Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Qupperneq 53
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
Aðalfundur
Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
1999
Guðjón Guðmundsson, framkvœmdastjóri SSS
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum,
hinn 22. í röðinni, var haldinn í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja í Reykjanesbæ fostudaginn 15. og laugardaginn
16. október 1999.
Meginefni fundarins auk venjulegra aðalfundarstarfa
var árangur í skólastarfi og fjármál sveitarfélaga. Á
fundinn komu 39 sveitarstjómarfulltrúar, 22 gestir og
frummælendur auk starfsfólks. Fundarstjórar vom Kjart-
an Már Kjartansson og Kristmundur Ásmundsson og
fundarritarar þau Jónína A. Sanders og Ólafur Thorder-
sen og til vara Jóhann Geirdal og Þorsteinn Erlingsson,
öll bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ. Hjörtur Zakaríasson,
bæjarritari þar í bæ, var skrifari fúndarins.
Skýrsla stjórnar
Skúli Skúlason, formaður stjómar SSS, flutti skýrslu
stjómar þar sem hann gerði grein fyrir þeim málefnum
sem höfðu verið efst á baugi á liðnu starfsári.
í máli hans kom m.a. fram að stjóm SSS hafði haldið
16 bókaða stjómarfúndi og tekið til umræðu 174 mál á
starfsárinu. Hann sagði að málefni sambandsins hefðu
verið misumfangsmikil eins og eðlilegt er og nokkur
þeirra væm enn í vinnslu stjómarinnar. Markmið var að
fundir stjórnar væru mánaðarlega en aukafundi hélt
stjómin í tengslum við íjárhagsáætlunargerð sambands-
ins og sameiginlega reknar stofnanir. Auk þess sóttu
framkvæmdastjóri, formaður og aðrir stjórnarmenn
ýmsa fúndi, innan og utan svæðisins, til þess að gæta
hagsmuna þess. Má þar nefna árlega heimsókn til fjár-
laganefúdar Alþingis.
Á fyrsta fundi stjómar skipti hún með sér verkum
þannig að Skúli Þ. Skúlason, forseti bæjarstjórnar í
Reykjanesbæ, var kosinn formaður, Sigurður Jónsson,
sveitarstjóri Gerðahrepps, varaformaður og Þóra Braga-
dóttir, oddviti Vatnsleysustrandarhrepps, ritari. Aðrir
stjómarmenn vom bæjarfúlltrúamir Hallgrímur Boga-
son í Grindavík og Óskar Gunnarsson í Sandgerði.
Rekstur sambandsins hafði verið með hefðbundnu
sniði á árinu. Hafði stjómin að leiðarljósi að gæta fyllsta
hagræðis hvað útgjöld varðar.
Formaður fjallaði m.a. um kjördæmamálið og sagði
frá umfjöllun stjómarinnar um það. Hún ákvað að boða
til sambandsfúndar um málið. Þar vom frummælendur
Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Sigriður Anna Þórð-
ardóttir alþingismaður og Skúli Þ. Skúlason, formaður
SSS. Um það sagði Skúli: „Með nýrri kjördæmaskipan
verðum við Suðumesjamenn hluti af Suðurkjördæmi.
Það er ljóst að sveitarstjómarmanna biður talsvert verk-
efni að aðlagast nýju kjördæmi. Stjóm SSS hefur lagt
gmnn að því að samstarf heíjist milli SSS annars vegar
og SASS hins vegar og verið er að undirbúa sameigin-
legan fúnd stjómanna beggja.“
Þá boðaði stjóm SSS til sambandsfundar hinn 15.
október til að ræða um málefni Keflavíkurflugvallar. Á
fundinn kom Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra.
Hvergi á landinu hefur aðild íslands að Atlantshafs-
bandalaginu og vamarsamstarfi íslands og Bandaríkj-
anna jafúmikil áhrif á þjóðlífíð og á Suðumesjum. Utan-
ríkisráðherra kom víða við í máli sínu, rætt var um Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar, frelsi i flugafgreiðslu, málefni
verktakanna, ýmis samningsmál við vamarliðið, svo sem
fráveitumál, sorpmál, skil á neðra nikkelsvæði, starfs-
mannamál og stöðu vamarsamningsins, svo fátt eitt sé
nefnt.
Sveitarstjómarmenn vom jafúframt boðaðir til sameig-
inlegs fúndar hinn 29. apríl síðastliðinn vegna samkomu-
lags sem samninganefnd Sorpeyðingarstöðvar Suður-
nesja hafði náð við vamarliðið um þátttöku i kostnaði
við uppbyggingu nýrrar flokkunarstöðvar og sorp-
brennslu og um kaup vamarliðsins á þjónustu frá nýrri
stöð. Varnarliðið mun samkvæmt þvi samkomulagi
greiða 41% heildarstofnkostnaðar við framkvæmdina en
heildarkostnaðurinn er áætlaður 440-480 millj. kr. Gert
er ráð fyrir að nýja stöðin geti hafið starfsemi fyrir árslok
2001, þar er um að ræða nýja móttökustöð, stóraukna
flokkun og endurvinnslu og brennslu sorps samkvæmt
ýtmstu mengunarkröfúm. Ætlunin er að beita bestu fáan-
legu tækni og verða Suðumesin í fararbroddi umhverfís-
243