Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 0. N Ó V E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 264. tölublað 99. árgangur
JÓLAGJAFAHANDBÓK
VIÐSKIPTABLAÐ
FINNUR.IS
THEÓDÓR LEIKARI
JÚLÍUSSON SAFNAR
VERÐLAUNUM
ELDFJALL VÍÐA UM HEIM 40
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
Hann er búinn
Toyota Touch kerfinu
með
snertiskjá
Erum á Toyota á Íslandi
TOYOTATOUCH& GO
Nýr Yaris
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/T
O
Y
56
74
5
11
/1
1
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Lítið sem ekkert eftirlit er með gæð-
um og innihaldi máltíða sem grunn-
skólanemendum er boðið upp á.
Samkvæmt grunnskólalögum eiga
nemendur að eiga kost á málsverði á
skólatíma í samræmi við opinber
manneldismarkmið.
Eina eftirlitið virðist vera í hönd-
um heilbrigðiseftirlits sveitarfélag-
anna, sem fyrst og fremst hefur eft-
irlit með þrifum og geymslu
matvælanna. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Reykjavíkurborg hafa all-
ar skólamáltíðir þar verið fram-
reiddar samkvæmt ráðleggingum
frá embætti Landlæknis, en tals-
maður embættisins segir að það hafi
ekki eftirlit með því hvað sé á mat-
seðlum grunnskólanna.
Þrjár reykvískar mæður grunn-
skólabarna gerðu alvarlegar at-
hugasemdir við skólamáltíðir í
grunnskólum Reykjavíkur á síðasta
vetri. Meðal þess sem þeim þótti
ábótavant er skortur á eftirliti. Ein
þeirra, Margrét Gylfadóttir, segir að
þeim hafi verið boðið á nokkra fundi
með borgaryfirvöldum, en fátt hafi
breyst í þessum efnum.
Innkaup á matvælum fyrir mötu-
neyti grunnskóla borgarinnar eru
samræmd, sem felur í sér að ein-
ungis má versla við tiltekna birgja.
Að mati Margrétar er það hluti
vandans, matreiðslumenn í skólum
hafi því ekki tök á að elda annars
konar mat, þrátt fyrir að þeir vildu
það gjarnan. »9
Matur án eftirlits
Ekkert opinbert
eftirlit er með inni-
haldi skólamáltíða
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Skólamáltíðir Lítið eftirlit er með
innihaldi þeirra og gæðum.
Þessar 9-12 ára gömlu stúlkur í KFUM & K voru
önnum kafnar í gær við að pakka „jólum í skó-
kassa“ vestur á Aflagranda í Reykjavík. KFUM & K
efndu nú til verkefnisins áttunda árið í röð. Fólk
skreytir skókassa með jólapappír og setur í hann
gjafir t.d. ritföng, föt, leikföng, hreinlætisvörur og
sælgæti. Kassinn er svo merktur eftir því hvort
innihaldið er ætlað dreng eða stúlku og á hvaða ald-
ursbili. Gjöfunum verður dreift til þurfandi barna í
Úkraínu en þar ríkir mikil fátækt. »14
Morgunblaðið/Golli
Jólagjafir leggja í langferð
„Jól í skókassa“ áttunda árið í röð
Páll Halldórsson, stjórnarformaður Lífeyr-
issjóðs starfsmanna ríkisins (LSR), segir að
verði ekki tekið á vanda A-deildar sjóðsins
muni staða hennar bara versna. Hann segir
að eina lausnin sé að ríkið hækki iðgjaldið í
samræmi við ákvæði laga um sjóðinn. Sam-
kvæmt mati tryggingastærðfræðings er 47
milljarða munur á eignum og framtíðar-
skuldbindingum A-deildar. Ef jafna á þenn-
an mun þarf að
hækka iðgjaldið
um 4%. Það
myndi kosta rík-
issjóð yfir 5
milljarða á ári.
ASÍ og SA
gerðu sam-
komulag við
gerð síðustu
kjarasamninga
um að lífeyr-
iskjör allra laun-
þega yrðu jöfn-
uð á árunum
2014 til 2021, en
samkomulagið
byggðist á þeirri
forsendu að ið-
gjaldið sem ríkið
greiðir vegna sinna starfsmanna sé 11,5%.
Það samkomulag er í uppnámi ef ríkið
hækkar iðgjald í LSR í 15,5%. Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ, segir að félagar í al-
mennu lífeyrissjóðunum hafi tekið á sig
skerðingu á síðustu árum vegna hrunsins.
Það gangi ekki að þeir þurfi líka að greiða
það áfall sem LSR varð fyrir vegna hruns-
ins. Lífeyrisréttindi í LSR eru ríkistryggð.
Fjármálaráðherra hefur lagt fram frum-
varp á Alþingi sem heimilar LSR að hafa
allt að 15% mun á réttindum og eignum.
Páll segir að með þessu sé bara verið að
fresta vandanum. egol@mbl.is »6
Vandi
LSR að
aukast
Yfir 400 milljarða
vantar inn í LSR
Mikill halli
» Skuldbindingar
B-deildar LSR eru
513 milljarðar, en
eignir nema 187
milljörðum.
» Munur á eignum
og skuldbindingum
A-deildar er 47
milljarðar.
» Munur á eignum
og skuldum Lífeyr-
issjóðs hjúkr-
unarfræðinga er 39
milljarðar.
Green Lofoten, systurskip flutn-
ingaskipsins Ölmu sem missti stýrið
í Hornafjarðarósi aðfaranótt laug-
ardags, kom til Fáskrúðsfjarðar í
gærkvöldi. Umskipa á farminum úr
Ölmu og gæti verkið tekið 4-5 daga
að mati Garðars Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra Nesskipa, sem
annast umboð fyrir útgerð Ölmu.
Garðar sagði að Green Lofoten
hefði ekki verið langt frá og auð-
sótt mál að fá skipið til flutning-
anna. Ekkert liggur fyrir um hvort
farið verður fram á sjópróf vegna
óhappsins. Stýri Ölmu er ófundið
enda hefur ekki viðrað vel til leitar.
Krafa til tryggingar björgunar-
launum var lögð fram í gær, að
sögn Garðars. gudni@mbl.is
Systurskip Ölmu
komið til hjálpar
Alma Skipið í Fáskrúðsfjarðarhöfn.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Þeir sem
keppa
við Skýrr á
upplýsinga-
tæknimarkaði
eru afar gagnrýnir á framgöngu
Skýrr á markaði og segja nánast
vonlaust að keppa við fyrirtækið,
sem ástundi undirboð. Skýrr hafi
svo sterka stöðu á markaði í skjóli
þeirra eignatengsla sem fyrirtækið
hefur við Framtakssjóð og Lands-
bankann. Þetta kemur fram í
fréttaskýringu í Viðskiptablaði
Morgunblaðsins í dag.
Spenna á milli Skýrr
og keppinauta