Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Side 27

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Side 27
STJÓRNSÝSLA Afgreiðslutími áfengis á veitinga- húsum Þorgerður Ragnarsdóttir framkvœmdastjóri Með áfengislögum nr. 75/1998, sem öðluðust gildi 1. júlí 1998, fluttist útgáfa leyfa til áfengisveit- inga á veitingastöðum frá lögreglu- stjóra til sveitarstjóma. Ný reglu- gerð um smásölu og veitingar áfengis var samþykkt 17. mars 1999 en þar er nánar kveðið á um hvernig standa skuli að veitingu leyfa. Nýjum áfengislögum nr. 75/1998 lylgdu þær breytingar að ákvörðun- arvald um starfsleyfí veitingastaða og afgreiðslutíma vínveitinga færð- ist frá ríki til sveitarfélaga. Þetta er liður í þeirri stefnu íslensku ríkis- stjómarinnar að draga úr miðstýr- ingu í íslenskri stjómsýslu. Kostir þannig fyrirkomulags eru að ákvörðunarvaldið er fært nær íbúun- um og það eykur möguleika þeirra á að hafa áhrif á nánasta umhverfi sitt. Þvi fylgir hins vegar eftirlits- skylda og ábyrgð á að farið sé að lögum og reglum á hverjum stað. í fámennari sveitarfélögum getur ná- lægð almennra íbúa og þeirra sem sjá um eftirlitið fyrir sveitarfélagið orðið til þess að erfitt getur reynst að fylgja lögum og reglum eftir. Margir em því þeirrar skoðunar að stærri og fjölmennari sveitarfélög séu betur í stakk búin til að sinna þessu eftirlitshlutverki. Vínveitingaleyfi Níu mánuðir liðu frá því áfengis- lögin öðluðust gildi 1. júlí 1998 þar til ný reglugerð um smásölu og veit- ingar áfengis var samþykkt. Sam- kvæmt eldri reglugerð þurfti að sækja um leyfi til áfengisveitinga til ríkislögreglustjóra og leyfilegur af- greiðslutími var skilgreindur frá há- degi virka daga og til kl. 02 um helgar. Samkvæmt nýju reglugerð- inni þarf að sækja um öll leyfi til vínveitinga til sveitarstjómar sem einnig ákveður hve lengi staðirnir mega afgreiða áfengi. Sveitarstjóm- ir ákveða afgreiðslutímann innan þess ramma sem settur er með lög- um um helgidagafrið nr. 32/1997. í reglugerðinni er kveðið á um að leyfi til áfengisveitinga verði ein- ungis veitt þeim sem hafa gilt veit- ingaleyfi samkvæmt lögum um veit- inga- og gististaði nr. 67/1985. Til þess að öðlast almennt veitingaleyfí, án vínveitinga, þarf umsækjandi að eiga lögheimili hér á landi samfellt i minnst eitt ár, vera fjárráða og hafa forræði yfír búi sínu. I umsókn um leyfi fyrir vínveitingastað þarf, sam- kvæmt gildandi áfengislögum, að tilnefna stjómanda sem þarf að vera orðinn 20 ára og uppfylla skilyrði laga til að fá útgefíð veitingaleyfí. Umsókn þurfa að fylgja vottorð um að umsækjandi skuldi ekki skatta, opinber gjöld né iðgjöld í lífeyris- sjóð auk hreins sakavottorðs. Hvert vínveitingaleyfi er bundið nafhi um- sækjanda og þeim stað sem sótt er um það fyrir. Loks þarf leyfishafi að leggja fram tryggingu fyrir greiðslu krafna á hendur honum vegna veit- ingarekstursins. Tryggingaupphæðir eru misháar, frá 500.000 krónum upp í 3 milljónir króna, eftir stærð veitingastaðarins. Þegar sveitarstjóm berst umsókn um leyfí fyrir veitingastað til áfeng- isveitinga á hún að leita umsagnar viðkomandi lögreglustjóra, bygg- ingar- og skipulagsnefndar og heil- brigðisnefndar, sem metur innrétt- ingar og annað svipmót veitinga- rekstrar á staðnum. A grundvelli umsagnanna metur sveitarstjórnin hvort veita skuli leyfið eða ekki. í fyrsta skipti sem leyfi er gefíð út gildir það í eitt ár. Framhald leyfís- ins er síðan háð reynslunni af rekstr- inum en gildir þó aldrei lengur en til ljögurra ára i senn. Sveitarstjórn getur sett nánari reglur urn hvernig standa skuli að vínveitingum í umdæminu. Hún getur t.d. ákveðið að á vissum svæð- um skuli ekki vera vínveitingahús, sett reglur um afgreiðslutíma eða takmarkað leyfið við ákveðnar vín- tegundir, t.d. léttvín eða bjór. Slíkar málsmeðferðarreglur era t.d. fyrir- liggjandi bæði í Reykjavík og á Ak- ureyri. Stundum er heimilt að veita ábyrgðarmanni húsnæðis leyfi til áfengisveitinga af sérstöku tilefni ef hann á annað borð uppfyllir lög- bundin skilyrði þess. Slíkt leyfi þarf að sækja um með a.m.k. 10 daga fyrirvara til sveitarstjómar. í máls- meðferðarreglum Akureyrar og Reykjavikur um vínveitingaleyfi er t.d. tekið fram að tækifærisleyfi séu „ekki veitt í íþróttamannvirkjum í tengslum við íþróttaviðburði. Með þvi er átt við veitingar áfengis fyrir eða eftir íþróttaviðburð eða á meðan á honum stendur.“ Sl. sumar var til umræðu hvort leyfa ætti sölu áfengis í tengslum við tónleikahald á íþróttasvæðinu í Laugardal en slík tækifæri era ekki skilgreind í málsmeðferðarreglum Reykjavíkurborgar. Lögreglan í 2 1 7

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.