Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 40

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 40
F U LLTR ÚARÁÐS F U N DI R 58. fundur fulltrúaráðsins haldinn í Reykholti í Borgarfirði 58. fundur fulltrúaráðs sambandsins var haldinn á Hótel Reykholti 30. og 31. mars sl. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður sambandsins, setti fundinn, bauð þingfulltrúa og gesti velkomna en síðan flutti ávarp Rikharð Brynjólfsson, oddviti Borgar- fjarðarsveitar, og bauð fúndarmenn velkomna til starfa í nýsameinuðum hreppi, Borgarfjarðarsveit. Einnig kynnti hann Reykholt og skýrði ffá undirbúningi Kristnihátíðar á staðnum. Félagsmálaráðherra Páll Pétursson flutti ávarp, þakk- aði gott samstarf við sveitarstjómarmenn, vék að fjár- málum sveitarfélaganna og vanda þeim sem felst í byggðarröskun sem hann nefndi þjóðflutninga. Hann ræddi félagslega íbúðakerfíð og málefni fatlaðra og taldi ekki tímabært að færa þann málaflokk til sveitarfélag- anna fyrr en öll sveitarfélögin eru tilbúin að taka við honum. Hann fjallaði um frumvarp til laga um félags- þjónustu sveitarfélaga, sem þá hafði nýlega verið lagt fyrir Alþingi. Jafhffamt skýrði hann ffá því að ný jafn- réttislög yrðu afgreidd frá Alþingi fyrir vorið. Loks ræddi hann félagslega íbúðakerfið og skýrði ffá því að sveitarfélög hefðu orðið að leysa til sín 137 íbúðir og þar af stæðu 76 auðar. Ríkharð Brynjólfsson var fúndarstjóri auk formanns og Soffia Lárusdóttir, bæjarfulltrúi á Austur-Héraði, fundarritari og henni til aðstoðar Unnar Stefánsson. Til starfa á fúndinum vom kosnar þrjár nefndir, fjár- hagsnefnd, allsherjamefnd og tekjustofnanefnd. Birgir L. Blöndal aðstoðarframkvæmdastjóri kynnti ársreikninga sambandsins, sem síðar var vísað til fjár- hagsnefndar, og formaður flutti skýrslu urn starfsemi sambandsins árið 1999. Skýrslan var fjölfolduð og er fá- anleg á skrifstofú sambandsins. Flutningur málefna fatladra til sveitarfé- laga Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofustjóri í félagsmála- ráðuneytinu og formaður verkefnastjómar, gerði grein lyrir stöðu mála varðandi flutning málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Hann kvað sérstaka verkefnastjóm hafa verið skipaða og þijár vinnunefndir auk landshluta- nefnda. Vinnunefndimar em laganefnd, kostnaðamefnd og úttektarhópur. Auk þess em að starfí nefnd um starfs- mannamál og nefnd um biðlista eftir búsetu og annarri þjónustu hjá svæðisskrifstofúm málefna fatlaðra og gerir nefndin jafnframt framkvæmdaáætlun til nokkurra ára um uppbyggingu á þjónustu við fatlaða. Laganefnd hafði lokið störfúm og höfðu fjögur frumvörp ýmist verið lögð fram á Alþingi eða yrðu lögð fram í vikunni á eftir, um félagsþjónustu sveitarfélaga, um Greiningar- og ráðgjaf- arstöð ríkisins, um réttindagæslu fatlaðra og um breyt- ingar á lögum um vinnumarkaðsaðgerðir. Húnbogi kvað gert ráð fyrir því að málefni fatlaðra yrðu flutt til sveitar- félaga hinn 1. jan. 2002. Úttektarhópurinn lauk störfúm síðla árs 1998 og skýrði Húnbogi frá störfum hans. Biðlistanefnd skilaði skýrslu í desember 1998 og skýrði hann innihald hennar. Kostnaðamefnd var þá enn starf- andi en stefndi að því að ljúka störfúm innan tíðar. Hún- bogi kvað stefnt að því að halda fúndi með landshluta- nefndum þar sem þeim yrðu kynnt frumvörpin og staða mála í heild. Húnbogi svaraði síðan nokkrum fyrirspum- um. Endurskoöun tekjustofnalaga Jón Kristjánsson, alþingismaður og formaður endur- skoðunamefndar tekjustofúalaga, fjallaði um störf nefnd- arinnar. Einkum ræddi hann þróun tekjustofna sveitarfé- laga á síðasta áratug og verkefni sveitarfélaga. Jón svar- aði síðan mörgum fyrirspumum og tók þátt í almennum umræðum um málið, m.a. um vaxandi lífeyrisskuldbind- ingar, fólksfækkunarframlög og mikilvægi þess að tengja rekstur atvinnufyrirtækja og tekjustofna sveitarfé- laga. Jón kvaðst gera ráð fyrir því að sveitarstjómar- mönnum gæfist kostur á að tjá sig um tillögur nefndar- innar áður en hún skilaði endanlegri skýrslu. Mat á tekjum og gjöldum vegna yfirtöku grunnskólans Ólafur Darri Andrason, fyrrverandi forstöðumaður fjármálasviðs Fræðslumiðstöðvar Reykjavikur, sagði frá vinnu sinni við endurmat á viðbótarkostnaði og viðbótar- tekjum vegna flutnings grunnskólans og Sigrún Magnús- dóttir borgarfúlltrúi talaði um sama mál. Þau Ólafur Darri og Sigrún svömðu síðan fyrirspum- urn og tóku þátt í umræðum um málið. Tóku margir til máls og nefndu m.a. aukna þörf húsnæðis vegna tölvu- kennslu og tölvuvæðingar skólanna og aukinna krafha á ýmsum sviðum, s.s. vegna fjölgunar kennara, breytinga á 230
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.