Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Qupperneq 20
STJÓRNSÝSLA
fyrir sér mörg verkefni í einkaffam-
kvæmd. Athyglisvert er að hér á
landi, þar sem orkulindirnar eru
mjög verðmæt auðlind, hefur hið
opinbera gætt þess alveg sérstaklega
að skapa hvergi tækifæri fyrir
einkaaðila í fjárfestingu og rekstri.
Þess hefur líka verið vel gætt að
skapa einkaaðilum hvergi tækifæri
til að koma að fjárfestingu og rekstri
vatnsveitna og fráveitna.
Skrifstofubyggingar
Fjárbinding hins opinbera í skrif-
stofuhúsnæði er mikil og hefúr það
dregið úr þeim sveigjanleika sem
leiga á húsnæði gefúr kost á. Lang-
tímaleigusamningur með þjónustu
er í raun samningur um einkafram-
kvæmd. Húsnæði, sem þarfnast um-
talsverðra endurbóta, má selja til
einkaaðila sem hluta af samningi
um einkaframkvæmd sem fæli í sér
endurbyggingu og leigusamning til
nokkurra ára. Auk þess mætti, með
sama samningi, fela seljanda að
annast ýmsa stoðþjónustu í bygg-
ingunni.
Skólar
Fela má einkaaðilum uppbygg-
ingu og rekstur skólamannvirkja á
öllum skólastigum og hefúr það ver-
ið gert í auknum mæli hér á landi að
undanfömu. Rekstur leikskóla hefúr
einnig verið boðinn út til einkaaðila
með góðum árangri.
Sjúkrahús, hjúkrunarheimili og
heilsugæslustöðvar
Bygging og fasteignarekstur
sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila og
heilsugæslustöðva er umfangsmikið
verkefni sem fallið getur ágætlega
að þessum aðferðum. Fela má verk-
takanum ýmsa stoðþjónustu, t.d.
rekstur eldhúss og þvotta, þrif, ör-
yggisgæslu, tölvuþjónustu, hús-
vörslu o.fl.
Sambýli fatlaðra
Sambýli fatlaðra er stundum í ein-
býlishúsum sem hafa verið aðlöguð
þörfum íbúanna. Einkaaðilar geta
hvort heldur sem er séð um útvegun
og rekstur húsnæðisins eða tekið að
sér rekstur sambýlisins líka.
Meðferðarheimili fyrir börn og
unglinga
Meðferðarheimili fyrir börn og
unglinga á vegum Barnaverndar-
stofu hafa verið í einkarekstri og á
það við um útvegun húsnæðis, að-
stöðu og rekstur. Þetta fyrirkomulag
hefúr tekist vel.
4. Dæmi af einkafram-
kvæmd hér á landi
4.1 Hvalfjarðargöng
Hvalfjarðargöng eru fyrsta verk-
efnið á sviði einkaframkvæmdar hér
á landi. Þar var það hlutafélagið
Spölur hf. í eigu Jámblendifélags-
ins, Akraneskaupstaðar, Sements-
verksmiðjunnar, Borgarbyggðar
o.fl. aðila sem hafði forystu um
málið og samdi við ríkissjóð um
ýmsar ráðstafanir, ábyrgðir o.fl.
Bygging ganganna var boðin út,
leitað var tilboða i fjármögnun en
Spölur hf. annast rekstur ganganna.
Bygging og rekstur ganganna er
fjárhagslega sjálfstætt verkefni.
Þetta verkefni hefur gengið vel og
engin sérstök vandamál komið upp.
Hver vildi nú vera án Hvalfjarðar-
ganga?
4.2 Iðnskólinn í Hafnarfirði
Fyrsta útboð opinberra aðila hér á
landi þar sem einkaframkvæmd var
beitt var Iðnskólinn í Hafnarfírði.
Var hér um að ræða samstarfsverk-
efni menntamálaráðuneytis, fjár-
málaráðuneytis og Hafnarfjarðar-
bæjar.
Utboðið fólst í því að verktaki
skyldi yfírtaka byggingar skólans
við Flatahraun og Reykjavíkurveg,
byggja viðbyggingu við húsið að
Flatahrauni, en finna annað verkefni
fyrir húsið við Reykjavíkurveg sem
er 1.042 fermetrar. Verkkaupi
skuldbatt sig til að leigja skólahúsið
við Flatahraun af verktaka i 25 ár,
auk þess sem verktaki skyldi sjá um
allan rekstur þess, viðhald, endur-
nýjun búnaðar, þrif, húsvörslu,
sorphirðu, mat- og kaffisölu, örygg-
isgæslu o.fl.
Hagstæðasta tilboðið kom frá
Nýsi hf. og Istaki hf. í samstarfi við
Islandsbanka, að Qárhæð rúmlega
65,8 millj. kr. á ári í 25 ár. Af þeirri
ijárhæð er byggingarkostnaður um
30%, fjármagnskostnaður um 30%
og rekstrar- og viðhaldsverkefni um
40%. Tilboðinu var tekið og sam-
kvæmt upplýsingum fjármálaráðu-
neytisins var það um 300 millj. kr.
undir kostnaðaráætlun. Kennsla í
nýja skólahúsnæðinu hófst í janúar
2000.
Verkaskipting milli verktaka er
sem hér segir:
a. Nýsir hf. mun stýra verkefninu
og annast rekstur á húsnæði Iðn-
skólans í Hafnarfirði allan samn-
ingstímann með tilheyrandi stoð-
og viðhaldsverkefnum. Nýsir hf.
er þinglýstur eigandi hússins.
b. Istak hf. gerði sem verktaki
samning við Nýsi hf. sem verk-
kaupa um byggingu nýja skóla-
hússins og niðurrif á eldra hús-
næði skólans.
c. Islandsbanki hf. veitir, eða hefúr
milligöngu um að veita, Nýsi hf.
25 ára lán með veði i bygging-
unni til greiðslu á kostnaði við
byggingu húsnæðisins, kaup á
búnaði og vegna frágangs lóðar,
sbr. samning við Istak hf.
d. Nýsir hf. yfirtók bóknámshús
skólans að Reykjavíkurvegi 74 á
matsverði samkvæmt útboðs-
gögnum.
e. Islandsbanki hf. mun annast inn-
heimtu hjá ríkissjóði og miðla til
lánardrottna greiðslu afborgana
og vaxta áhvílandi lána.
4.3 Reykjaneshöllin
Reykjanesbær bauð út í lokuðu
útboði seint á árinu 1998 leigu
knattspymuhúss til 35 ára. Reykja-
nesbær samdi við íslenska aðalverk-
taka hf. um byggingu og leigu húss-
ins en Landsafl hf., sem er eignar-
haldsfélag í eigu ÍAV hf. og Lands-
2 1 O