Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 56

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 56
RÁÐSTEFNUR Suöurnesjamenn viö borö, taliö frá vinstri, María Anna Eiríks- dóttir hreppsnefndarfulltrúi og Siguröur Jónsson sveitarstjóri, bæöi í Geröahreppi, og Óskar Gunnarsson bæjarfulltrúi og Sig- uröur Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Sandgeröi. „Hvernig viö förum aö því aö fjölga svona í Kópavogi? Já, þaö skal ég segja ykkur." Frá vinstri, Ólafur Kristjánsson, bæjar- stjóri i Bolungarvík, Kristján Guömundsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, og Ellert Eiríksson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Skagamenn, taliö frá vinstri, bæjarfulltrúarnir Ingvar Ingvarsson, Guömundur Páll Jónsson og Guöbjartur Hannesson, Jón Pálmi Pálsson bæjarritari, Gunnar Sigurösson bæjarfulltrúi og Gísli Gislason bæjarstjóri. nema síður væri, sagði Vilhjálmur. „Það er gífurlega mikilvægt að flutningur alls reksturs grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga takist vel. Ekki eingöngu vegna þess að takist þetta verkefni vel hjá sveitarfélögunum þá aukist líkur á því að fleiri verkefni verði flutt og með því verði ríkisvaldið skert en sveitar- stjórnarstigið eflt, heldur enn frekar vegna þess að fjöregg okkar er grunnmenntun bama okkar og þar ligg- ur framtíð íslenskrar þjóðar og framfarasókn á næstu öld. Allt undirbúningsstarf sveitarfélaganna vegna máls- ins svo og frammistaða þeirra í málefnum grunnskólans á undanfömum áratugum sýnir að sveitarfélögunum er fullkomlega treystandi til að bera ábyrgð á framtíð grunnmenntunar allra bama í landinu.“ Formaðurinn vék næst að málefnum fatlaðra og kvað flutning þess málaflokks að ýmsu leyti auðveldari en yf- irfærslu grunnskólans þótt hann sé að mörgu leyti ólík- ur. „Fjárhagslega er málefnið ekki eins stórt og starfs- mennimir sem að verkefninu vinna eru færri. Ýmis fé- lagasamtök gegna þýðingarmiklu hlutverki varðandi þjónustu og rekstur á sviði málefna fatlaðra sem tryggja þarf að geti sinnt því hlutverki áfram. Þjónusta við fatl- aða er staðbundin. Eðlilegt er því að staðbundið stjórn- vald, sveitarstjómimar, fari með stjóm málaflokksins og beri ábyrgð á þjónustunni. Með sama hætti og yfirfærsla grunnskólans myndi þessi yfirfærsla styrkja og efla sveitarstjómarstigið og færa ákvarðanatöku og ábyrgð nær þeim sem þjónustunnar njóta.“ Vilhjálmur ræddi síðan félagslega íbúðakerfið, húsa- leigubætur, breytingar sem þá höfðu verið boðaðar á Líf- eyrissjóði starfsmanna ríkisins og skýrði frá viðræðum sem yfir stæðu milli stjómar sambandsins og ríkisins um fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga og breytingar á verkaskiptum ríkis og sveitarfélaga í framhaldi af sam- þykkt Alþingis á lögum um fjármagnstekjuskatt, svo sem frá var skýrt í seinasta tölublaði. Þá kvað hann óútkljáð eitt samskiptamál rxkis og sveit- arfélaga sem væri fjárvöntun Innheimtustofnunar sveit- arfélaga. „Það er okkur íslendingum fremur fjarlægt að sýna aðgát í fjármálum," sagði Páll Pétursson félagsmálaráð- herra í ávarpi sínu til ráðstefnunnar. „Við emm að þessu leyti ólíkir t.d. frændum okkar Norðmönnum. Við látum okkur hafa það að reka okkar sameiginlega húshald, rík- issjóð, með halla ár eftir ár með stórfelldri skuldasöfnun. Sama hendir alltof mörg sveitarfélög og raunar fjölda fjölskyldna." Hann taldi reyndar að nokkur stefnubreyt- ing hefði orðið á á síðustu misserum, m.a. hjá sumum sveitarfélögum og staða þeirra hefði batnað þótt betur þyrfti að gera ,,og sem betur fer eiga sum hallareknu sveitarfélögin ónýtta tekjustofna." Páll kvað skuldasöfn- un heimilanna alvarlegt áhyggjuefni og gerði grein fyrir stofnun og starfsemi Ráðgjafarstofu um fjármál heimil- anna. Einnig fjallaði hann um úttekt á Húsnæðisstofnun, 1 1 8

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.