Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 63
LEIKSKÓLAR
Blómlegt starf undir nýju nafni
Bergur Felixson, framkvœmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur
Á síðasta ári var nafni Dagvistar
bama í Reykjavík breytt í Leikskól-
ar Reykjavíkur. Þetta var gert í
ffamhaldi af samþykkt borgarstjóm-
ar um starf leikskólaráðs. Tilgangur
breytinganna er að laga reglur um
starfsemina að lögum um leikskóla
frá 1994. I þeim lögum segir að
leikskólinn sé fyrsta skólastigið og
því hluti af íslenska skólakerfinu.
Þess vegna er nú talað um leikskóla
í lögunum í staðinn fyrir dagvistar-
heimili.
Á aldamótaárinu 2000 nær starf-
semi Leikskóla Reykjavíkur til 73
leikskóla og 22 gæsluleikvalla. Auk
þess em í gildi þjónustusamningar
um rekstur tveggja leikskóla í eigu
Reykjavíkurborgar. Skrifstofa Leik-
skóla Reykjavíkur hefur umsjón og
eftirlit með daggæslu bama í heima-
húsum, en nú em um 230 dagmæð-
ur með starfsleyfi frá Reykjavíkur-
borg. Þá hafa 14 foreldra- eða
einkareknir leikskólar rekstrarleyfi
og fá rekstrarstyrki úr borgarsjóði.
Þessi starfsemi, sem Leikskólar
Reykjavíkur reka eða hafa umsjón
með og styrkja, varðar um 7.200
böm, sem er um 86% allra bama í
Reykjavík á aldrinum 1-5 ára.
Þróun leikskólamála í
Reykjavík
Síðustu ár hefur þróunin í leik-
skólamálum í Reykjavík gengið í þá
átt að leikskólum fjölgar jafnt og
þétt en gæsluleikvöllum fækkar.
Helgast þetta af þeirri staðreynd að
reykvískir foreldrar vinna báðir full-
an vinnudag og nægir því ekki að
börnin séu á gæsluleikvelli eða í
stuttri dvöl í leikskólanum.
Frá árinu 1995 hafa verið byggðir
10 leikskólar, langflestir fjögurra
deilda. Byggt hefur verið við 15
leikskóla og þeir stækkaðir og
einnig hafa miklar lagfæringar átt
sér stað í eldri leikskólum til að að-
laga þá breyttum tímum. Þá hefur
rekstur sjö leikskóla sem sjúkrahús-
in í Reykjavík ráku verið yfirtekinn
samkvæmt sérstöku samkomulagi
og einnig bættist við einn leikskóli
þegar Kjalameshreppur og Reykja-
víkurborg sameinuðust árið 1998.
Þrátt fyrir þessa miklu fjölgun
leikskóla hefur börnum á biðlista
ekki fækkað. Það stafar af því að
eftirspum eykst stöðugt og þá sér-
staklega eftir heilsdagsvistun, sem
áður bauðst ekki öllum. Er nú svo
komið að hlutfall heilsdagsplássa
nálgast um 70% af öllum leikskóla-
plássum.
Á síðasta ári stóðu Leikskólar
Reykjavíkur, eins og margar aðrar
stofnanir á höfuðborgarsvæðinu,
frammi fyrir erfiðleikum við að
manna allar stöður í leikskólum. Á
þenslutímum í samfélaginu verður
baráttan um starfsfólk æ harðari, en
jafnffamt eykst þörf fyrir leikskóla-
pláss, eins og áður segir. Leiddi
þetta m.a. til þess að ekki var hægt
að fúllvista í öll pláss í leikskólum
borgarinnar sl. haust og fram eftir
vetri.
Gripið hefúr verið til ýmissa ráða
Bergur Felixson, framkvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur, veitir viðtöku viðurkenning-
arskjali úr hendi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra „fyrir öndvegisstarf þar
sem tekist er á við krefjandi og skapandi verkefni af faglegum metnaði" hinn 21. júní sl.
Ljósmyndina tók Jóhannes Long.
253