Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 48
TÆKNIMÁL
Eiginleikar TETRA-tækninnar og hag-
nýting hennar fyrir starfsemi sveitarfélaga
Stefán Jónasson, rafeindavirki og verkfi-œðingur
Stikla - nýtt fyrirtæki á
fjarskiptasviói
Stikla ehf. er ijarskiptaíyrirtæki í
jafnri eigu TölvuMynda hf., Lands-
síma íslands hf. og Landsvirkjunar.
I upphafi er meginverkefni fyrirtæk-
isins að setja upp og reka nýtt far-
stöðvakerfi sem kennt er við
TETRA-staðalinn og er áætlað að
þjónustusvæði Stiklu nái til allra
helstu þjóðvega og byggðra bóla
hérlendis fyrir árslok 2001.
Góð virkni TETRA-kerfis
Stiklu
Fyrsti áfangi TETRA-kerfis
Stiklu hefur nú verið settur upp og
prófaður af tæknimönnum Nokia og
Stiklu og hefur kerfíð staðist allar
væntingar og verið laust við öll
byrjunarvandamál og er útbreiðsla
þess frá móðurstöðvum mjög góð.
Einnig eru kröfur TETRA-staðals-
ins um stuttan tengitíma milli not-
enda uppfylltar, talgæði eru mikil
og eru notendur ánægðir með kerf-
ið.
Lokaverkefni uppsetningar fyrsta
áfanga TETRA-kerfisins var sam-
tenging þess við almenna símakerf-
ið og er nú hægt að hringja milli
TETRA-kerfis Stiklu og annarra
símakerfa.
TETRA-kerfi Stiklu stóðst alla
Suðurlandsskjálftana í sumar án
nokkurra vandamála.
Áframhaldandi uppbygg-
ing TETRA-kerfisins
ákveöin
I ljósi þess hve vel tókst til við
uppbyggingu fyrsta hluta TETRA-
dreifíkerfis Stiklu og þess að þörfin
fyrir stærra dreifíkerfi er mjög að-
kallandi er búið að taka ákvörðun
um stækkun þess. Fyrir lok þessa
árs verður allt að 20 móðurstöðvum
bætt við dreifikerfi Stiklu og á árinu
2001 verður öðrum 20 stöðvum
bætt við þannig að samtals mun þá
TETRA-dreifikerfið samanstanda af
61 móðurstöð. Þannig verður Stikla
komin með TETRA-kerfi sem nær
nánast til landsins alls fyrir árslok
2001 með sambærilegu þjónustu-
svæði og NMT-farsímakerfið er
með nú.
Hvaó er TETRA?
TETRA er nýr staðall fyrir staf-
ræn, þráðlaus fjarskipti í tali og
gagnaflutningum. Hann er m.a. þró-
aður út frá reynslunni af GSM og
DECT, sem eru evrópskir staðlar
fyrir farsíma og þráðlausa síma og
eru skilgreindir af ETSI - European
Telecommunications Standards
Institute.
TETRA - TErrestial Trunked
RAdio - er svokallað „PMR“ - Pri-
vate Mobile Radio system, sem
þýðir „farstöðvakerfi" á góðri ís-
lensku og er því rétt að nota orðið
„farstöð" fyrir notendabúnaðinn.
Helstu eiginleikar TETRA
Upphaflega var TETRA-kerfið
hannað sem fjarskiptakerfi fyrir
þarfir viðbragðsaðila eins og lög-
reglu, slökkviliða, almannavama og
hjálparsveita en einnig hefur verið
gert ráð fyrir að almennir aðilar,
þ.e.a.s fyrirtæki, stofhanir, sveitarfé-
lög og einstaklingar, geti nýtt sér
TETRA-tæknina.
Eftirfarandi þættir eru einkenn-
andi fyrir TETRA-tæknina og lýsa
helstu eiginleikum hennar:
1. Hópsamskipti
Hópsamskipti innan TETRA-
dreifikerfis. Hópsamskiptum má
líkja við hefðbundin talstöðvasam-
skipti, nema hvað samskipti tak-
markast ekki við fjarlægð á milli
notenda heldur ná samskiptin til alls
þjónustusvæðis TETRA-kerfisins.
2. Farsími - Einkasamtöl
Einkasamtöl milli tveggja not-
enda geta verið bæði innan TETRA-
kerfis eða yfir í almenn símakerfi og
einkasímstöðvar eins og í venjuleg-
um farsíma.
3. Stuttur tengitími
Stuttur tengitími milli notenda,
innan við 0,3 sekúndur skv.
TETRA-staðli. Framleiðendur
TETRA-dreifikerfa uppfýlla þessar
kröfur misjafnlega vel, en hún er
mikið öryggisatriði og mikilvægur
gæðadómur á virkni TETRA-kerfis-
ins.
4. Bein rás
TETRA-farstöð er með svokall-
aða beina rás og virkar því líka sem
venjuleg talstöð og veitir það
ákveðið öryggi séu menn staddir
fyrir utan TETRA-dreifikerfið.
5. Smáskilaboð
Svokölluð smáskilaboð er hægt
að senda á einstaka notendur, hóp
eða hópa, t.d. til eftirfarandi nota:
• Sem textaskilaboð milli manna
og hópa líkt og SMS-skilaboð,
þannig er hægt að nýta TETRA
238