Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011 ✝ Sigríður Kjar-an fæddist í Reykjavík 9. febr- úar 1919. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Droplaug- arstöðum 4. nóv- ember 2011. Foreldrar Sig- ríðar voru hjónin Soffía Kjaran hús- móðir (f. Siemsen), f. 23. desember 1891, d. 28. desember 1968, og Magnús Kjaran stórkaupmaður (f. Tómasson), f. 19. apríl 1890, d. 17. apríl 1962. Systkini Sig- ríðar voru Þórunn húsmóðir, gift Pétri Ólafssyni hagfræð- ingi, Birgir alþingismaður, kvæntur Sveinbjörgu (f. Blön- dal), og Eyþór. Systkinin og makar þeirra eru nú öll látin. Sigríður giftist Sigurjóni Sig- urðssyni, síðar lögreglustjóra í Reykjavík, 31. júlí 1942 en hann lést árið 2004. Foreldrar hans voru Sigurður Björnsson brunamálastjóri frá Höfnum á Skaga og Snjólaug Sigurjóns- dóttir húsmóðir frá Laxamýri. Börn Sigríðar og Sigurjóns eru: 1) Soffía, lífeindafræðingur og seta Íslands, f. 28.12. 1955, kvæntur dr. Ástu Bjarnadóttur forstöðumanni; þeirra börn eru Ólafur Kjaran, Soffía Svanhvít og Gunnar Sigurjón en fyrir átti Árni Snjólaugu með Lilju Valdimarsdóttur hornleikara. Barnabarnabörn Sigríðar eru 16. Sigríður starfaði á sínum yngri árum við heildsölufyr- irtæki föður síns og var síðar aðstoðarmaður á röntgendeild Landspítalans. Sem húsmóðir stóð hún fyrir stóru heimili en er um hægðist á þeim vettvangi gat hún sinnt listinni af meiri krafti en áður. Sigríður sótti námskeið hjá Ásmundi Sveins- syni í höggmyndalist og stund- aði síðar nám í Myndlistaskóla Reykjavíkur og sótti námskeið í höggmyndalist og leir- munagerð í Noregi og á Spáni. Eftir Sigríði liggja margir fagr- ir listgripir, glerverk, högg- myndir og brúður. Hún tók þátt í nokkrum sýningum og á sýn- ingu hennar, Íslenskum þjóð- lífsmyndum, í Þjóðminjasafni Íslands veturinn 1990-91 mátti sjá brúður hennar við hefð- bundin störf í borg og sveit. Sigríður verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, 10. nóvember 2011, og hefst at- höfnin klukkan 15. kennari, f. 3.10. 1944, gift dr. Stef- áni J. Helgasyni yf- irlækni; þeirra börn eru Sigurjón Örn, Ragnheiður Hrönn og Sigríður Helga. 2) Sigurður, hæstarétt- arlögmaður í Reykjavík, f. 24.3. 1946, kvæntur Hönnu Hjördísi Jónsdóttur, BA í frönsku og sögu; þeirra börn eru Tómas, Soffía Elín og Jóhann. 3) Magn- ús Kjaran, arkitekt hjá Fram- kvæmdasýslu ríkisins, f. 3.5. 1947, kvæntur Þórunni Benja- mínsdóttur kennara; þeirra börn eru Kristbjörg, Árni og Sigríður. 4) Birgir Björn, fjár- málastjóri Reykjavíkurborgar, f. 20.2. 1949, kvæntur dr. Ingi- leif Jónsdóttur prófessor; þeirra synir eru Magnús og Árni. 5) Jóhann, forstjóri Haf- rannsóknastofnunarinnar, f. 25.10. 1952, kvæntur Helgu Bragadóttur arkitekt; þeirra börn eru Fríða Sigríður, Soffía Dóra og Sigurjón. 