Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Page 64
LEIKSKOLAR
Leikskóli í Selási í Reykjavík er fjögurra deilda
og um 630 m! að stærð. Við hönnun leikskól-
ans var leitast við að skapa hús, sem vonandi
gleður barnsaugað. Sterk gulir píramídar rísa
upp úr húsi. Grasfláar ganga sums staðar upp
á veggi, þannig að húsið virðist ekki mjög hátt.
Fleira er gert til þess að mæta barninu eins og
myndskreytt inngönguhurð ætluð börnunum,
spéspegill nálægt anddyri og fleira mætti upp
telja.
Grunnmynd skólans er hefðbundin í aðalatrið-
um en þó eru undantekningar þar á. Undir
gulu pýramídaþaki er leikstofa, sem tengir
saman heimastofur eldri barna og sama á við
um heimastofur yngri barna. Með leikstofu og
tengslum við heimastofu skapast miklir mögu-
leikar á fjölbreytni í starfi hverrar deildar. Stór-
ar hurðir skilja að leikstofu og heimastofu, en
lágt hlið leikstofu og fjölnotarými. Sjá teikn-
ingar. Einnig er vatnsleikjarými tengt leikstofu.
Frá leikstofu sést út á útipall og leiksvæði
skólans. Á góðviðrisdögum er skjólgóður úti-
pallur viðbótarleiksvæði við heimastofu.
Fjölnotarými er í miðju húsi, en þakgluggar
gefa þar góða dagsbirtu.
Frá fjölnotarými gengur listasmiðja sem jafn-
framt getur þjónað sem „leiksvið" að fjölnota-
rýminu.
Sneiðing leikskólans
Grunnmynd leikskólans í Selási.
1 BARNAVAONAR U
2 AND0YR1 12
3 FOT 13
4. RÍSTlKLER 14
5. SERJSTOFA 15
6. VNNUHERBERGI fc
7. VÐTALSHERBERGi 17
8 SKÓtASTJÓRI 18
9. PVOTTUR
n USTASMlDJA
MÓTTAKA
GEYMSLA
FJOlNOTA RÝMI
VATNALEiKlR
LEIKSTOFA
HEIMASTOFA
HVÍLD
LUIPALLUR
Leikskólinn í Selási. Myndirnar tók Manfreð Vilhjálmsson arkitekt sem hannaði leikskólann.
til að vinna bug á starfsmannavand-
anum. Laun hækkuðu vegna auk-
innar yfírvinnu starfsmanna, starfs-
fólki er gefínn kostur á ijölbreyttri
fræðsludagskrá og starfsmönnum
eru veittir styrkir til heilsueflingar.
Þá fá starfsmenn forgang að leik-
skólaplássum fyrir börn sín og fá
þeir verulegan afslátt af leikskóla-
gjöldum.
Með þessum aðgerðum og fleiru,
sem gert er í anda góðrar starfs-
mannastefnu, vonumst við til að
standa betur að vígi í baráttunni um
starfsfólkið, þannig að hægt verði
að fullnýta alla leikskólana nú í
haust.
Starfsviöurkenning borg-
arstjóra
Þau gleðilegu tíðindi urðu nú í
sumar að Leikskólum Reykjavíkur
var veitt viðurkenning borgarstjóra
fyrir starfsárangur árið 1999 eða
eins og segir í viðurkenningarskjal-
inu „fyrir öndvegisstarf þar sem tek-
ist er á við krefjandi og skapandi
verkefni af faglegum metnaði“.
Þessi viðurkenning hvetur okkur
starfsfólkið til að halda áfram á
sömu braut og láta faglegar áherslur
ráða mótun starfsins og er sérlega
ánægjulegt ekki síst vegna ofan-
greindra erfíðleika á árinu.
Umfangsmikið stefnumótunar-
starf, sem unnið hefúr verið sl. fjög-
ur ár, hefúr því skilað árangri en þar
kom að stór hópur starfsmanna.
Þá hefúr fjárhagslegur rekstur og
stjómun ávallt verið mjög góð hjá
stofnuninni og hafa Leikskólar
Reykjavíkur aðlagað sig mjög vel
rammafjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar, gert góðar starfs- og fjár-
hagsáætlanir, sem hafa staðist.
Starfsviðurkenningin mun því
efla okkur til dáða í áframhaldandi
uppbyggingu leikskólanna og fag-
legu uppeldisstarfí meðal yngstu
borgaranna á nýrri öld.
254