Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 21

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 21
STJÓRNSÝSLA Iðnskólahúsið við Flatahraun í Hafnarfirði. Ljósmyndina tók Gunnar G. Vigfússon fyrir Sveitarstjórnarmál. bankans, er eigandi hússins. Verk- taki sér um viðhald utanhúss fyrstu 5 árin. Verkkaupi sér að öllu leyti um allt annað viðhald og rekstur hússins. Verkið hófst 1. júní 1999 og var húsið vigt 19. febrúar 2000. Reykjanesbær greiðir á ári í leigu u.þ.b. 23,6 millj. kr. og u.þ.b. 20 millj. kr. í rekstrarkostnað á ári. Á móti innheimtir bærinn leigutekjur af húsinu. 4.4 Hjúkrunarheimili í Reykjavík Rikiskaup buðu snemma á árinu 1999 út í einkaframkvæmd bygg- ingu og rekstur hjúkrunarheimilis í Reykjavík í 27 ár frá undirritun samnings. Innifalin var öll þjónusta við vistmenn, skv. nánari skilgrein- ingu í útboðsgögnum. Valdir voru þrír aðilar í forvali til að bjóða í verkið, en tveir þeirra lögðu inn til- boð. Það voru annars vegar Securit- as ehf. og Verkafl hf. sem sam- starfsaðilar og hins vegar Nýsir hf., ístak hf. og þrir hjúkrunarffæðingar sem samstarfshópur. Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið ákvað fjórum mánuðum eftir að tilboðin voru lögð fram að hafna þeim báðum á þeirri forsendu að þau væru hærri en áætlanir ráðu- neytisins gerðu ráð fyrir. Þar með var útboðið úr gildi fellt skv. grein 10.1 í IST 30. Ef ráðuneytið ætlaði ekki að hætta við verkefnið var því skylt að bjóða verkefnið út aftur. Þann 28. apríl sl. undirritaði heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- ið samning við Öldung hf., sem er 85% í eigu Securitas ehf. og 15% í eigu Islenskra aðalverktaka, um byggingu og rekstur 92 rúma hjúkr- unarheimilis við Sóltún í Reykjavík. Samningsfjárhæðin er um 11,8 milljarðar króna út allan samnings- tímann. 4.5 Leikskóli í Grindavík Ríkiskaup buðu haustið 1999 út byggingu og rekstur nýs leikskóla í Grindavík í einkaframkvæmd f.h. Grindavíkurbæjar. Um er að ræða leikskóla sem er 648 ferm., lóð, bílastæði og búnað ásamt ýmsum stoð- og viðhaldsverkefnum. Sjálf skólastarfsemin er undanskilin en verktaka ber m.a. að sjá um viðhald, orku, sorp, þrif, húsvörslu og matseld. Samningstími er 25 ár. Aðeins tveir aðilar buðu í verkið og var tilboð Nýsis og ístaks hag- stæðara, eða um 23 millj. kr. á ári með vsk. Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti hinn 2. febrúar 2000 að semja við Nýsi og ístak um verkið og voru samningar undirritaðir 23. mars sl. 4.6.Leikskóli í Háholti 17 í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær bauð út haustið 1999 byggingu og rekstur leikskóla að Háholti 17 í einkaframkvæmd. Um er að ræða rúmlega 700 ferm. nýjan leikskóla, lóð, bílastæði og búnað, ásamt ýmsum stoð- og við- haldsverkefnum. Sjálf skólastarf- semin er undanskilin, en verktaka ber m.a. að sjá um viðhald, orku, sorp, þrif og húsvörslu. Skólinn er teiknaður af Albínu Thordarson arkitekt sem vann samkeppni meðal arkitekta um skólann. Þrír aðilar buðu í verkið að und- angengnu forvali og var tilboð Nýs- is og Istaks hagstæðast. Bæjarstjóm Hafnarfjarðar ákvað síðan að semja við Istak og Nýsi uin verkið og voru samningar undirritaðir 16. mars sl. Samningsverð er rúmlega 20 millj. kr. á ári með vsk. 4.7 Grunnskóli í Áslandi í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær bauð út í lok- 2 1 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.