Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Qupperneq 16
RAÐSTEFNUR
Ráðstefna um kosti og galla einka-
framkvæmda á vegum sveitarfélaga
haldin í Hafnarfirði 17. maí
Frá ráðstefnunni í Frfmúrarahúsinu í Hafnarfirði. Vinstra megin borðsins sitja bæjar-
stjórarnir Magnús Gunnarsson í Hafnarfirði og Sigurður Geirdal í Kópavogi, Bragi
Michaelsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, Jónas Egilsson, framkvæmdastjóri SSH, Ólafur
Ólafsson, bæjartæknifræðingur í Vestmannaeyjum, Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, Þorbergur Karlsson, verkfræðingur í VSÓ Ráðgjöf, og Árni Kjartans-
son, arkitekt í Glámu/Kím arkitektum. Handan borðsins, talið frá vinstri, Sigurður Har-
aldsson, byggingadeild Hafnarfjarðarbæjar, og bæjarfulltrúarnir Steinunn Guðnadóttir,
Valgerður Sigurðardóttir og Tryggvi Harðarson, Valgerður Halldórsdóttir, Jóna Dóra
Karlsdóttir og Lúðvík Geirsson. Myndirnar tók Gunnar G. Vigfússon.
Sambandið efndi hinn 17. mai sl.
til ráðstefnu um kosti og galla
einkaframkvæmda og önnur álita-
mál vegna einkaffamkvæmda á veg-
um sveitarfélaga. Ráðstefnan var
haldin í Frímúrarahúsinu við
Ljósutröð í Hafnarfirði og sóttu
hana 70 manns.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður sambandsins, setti ráðstefn-
una með ávarpi en síðan fluttu er-
indi um meginefni hennar þeir Stef-
án Þórarinsson, stjórnarformaður
Nýsis hf., Ásgeir Magnússon, bæj-
arfulltrúi á Akureyri, Magnús
Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnar-
firði, og Gunnar I. Birgisson, al-
þingismaður og formaður bæjarráðs
í Kópavogi.
Eftir kaffihlé fluttu erindi þeir
Halldór Hróarr Sigurðsson, endur-
skoðandi hjá KPMG, og Guðlaugur
Guðmundsson, endurskoðandi hjá
Deloitte & Touche, um meðferð
einkaframkvæmdarsamninga í fjár-
hagsáætlunum og reikningsskilum
sveitarfélaga. Húnbogi Þorsteins-
son, skrifstofustjóri í félagsmála-
ráðuneytinu og formaður ráðgjafar-
nefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga,
flutti erindi um þátttöku jöfnunar-
sjóðs i fjármögnun einkafram-
kvæmda og Bragi Gunnarsson, for-
stöðumaður skattaskrifstofu Ríkis-
skattstjóraembættisins, fjallaði um
skattalega meðferð einkafram-
kvæmda og eigin framkvæmda
sveitarfélaga.
Siðan svöruðu framsögumenn
fyrirspumum og loks fóm fram al-
mennar umræður.
Eftir að ráðstefnunni lauk bauð
Nýsir hf. þátttakendum að skoða hið
nýja hús fðnskólans í Hafnarfírði
þar sem Nýsir bauð veitingar.
Framsöguerindin á ráðstefnunni
eru á heimasíðu sambandsins
www.samband.is/ftmdir/einkafram-
kvaemd/right.shtml
hönnun hf
VERKFRÆÐISTOFA
206