna. En lýsingar og tillögur viðmælenda má nota sem grunn að áframhald- andi skipulagsvinnu. Sem dæmi má nota listann yfir tillögur að áfram- haldandi þróunarstarfi, sem greint var frá í kaflanum um hugmyndir viðmælenda um þróun sérkennslu- mála. Starfsmenn og fulltrúar gmnnskóla, skólanefnda og sveitar- stjóma mætti biðja um að forgangs- raða tillögunum og bæta við nýjum atriðum. Notagildi könnunarinnar miðast fyrst og fremst við eftirtalin atriði: Hvort aðilar í grunnskólum og sveitarfélögum landshlutans bera Náttúrufræöikennsla í 1. bekk í Egilsstaðaskóla. saman stöðu og þróunarhugmyndir í sínum skóla og heimasveit eða -bæ við niðurstöðurnar sem hér koma fram. Hvort niðurstöður skýrslunnar mynda grundvöll fyrir opinbera stefnuumræðu í þessum málaflokki. Hvort framkomnar upplýsingar geta myndað gmnn að forgangsröð- un verkefna. Hvort haldið verður áfram að kanna nánar, útfæra og framkvæma atriði sem einungis hafa verið lítil- lega kynnt í þessari könnun. Heimildir Befring, Edvard og Nilsen, Sven. 1990. Programevaluering og kvalitetsstyrk- ing - med særlig vekt pá spesialund- ervisning. I Granheim, Marit o. fl. (rit- stj.) Utdanningskvalitet - styrbar eller ustyrlig? Tano. Edelstein, Wolfgang. 1987. Stór skóli - 1 1 5

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.