Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
Eplasafi
89kr
...opið í 20 ár
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Útför Eiríks Guðnasonar, fyrrverandi seðla-
bankastjóra, var gerð frá Hallgrímskirkju í gær.
Eiríkur starfaði við Seðlabankann allt frá árinu
1969. Þar gegndi hann stöðu forstöðumanns pen-
ingamáladeildar, aðalhagfræðings og aðstoð-
arbankastjóra áður en hann tók við starfi seðla-
bankastjóra árið 1994. Gegndi hann því starfi til
ársins 2009.
Séra Sigurður Arnarson jarðsöng og Árnes-
ingakórinn í Reykjavík söng við athöfnina.
Líkmenn voru, frá vinstri, þeir Jón Sigurðs-
son, Guðni Kolbeinsson, Ingvar A. Sigfússon,
Ágúst Ágústsson, Björn Ólafur Hallgrímsson,
Sveinn Erling Sigurðsson, Gestur Ólafur Karls-
son og Davíð Oddsson.
Eiríkur Guðnason borinn til grafar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Húsafriðunarnefnd hefur ákveðið að
skyndifriða Skálholtskirkju, Skál-
holtsskóla og nánasta umhverfi. Í
kjölfar ákvörðunar nefndarinnar
voru framkvæmdir við endurbygg-
ingu Þorláksbúðar stöðvaðar. Þor-
láksbúðarfélagið hóf í fyrradag að
setja upp grind inni í tóftinni. Búið er
að tjalda yfir hana.
Húsafriðunarnefnd kynnti
mennta- og menningarmálaráðherra
ákvörðun sína í gær, en ráðherra
tekur endanlega ákvörðun um friðun
húsa sem nefndin gerir tillögu um.
Nikulás Úlfar Másson, forstöðu-
maður nefndarinnar, segir að sam-
kvæmt mati nefndarinnar séu kirkj-
an og skólinn meðal vönduðustu
bygginga 20. aldar á Íslandi. „Við
teljum að þessar byggingar í Skál-
holti myndi eitt fegursta rými í nú-
tímabyggingarlist á landinu, þ.e.
manngert rými. Þegar skólinn er
hannaður, þá er hann hannaður með
miklu tilliti til kirkjunnar. Þarna er
gífurlega fallegt samtal á milli sem
við teljum að bygging þessa húss
[Þorláksbúðar] á þessum stað komi
til með að rjúfa. Við teljum að það sé
það mikið í húfi þarna að þetta beri
að friða,“ segir Nikulás. Skyndifrið-
un gildir í tvær vikur en innan þess
tíma þarf ráðherra að taka endan-
lega ákvörðun. »8
Kirkja og skóli á Skál-
holtsstað friðuð í skyndi
Morgunblaðið/RAX
Skálholtsstaður Húsafriðunarnefnd hefur farið fram á skyndifriðun.
Framkvæmdir við Þorláksbúð voru hafnar á ný en hafa nú
verið stöðvaðar Húsafriðunarnefnd ákvað skyndifriðun
Skip Hafrannsóknastofnunarinnar
voru enn við bryggju í gær vegna
verkfalls undirmanna, einnig er
ósamið við skipstjórnarmenn og vél-
stjóra á skipunum.
Engir nýir fundir höfðu verið boð-
aðir vegna kjaradeilu Sjómanna-
félags Íslands, vegna undirmanna á
skipum Hafrannsóknastofnunar-
innar, við samninganefnd ríkisins
(SNR), að sögn Jónasar Garð-
arssonar, formanns samninga-
nefndar sjómanna, síðdegis í gær.
Síðast var fundað í deilunni fyrir
rúmri viku eða 2. nóvember. Kjara-
deilunni var vísað til ríkissáttasemj-
ara 7. september sl. og hófst verkfall
undirmanna á hafrannsóknaskipum
28. september.
Kjaradeilu Félags skipstjórn-
armanna (FS) og SNR vegna yf-
irmanna á skipum Hafrannsókna-
stofnunarinnar var vísað til
ríkissáttasemjara 26. september.