6) Dr. Árni, skrifstofustjóri hjá embætti for- Falleg kona með snotra flauelshúfu í gættinni á sunnu- degi með járnpott fullan af góm- sætum kjúklingapottrétti. Þann- ig sá ég Sigríði fyrst, fyrir rúmum tuttugu árum á Öldugötu 2. Það lýsir Sigríði vel að hún skyldi koma færandi hendi með mat til okkar sem vorum að mála íbúðina. Þannig var hún, alltaf svo umhyggjusöm og hlý og hugsaði um þarfir annarra áður en þeir gerðu sér grein fyrir þeim sjálfir. Myndirnar sem koma í hugann eru sveipaðar ljúfum ljóma; Sigríður að föndra úr kart- öflum með börnunum, Sigríður með skuplu við leirbrennsluofn- inn sinn í þvottahúsinu, Sigríður á ferðalagi með snoturt útbúið nesti og tauservíettur, Sigríður á kafi í garni, vírum og efnisbútum í vinnuherberginu sínu, Sigríður með nýfætt barnabarn í fanginu, Sigríður glæsileg stórfjölskyldu- móðir á gamlárskvöld, Sigríður í stólnum sínum í kontórnum að spyrja frétta. Framtakssemi og einlægur áhugi á öllu mögulegu voru einkennandi fyrir Sigríði; það var alltaf eitthvað skemmti- legt í gangi hjá henni sjálfri og hún hafði líka brennandi áhuga á því sem aðrir voru að gera. Þau Sigurjón voru einstaklega sam- rýnd og ástrík hjón, hún saknaði hans auðvitað síðustu sjö árin þótt hún bæri sig vel. Það er huggun á þessari kveðjustundu hvað Sigríður átti gott líf og hvað hún var sátt við allt og alla. Efst í huga mér er þakklæti, fyrir að hafa átt hana sem tengdamóður, fyrir minningarnar sem hún skil- ur eftir og fyrir þá fögru fyrir- mynd sem hún var og verður áfram. Ásta Bjarnadóttir. Sigríður tengdamóðir mín er öll. Hugurinn reikar til baka er fundum okkar bar fyrst saman fyrir um fjórum áratugum. Tók hún mér af slíkri hlýju að aldrei kólnaði. Ég hafði séð henni bregða fyrir með manni sínum Sigurjóni lögreglustjóra í Reykjavík og tekið eftir, enda bæði glæsileg svo af bar. En fyrstu kynni okkar voru er ég kom í heimsókn til Jóhanns á rausnarheimili Sigríðar og Sigur- jóns og fjölskyldu á Ægisíðu 58. Í þá daga sinnti Sigurjón um- fangsmiklu, erilsömu starfi og hafði gert um áratugaskeið þegar börnin sex uxu úr grasi. Hvíldi þá heimilisrekstur og barnauppeldi aðallega á herðum Sigríðar. Ey- þór yngri bróðir hennar var líka daglegur gestur og undir vernd- arvæng systur sinnar alla tíð. Þessu hlutverki sinnti hún af dugnaði og kærleika eins og öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Sigríður bjó yfir persónutöfr- um, var örlát á sjálfa sig, jákvæð og glaðvær og innilegur þátttak- andi í lífi og starfi eiginmanns, barna og barnabarna. Börnum sýndi hún virðingu jafnt og full- orðnum og fór aldrei í mann- greinarálit. Hún hafði lag á að gera hversdaglega hluti að upp- byggilegum leik og í henni bjó rík sköpunarþrá. Þrátt fyrir ríkar annir og daglegt amstur kunni Sigríður þó þá list að halda loga í eigin neista og þegar um hægðist heimavið gafst Sigríði tími til að sinna listsköpun og öðrum hugð- arefnum. Síðasta árið sem við Jóhann vorum í námi í Ósló dreif Sigríður sig þangað í myndlistarnám í nokkra mánuði. Rúmlega sextug að aldri bjó hún á stúdentagarði og kunni því vel. Og hrifnæm og áræðin vílaði tengdamóðir mín fátt fyrir sér. Þegar fyrsta barn okkar Jóhanns fæddist var hávet- ur og mikil ófærð. Sigríður lét það ekki aftra sér frá því að heilsa upp á okkur mæðgur, tók fram norsku gönguskíðin og gekk í ka- faldsbyl vestan af Ægisíðu á fæð- ingardeild Landspítalans. Börnin okkar þrjú voru svo lánsöm að njóta samvista við ömmu Sigríði og afa Sigurjón sem nutu líðandi stundar með krökkunum um leið og létt var undir með foreldrum