Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 30

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 30
STJÓRNSÝSLA Hlutverk hópvinnukerfa í sveitarfélögum Hörður Olavson, framkvœmdastjóri Hópvinnukerfa ehf. Hinn 14. apríl sl. var haldin ráðstefna á vegum Tölvumynda og dótturfyrirtœkja Tölvu- mynda þar sem kynntar voruýmsar hugbúnaðarlausnir fyrir sveitarfélög. Þar á meðal fjallaði Hörður Olavson, framkvcemdarstjóri Hópvinnukerfa ehf, um hlutverk hópvinnukerfa hjá sveitarfélögum ogþœr lausnir sem Hópvinnukerfi ehf. hafa á boðstólum til að leysa þau mál erflest sveitarfélög annast. Greinin er útdráttur úr erindi Harðar. Markmið með notkun hópvinnu- kerfa hlýtur alltaf að vera að hag- ræða, bæta vinnubrögð og starfs- gæði. Einnig má nefna atriði eins og auðveldari samskipti milli íbúa og stofnana og þægilegri leiðir til miðl- unar upplýsinga til íbúa svæðisins. Stjórnun skjala og verk- efna Með FOCAL-skjalastjórnun má leysa mörg þeirra mála sem sveitar- stjórnir fást við á hverjum degi. Þeim er gert skylt að fara eftir upp- lýsingalögum, lögum um Þjóð- skjalasafh o.fl. og er því mikilvægt að stjómun skjala sé vel skipulögð og að varðveisla þeirra og flokkun sé eins og best verður á kosið. Nauðsynlegt er að þau séu aðgengi- leg, að leit sé fljótleg og stöðlun skjala, s.s. bréfa, fundargerða, símbréfa o.þ.h., sé til staðar. Einnig er mikilvægt að meðferð innsendra bréfa sé skipulögð: á að flokka þau beint í skjalaskáp eða skanna þau inn og vista á tölvutæku formi með öllum útsendum skjölum? í FOCAL-skjalakerfinu má leysa þessi mál ásamt því að kerfinu fýlg- ir einnig öflug verkefnastjómun sem stuðlar að auðveldara vinnulagi við afgreiðslu ýmissa erinda og annarra mála sem oft fara eftir sama farvegi og því mögulegt að vinna þau eftir fýrirffam ákveðnum vinnuferlum. Fjármál Mögulegt er að halda utan um ýmislegt er við kemur fjármálum í FOCAL-kerfinu og má þar nefna skráningu ferðareikninga starfs- manna og skráningu allra beiðna um styrki sem kunna að berast. Hægt er að vera með skráningarform fyrir þess konar reikninga á heimasíðu á Intemetinu þannig að styrkbeiðend- ur eða starfsmenn á ferðalögum geta fýllt út viðeigandi fonn þegar þeim hentar og sparar það skráningar- vinnu á sjálfri skrifstofu sveitarfé- lagsins. Einnig má skanna inn reikninga sem berast og láta þá fara eftir fýrir- fram ákveðnu samþykktarferli þannig að ömggt sé að allt fari eftir réttum leiðum. Önnur stjórnun Fjölmörg önnur mál má leysa með FOCAL-kerfinu og má þar nefna mál er varða starfsmannahald, allt frá umsóknareyðublaði á heima- síðu til skráningar upplýsinga, eins og um námskeiðahald, starfslýsing- ar og starfssamninga, sumarleyfi o.m.fl. Ýmis skráning getur verið nauð- synleg og því skiptir iniklu máli að vera með rétt tól til að halda utan um hana svo að gögn verði aðgengi- leg og nýtist eins og til er ætlast. Þetta geta verið gögn sem halda utan um tæki, bókakost og annað efhi sem til er; skráning kvartana og ábendinga er ákaflega mikilvæg og eins að skjöl og reglur sem við- koma gæðastjómun séu aðgengileg. Með því að nýta sér möguleika hóp- vinnukerfa má einfalda mikið þessa skráningu og auka aðgengi. Það skal þó tekið fram að í FOCAL- kerfmu er mjög ömgg aðgangsstýr- ing til að tryggja trúnað við þegnana og öryggi upplýsinga. Miðlun upplýsinga Að lokum er mikilvægt, til að öll skráning gagna nýtist og þjóni til- gangi sínum, að aðgengi að þeiin gögnum sem við eiga hverju sinni sé sem best. Það má gera t.d. með því að gefa út á upplýsingavef það efni er viðkemur íbúum sveitarfé- lagsins, s.s. tilkynningar, fundar- gerðir, ýmsar leiðbeiningar o.fl. Af framangreindu má sjá að með notkun hópvinnukerfa má leysa mikið af þeim málum sem sveitar- stjórnir fást við hverju sinni, ein- falda vinnulag og um leið spara tíma. 220
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.