Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Page 39

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Page 39
DÓMSMÁL svæðið og samanburð við önnur svæði. Var því hvorki talið að F hefði ekki notið jafnræðis á við aðra lóðar- þega né að ógildingarregla 36. gr. 1. nr. 7/1936 ætti hér við. Aðferð bæjarfélagsins við að jafna niður upptöku- gjaldinu var þannig álitin tæk. Var því ekki talið að mæla hafi þurft fyrir um upptökugjald þetta í lögum. Með þessum rökum var H sýknaður af kröfum F.“ Lokaorð Með þessum hæstaréttardómi sem nú hefur verið rak- inn er allri óvissu eytt um lögmæti þess að leggja á upp- tökugjöld. Nú liggur það ljóst fyrir að sveitarfélögin geta náð til sín aftur þeim kostnaði sem landakaupum hefúr íylgt með því að leggja upptökugjöld á lóðarhafa og þarf þvi ekki að nota takmarkað skattfé sveitarsjóða í þessu skyni. Þá hlýtur það að teljast réttlætismál að þeir sem úthlutað er lóðum greiði þann kostnað sem hlotist hefúr af því fyrir sveitarfélagið að afla lóðanna, þannig að það lendi ekki á öllum íbúum sveitarfélagsins að greiða þennan kostnað. Af hæstaréttardómnum sést að þegar lagt er á upp- tökugjald þarf að gæta þess að sveitarstjórn samþykki upptökugjaldið, að fjárhæð þess sé innan þeirra marka sem nemur kostnaðinum af kaupum á landi því sem hin- ar úthlutuðu lóðir em á og að lóðarhafinn samþykki upp- tökugjaldið fyrir sitt leyti í tvíhliða samningi, t.d. með ritun sinni undir úthlutunarskilmálana, þar sem kveðið er á um upptökugjaldið. \lar Trjágreinar Spilliefni ÉM^nntu s^^B á flokkun til ______________Flokkum og skilum á endurvinnslustððvar endurvinnslu? 229

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.