Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Page 31

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Page 31
STJÓRNSÝSLA Stjórnsýsla í dreifbýli Guðjón Ingvi Stefánsson, fv. framkveemdastjóri Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjördœmi Eins og sveitarstjórnarmönnum hlýtur að vera vel kunnugt skiptist stjómkerfi hins opinbera í löggjafar- vald, framkvæmdavald og dóms- vald. Löggjafarvaldið er hjá Al- þingi, dómsvaldið hjá dómstólum og framkvæmdavaldið nú hjá ríkis- stjóm og sveitarstjómum. Sveitar- stjómir, sem áður áttu sér samheitið hreppar, em elstu stofnanir íslensks samfélags, þ.e. frá elleftu öld, og höfðu helst það hlutverk til foma að annast framfærslu fátækra, vera samábyrgðarfélög íbúanna gegn tjónum og að sinna atvinnumálum, t.d. fjallskilum. Hreppaskipanin hefur haldist lítt breytt lengst af síðan en með breytt- um atvinnuháttum og myndun þétt- býlis fjölgaði sveitarfélögum með skiptingu þeirra á íyrri hluta þessar- ar aldar. Síðustu áratugina hefur þeim fækkað vegna íbúafækkunar og sameiningar. A Vesturlandi vom þau 36 fyrir 6 ámm en em nú 17. Ömtin gömlu störfúðu hér á landi í rúm 200 ár eða þar til heimastjóm tók við 1904, og sýslurnar voru þriðja stjórnsýslustigið á Islandi í 117 ár, frá 1872-1989. A vettvangi sýslunefnda beittu heimamenn sér fýrir margvíslegum framfaramálum en það var þó mis- jafnt eftir sýslum og skipan þeirra var lengi umdeild. Á Suðurlandi stóðu þær að stofnun og rekstri hér- aðsskólanna á Laugarvatni og að Skógum, þær ráku húsmæðraskóla, elliheimili, sjúkrahús og safnastofn- anir og stóðu fyrir lendingarbótum á Eyrarbakka og Stokkseyri og síðar hafnargerð i Þorlákshöfn. Þær styrktu félagsmál margs konar, æskulýðsmál og menningarmál. Auk sambærilegra verkefna og Árnessýsla, Rangárvallasýsla og Vestur-Skaftafellssýsla önnuðust byggði sýslan þar sem ég bý, þ.e. í Mýra- og Borgafjarðarsýslu, raf- orkuver, Andakílsárvirkjun, og stofnaði og rak öfluga peningastofn- un, þ.e. Sparisjóð Mýrasýslu, sem ávallt síðar hefúr verið ein styrkasta stoð atvinnulífsins í héraðinu. Með fjölgun kaupstaða og eftir brotthvarf þeirra úr sýslunefndum beittu margir sveitarstjórnarmenn sér fyrir stofnun fjórðungssambanda í flestum landshlutum á árunum 1943-1950. Elstu landshlutasam- tökin sem nú starfa er Fjórðungs- samband Vestfjarða. Rök Jónasar Guðmundssonar frá Norðfirði, sem síðar varð fyrsti for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, og Hjálmars Vilhjálmssonar frá Seyðisfirði, sem síðar varð ráðu- neytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu, fyrir stofnun Fjórðungssambands Austfirðinga 1943 voru þau að úti á landsbyggðinni yrði að vera til stjómvald sem væri þess umkomið að taka við þeim verkefnum, fjár- magni og völdum sem nauðsynlegt væri að fá út á land til að takast á við ný verkefni í kjölfar lýðveldis- stofnunar. Sýslunefndir og mörg lít- il sveitarfélög hefðu ekki slíka stöðu. En fjórðungssamböndin reyndust veikburða og lifðu stutt skeið. Á sjötta og sjöunda áratug aldar- innar efldist mjög miðstýring ríkis- valdsins frá Reykjavík á flestum sviðum samfélagsins. Ríkisbankam- ir keyptu upp flesta sparisjóðina og innflutningsverslun, sem áður var blómleg, lagðist af úti á landi eftir að leyfisveitingakontór Fjárhagsráðs með biðstofu á Skólavörðustíg var opnaður en innflutningur án leyfis þaðan var bannaður. Með breyttum atvinnuháttum og tækni hefúr mannafli í frumvinnslu- greinum minnkað mikið en jafn- framt hafa þjónustuatvinnugreinar eflst í þéttbýli. Opinber þjónusta hefur aukist mikið þar sem stjóm- sýsla hennar er og í kjölfarið hafa miklar breytingar orðið á búsetu í vestrænum ríkjum. Til mótvægis hafa komið vaxandi kröfúr um vald- dreifmgu og þjónustudreifingu og annars staðar á Norðurlöndum var stjómkerfi dreifbýlis endurskipulagt m.a. með lögskipun á sameiningu sveitarfélaga 1956-1967 og með flutningi verkefna til þeirra og til millistjómstigs fylkja. Hlutfall hins opinbera af samneyslu er nokkru lægra hér á landi en í nágrannalönd- unum en hlutur sveitarfélaganna er aðeins um 1/4 af heildarumsvifum hins opinbera 1994. Hlutdeild ríkis- ins hefúr því verið yfirgnæfandi en þessu er öfugt farið í öðmm löndum þar sem opinbera þjónustan er að mestu í höndum sveitarfélaga og fylkja. Hér á landi var fyrst gerð tilraun til að endurskoða skiptingu landsins i sveitarfélög á síðari hluta sjöunda áratugarins en með litlum árangri. Samband íslenskra sveitarfélaga beitti sér fyrir stofnun landshluta- samtaka sveitarfélaga í öllum kjör- dæmum landsins um 1970 og bundu margir vonir við að með því eignað- ist landsbyggðin stjómvaldstæki til að snúa þróuninni við. Á fyrstu ámm samtakanna á Vesturlandi var mikil umræða urn nauðsyn vald- 22 1

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.