Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 23

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 23
STJÓRNSÝSLA SUfiUltlliS Efri myndin sýnir suðurhlið og austurgafl leikskólans Háholti 17 í Hafnarfirði. Neðri myndin sýnir grunnmynd hæðar. Albína Thordar- son, teiknistofa Víðhlíð 45 í Reykjavík, gerði uppdráttinn. undir húsaleigu eða stoð- og viðhaldsverkefni. Ef um frjálsa skráningu er að ræða er það krafa skattyfirvalda að viðhalds- kostnaður teljist til húsaleigu. 10. Gott samráð þarf að vera við bjóðendur á meðan verið er að vinna að gerð útboðsgagna, einkum í lokuðu útboði. Þeir koma oft með gagnlegar ábend- ingar. Með einkaframkvæmd hefur komið til sögunnar ný hugsun um nýtingu opinberra mannvirkja og greiðslu fyrir afnot þeirra. Það er sú hugsun að þeir sem nota mannvirkið greiði fyrir afnotin jafnóðum, en ekki að skattgreiðendur greiði allan stofhkostnað mannvirkis sem nýtist næstu áratugi. Einnig byggir þessi nýja hugsun á því að einkafyrirtæki sem sérhæfa sig á sviði byggingar og reksturs fasteigna og annarra mannvirkja geti annast þennan þátt á hagkvæmari og árangursrikari hátt en hið opinbera, sem i staðinn getur einbeitt sér að sínum meginverkefh- um. Þá byggir þessi hugsun á því að mannvirki geti úrelst á fáum áratug- urn vegna tækni- og þjóðfélags- breytinga og að það geti verið byrði fyrir hið opinbera að sitja uppi með úrelt mannvirki. Ef einkafram- kvæmd er beitt er hið opinbera laust allra mála að leigutíma loknum. Það getur þá annaðhvort yfirgefið bygg- inguna sér að kostnaðarlausu eða krafist þess að hún verði endur- byggð sem skilyrði fyrir nýjum leigusamningi. Mörg dæmi eru um það hér á landi að starfsemi sé rekin í úreltum byggingum sem stendur í vegi fyrir faglegri þróun, hindrar það að þjónusta sé veitt miðað við nútímakröfur og veldur óþarfa rekstrarkostnaði. Síðast en ekki síst er meginávinningur af einkafram- kvæmd fólginn í því að verksalinn býður fast verð í stofnkostnað og rekstur út allan leigutímann meðan byggingar- og rekstrarkostnaður hjá hinu opinbera fer oft fram úr áætl- un. 2 1 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.