Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Síða 65
KYNNING SVEITARSTJÓRNARMANNA
Kristinn Guðjón
Kristinsson
félagsmálastjóri í
Sveitarfélaginu Ölfusi
Kristinn Guð-
jón Kristinsson
félagsráðgjafi
hefur verið ráð-
inn í starf félags-
málastjóra Sveit-
arfélagsins Ölf-
uss ffá 15. ágúst.
Kristinn er fæddur 10. desember
1960 í Reykjavík. Foreldrar hans
voru Hulda Ingadóttir, starfsmaður í
bókhaldi hjá Eimskip, og Kristinn
Guðjón Þorsteinsson, verkamaður í
Stálsmiðjunni í Reykjavík. Þau eru
bæði látin.
Kristinn lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskólanum í Ármúla 1982.
Hann lauk BA-prófí i félagsfræði og
félagsráðgjöf ásamt starfsréttinda-
námi í félagsráðgjöf frá Háskóla Is-
lands 1990.
Kristinn starfaði með námi í Uti-
deildinni í Kópavogi. Að námi
loknu vann hann í tæp fjögur ár sem
yfirfélagsráðgjafi á hæfingar- og
endurhæfmgardeild Landspítalans
(áður Kópavogshæli) en síðan tók
hann við nýrri stöðu öldrunarfull-
trúa Hafharfjarðarbæjar þar til hann
réðst til starfa sem félagsmálastjóri í
Hveragerði og hjá þáv. Ölfushreppi
hinn 1. desember 1995.
Kristinn situr í svæðisráði mál-
efna fatlaðra á Suðurlandi.
Eiginkona Kristins er Hildigunnur
Bjamadóttir félagsráðgjafi og kenn-
aranemi og eiga þau þrjú böm.
Jens Pétur Jensen
sveitarstjóri
Fellahrepps
Jens Pétur
Jensen hefur
verið ráðinn
sveitarstjóri
Fellahrepps frá
1. ágúst, er
Guðlaugur
Sæbjörnsson lét
af þvi starfi og réðst til KPMG
Endurskoðunar á Austur-Héraði.
Jens Pétur er fæddur á Eskifírði 7.
september árið 1951 og vom for-
eldrar hans Anna Sigríður Finn-
bogadóttir húsfreyja og Jens P.
Jensen, skipstjóri og útgerðarmaður,
sem bæði em látin.
Sex ára gamall fluttist hann til
Fáskrúðsfjarðar og ólst þar upp hjá
fósturforeldrum sínum, sem voru
Þóra Jónsdóttir húsfreyja og
Margeir Þórormsson póstmeistari,
sem einnig em bæði látin.
Jens Pétur lauk gagnfræðaprófi
ffá Lundi í Öxarfírði 1967 og prófi
frá Samvinnuskólanum í Bifröst
1971. Hann stundaði með námi
almenna verkamannavinnu og sjó-
mannsstörf, bankastörf og versl-
unarstörf til 1978. Frá maímánuði
1978 var hann gjaldkeri hjá
Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga og
Hraðfrystihúsi Fáskrúðsfjarðar hf.
Frá 1981 þar til í apríl 1994 var
hann skrifstofustjóri hjá sömu
fyrirtækjum og sat í stjóm þeirra í
nokkur ár. Þá starfaði hann í
Svíþjóð og Danmörku um skeið.
Loks réðst hann sem skrifstofústjóri
hjá Búðahreppi í maí 1997 og hefúr
gegnt því starfi uns hann var ráðinn
sveitarstjóri.
Jens Pétur hefúr tekið virkan þátt
í félagsstörfum ýmiss konar á
Fáskrúðsfírði, verið formaður og
gjaldkeri ungmennafélagsins
Leiknis, setið í stjóm leikfélagsins á
staðnum og tekið þátt í kórstarfi.
Hann var kosinn fyrsti varafull-
trúi af F-lista í hreppsnefnd
Búðahrepps kjörtímabilið 1990-
1994 og starfaði í hreppsnefndinni
meira og minna það kjörtímabil.
Eiginkona Jens Péturs er
Kristjana Guðlaugsdóttir, starfs-
maður á leikskóla. Þau eiga fjögur
böm.
255