Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Page 23
STJÓRNSÝSLA
SUfiUltlliS
Efri myndin sýnir suðurhlið og austurgafl leikskólans Háholti 17 í Hafnarfirði. Neðri myndin sýnir grunnmynd hæðar. Albína Thordar-
son, teiknistofa Víðhlíð 45 í Reykjavík, gerði uppdráttinn.
undir húsaleigu eða stoð- og
viðhaldsverkefni. Ef um frjálsa
skráningu er að ræða er það
krafa skattyfirvalda að viðhalds-
kostnaður teljist til húsaleigu.
10. Gott samráð þarf að vera við
bjóðendur á meðan verið er að
vinna að gerð útboðsgagna,
einkum í lokuðu útboði. Þeir
koma oft með gagnlegar ábend-
ingar.
Með einkaframkvæmd hefur
komið til sögunnar ný hugsun um
nýtingu opinberra mannvirkja og
greiðslu fyrir afnot þeirra. Það er sú
hugsun að þeir sem nota mannvirkið
greiði fyrir afnotin jafnóðum, en
ekki að skattgreiðendur greiði allan
stofhkostnað mannvirkis sem nýtist
næstu áratugi. Einnig byggir þessi
nýja hugsun á því að einkafyrirtæki
sem sérhæfa sig á sviði byggingar
og reksturs fasteigna og annarra
mannvirkja geti annast þennan þátt
á hagkvæmari og árangursrikari hátt
en hið opinbera, sem i staðinn getur
einbeitt sér að sínum meginverkefh-
um. Þá byggir þessi hugsun á því að
mannvirki geti úrelst á fáum áratug-
urn vegna tækni- og þjóðfélags-
breytinga og að það geti verið byrði
fyrir hið opinbera að sitja uppi með
úrelt mannvirki. Ef einkafram-
kvæmd er beitt er hið opinbera laust
allra mála að leigutíma loknum. Það
getur þá annaðhvort yfirgefið bygg-
inguna sér að kostnaðarlausu eða
krafist þess að hún verði endur-
byggð sem skilyrði fyrir nýjum
leigusamningi. Mörg dæmi eru um
það hér á landi að starfsemi sé rekin
í úreltum byggingum sem stendur í
vegi fyrir faglegri þróun, hindrar
það að þjónusta sé veitt miðað við
nútímakröfur og veldur óþarfa
rekstrarkostnaði. Síðast en ekki síst
er meginávinningur af einkafram-
kvæmd fólginn í því að verksalinn
býður fast verð í stofnkostnað og
rekstur út allan leigutímann meðan
byggingar- og rekstrarkostnaður hjá
hinu opinbera fer oft fram úr áætl-
un.
2 1 3