í erli dags- ins. Kríuvarp og kartöflutekja á Álftanesi, þar sem þau áttu lítið afdrep, lokkaði. Sigríður ræktaði það sem vaxið gat í íslenskri sum- arsól og unni náttúru lands síns mjög og þekkti vel. Tengdafor- eldrar mínir gerðu ekki einungis víðreist um Ísland heldur lögðust einnig í ferðalög um Evrópu og þegar við fjölskyldan dvöldum um skeið í Frakklandi heimsóttu þau okkur auðvitað. Sigurjón ób- anginn við stýrið og Sigríður vís- aði veginn með kortinu – þannig voru þau, svo skemmtilega ólík, en samvöld öllum stundum við sín fjölbreyttu viðfangsefni. Sigríður var borinn og barnfæddur Reyk- víkingur. Henni þótti vænt um borgina sína og oft ræddum við þetta sameiginlega hugðarefni okkar. Sigríður naut langra lífdaga. Hún hélt fullri reisn fram í and- látið. Við sem áttum því láni að fagna að eiga hana að, kveðjum hana í dag með söknuði og trega. Ég þakka Sigríði tengdamóður minni þann kærleika sem hún sýndi mér og mínum alla tíð, svo aldrei bar skugga á og bið henni blessunar á nýjum vegum. Helga Bragadóttir. Mér er í fersku minni þegar ég hitti Sigríði tengdamóður mína fyrst. Hún bauð mig velkoma á fallega heimilið þeirra Sigurjóns á Ægisíðu 58 og þau hjónin tóku mér afar vel. Það var blómskreyt- ing á stofuborðinu, sem ég hélt að væri í tilefni heimsóknar minnar. Ég komst fljótt að því að alltaf stóðu blóm úr garðinum í lítilli silfurskál á borðinu, ein bóndarós eða risavalmúi, umkringd maríu- stakk eða sóleyjum, hvort sem voru gestir eða þau Sigríður og Sigurjón ein. Sigríður stökk út í garð og kom inn með radísur eða graslauk, saxaði og stráði yfir kæfuna, síldina eða annað góð- gæti sem hún hafði útbúið. Sig- ríður fegraði allt í kringum sig og skapaði stemningu. Hún var afar gestrisin og allt virtist hún gera fyrirhafnarlaust, elda fyrir stóra fjölskyldu, rækta garðinn, undir- búa veislu, og alltaf hafði hún tíma fyrir börn og barnabörn og fyrir Eyþór, sem hún annaðist af mikilli hlýju. Við Birgir Björn vorum mikið á Ægisíðunni sumarið ’75 og ég kynntist Sigríði. Hún var glæsi- leg kona, greind og skemmtileg, en umfram allt gegnum-góð. Hún var fordómalaus, einlæg og talaði beint frá hjartanu. Ég kvaddi hana er ég fór til náms í London um haustið, hún leit snöggt á mig og sagði: „Mikið er trúlofunar- hálsmenið fallegt á þér.“ Þá vissi ég að henni leist jafnvel á mig sem tilvonandi tengdadóttur og mér á hana sem tengdamóður. Vinátta hennar var mér dýrmæt. Ég naut þess að fylgjast með Sigríði í þvottahúsinu þar sem hún renndi úr leir og bjó til skálar og í litla vinnuherberginu, þar sem hún skar í tré, bjó til brúður með andlit og hendur úr leir, saumaði á þær föt og smíðaði fyr- ir þær áhöld. Á kvöldin saumaði hún á þær skó og prjónaði peysur og sjöl úr eingirni, en þess á milli lopapeysur á börn og barnabörn. Sigríður var mikil listakona. Heimili þeirra Sigurjóns skartaði mörgum fögrum munum eftir hana, og öllu fólkinu sínu gaf hún fallegar höggmyndir, leirföt og glerskálar sem minna okkur á hana. Á fyrstu búskaparárunum átt- um við Biggi stórkostlega viku í París með Sigríði og Sigurjóni, sem sýndu okkur dásemdir borg- arinnar. Sigríður talaði frönsku og notaði