Síðast var fundað 3. nóvember. Guð-
jón Ármann Einarsson, fram-
kvæmdastjóri FS, sagði að félagið
hefði ekki boðað verkfall. Hann taldi
ólíklegt að yfirmenn gerðu kjara-
samning á meðan undirmenn væru í
verkfalli. Einnig er ósamið við vél-
stjóra á hafrannsóknaskipunum.
gudni@mbl.is
Hæga-
gangur
hjá Hafró
Fundur ekki
boðaður í kjaradeilu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafróverkfall Undirmenn á skip-
unum fóru í verkfall 28. september.
Loðnuskip HB Granda, Lundey NS
14 og Ingunn AK 150, voru við
loðnuleit innan grænlensku lögsög-
unnar um 150 sjómílur norður af
Horni í gærkvöldi. Skammt frá var
grænlenska loðnuskipið Erika.
Bræla hefur verið á þessum slóð-
um frá því íslensku skipin komu
þangað, að sögn Arnþórs Hjörleifs-
sonar, skipstjóra á Lundey, í gær-
kvöldi.
Arnþór sagði að Ingunn AK hefði
kastað einu sinni í gærmorgun en
ekkert komið út úr því. Þeir höfðu þó
séð einhverjar lóðningar á smá
bletti. „Það er bara erfitt að átta sig
á þessu þegar veðrið lætur svona,“
sagði Arnþór. Hann hafði ekki trú á
að veðrið batnaði næsta sólarhring-
inn. gudni@mbl.is
Bræla á
loðnumið-
unum
Ljósmynd/HB Grandi
Lundey NS Tvö íslensk skip voru á
loðnu í grænlensku lögsögunni.
Útgjöld rík-
issjóðs hækka
um tæplega 2,6
milljarða og
tekjur lækka um
rúmlega tvo
milljarða frá
fjárlögum yf-
irstandandi árs
samkvæmt
breytingartillögum meirihluta fjár-
laganefndar við fjáraukalaga-
frumvarp ársins.
Fjárlaganefnd afgreiddi frum-
varpið til fjáraukalaga til annarrar
umræðu á Alþingi í gær, samkvæmt
upplýsingum Sigríðar Ingibjargar
Ingadóttur, formanns fjár-
laganefndar.
Meirihluti nefndarinnar sam-
þykkti að veita fjármálaráðherra
lánsheimild vegna Vaðlaheiðar-
ganga upp á einn milljarð. Í nefnd-
aráliti segir að forsendur Alþingis
vegna ákvörðunar um að ráðist
verði í gerð Vaðlaheiðarganga hafi
verið að framkvæmdin standi undir
sér að öllu leyti.
Ríkisútgjöld hækka
um 2,6 milljarða
Matthías Á. Mathiesen,
fyrrverandi ráðherra
og alþingismaður, and-
aðist í gær á Hrafnistu
í Hafnarfirði, áttræður
að aldri.
Matthías fæddist í
Hafnarfirði 6. ágúst
1931 og var sonur
hjónanna Árna Matt-
híasar Mathiesen,
lyfjafræðings og kaup-
manns, og konu hans,
Svövu E. Mathiesen
húsmóður.
Matthías lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1951 og lög-
fræðiprófi frá Háskóla Íslands 1957.
Hann fékk réttindi héraðsdóms-
lögmanns 1961 og hæstaréttarlög-
manns 1967. Matthías var spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar
1958-67, rak málflutn-
ingsskrifstofu 1967-74
og svo frá 1991.
Matthías gegndi
fjölmörgum trún-
aðarstörfum um ævina.
Hann var kjörinn á Al-
þingi árið 1959 fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og
var þingmaður Reyk-
nesinga samfleytt til
1991. Hann var fjár-
málaráðherra 1974-78,
viðskiptaráðherra
1983-85, utanrík-
isráðherra 1986-87 og
samgönguráðherra
1987-88.
Eftirlifandi eiginkona Matthíasar
er Sigrún Þ. Mathiesen. Þau eign-
uðust þrjú börn; Árna Matthías,
Halldóru og Þorgils Óttar, sem öll
lifa föður sinn.
Andlát
Matthías Á. Mathiesen