bendingar ef hana vant- aði orð. Hún hafði orð fyrir okkur á spænsku þegar þau Sigurjón hittu okkur og strákana okkar Magnús og Árna á Mallorka að lokinni dvöl á Spáni þar sem Sig- ríður var í listaskóla. Hún dvaldi hjá okkur Bigga á Ítalíu vorið 2005 og við nutum þess öll. Sig- ríður og Sigurjón voru góðir ferðafélagar og miklir náttúru- unnendur. Við ferðuðumst saman um landið okkar, tjölduðum á miðjum Markarfljótsaurum seint að kvöldi og Sigríður reiddi fram smurbrauð úr töskunni góðu með smurbrauðshillunum. Ferðin í Aðaldalinn og Náttfaravíkur er ógleymanleg. Þegar synir okkar fóru með afa og ömmu í útilegur fengu þeir bækur til að skrifa í nöfn allra blóma og fugla sem þeir sáu, og amma bannaði þeim að lesa Andrés önd í aftursætinu, þeir áttu að fylgjast með því sem fyrir augu bar. Sigríður var einstök kona. Ég kveð hana með söknuði, virðingu og þökk fyrir vináttuna og allt sem hún gaf mér. Ingileif. Þar sem ég sit og skrifa þessi orð verður mér hugsað til allra þeirra góðu stunda sem ég átti með ömmu minni og afa á Ægi síðunni og get ég ekki annað en brosað gegnum tárin. Það var í raun eins og töfrum líkast fyrir krakka að koma í heimsókn til þeirra á alla þá undraverðu staði sem þar var að finna í stóra fallega húsinu við Ægisíðu. Staðir eins og fína stof- an þar sem við eyddum löngum stundum í að skoða steinasafnið, kontórinn með arninum þar sem við sátum og spjölluðum, skoðuð- um gömul myndaalbúm eða lás- um Andrésblöð á íslensku, já eða á dönsku. Vinnuherbergið henn- ar ömmu þar sem sköpunargáfa hennar reis sem hæst, stiginn þar sem barnabörnunum var safnað saman fyrir myndatökur, stiginn sem varð alltaf minni og minni eftir því sem við krakkarnir stækkuðum og fleiri barnabörn bættust í hópinn. Ekki má gleyma kjallaranum með leir- og glervinnuaðstöðu ömmu. Það var yndislegt að koma í heimsókn til afa og ömmu. Þau voru alla tíð svo ástfangin, ham- ingjusöm og samstiga í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur og um leið góðar fyrirmyndir sem við krakkarnir litum öll upp til. Þrátt fyrir að þau ættu sex börn og fjöldann allan af barnabörnum var okkur öllum sinnt af alúð. Þau fóru með okkur í tjaldtúra þar sem við fengum ógleymanlega kennslu frá ömmu í blómaskoðun og þeim báðum í fuglaskoðun. Við tíndum ógrynni af plöntum og amma vissi alltaf hvað þær hétu. Árlega var farið í kartöfluupp- skeru á Álftanesi þar sem við skemmtum okkur konunglega, ekki síst þegar tekin var pása og amma kom með teppi sem við sát- um á og gaf okkur prins póló og kók. Amma var listakokkur og hélt hverja stórveisluna á fætur annarri eins og ekkert væri. Allt- af var eitthvað nýtt að finna á borðum, en lummurnar og kinda- kæfan báru af. Amma var lista- kona af guðs náð. Þjóðlífsbrúður hennar sem sýndu líf Íslendinga í daglegum störfum fyrr á árum, glerverk, leirmunir, að ógleymd- um brúðunum sem hún gaf öllum stelpunum í fjölskyldunni eru bara nokkrir af þeim fögru hlut- um sem hún skilur eftir sig. Takk, amma mín, fyrir að hafa verið eins yndisleg þú varst og takk fyrir að hafa kennt mér svo margt, bæði sem barni og sem fullorðinni manneskju. Ég elska þig og sakna þín. Þín dótturdóttir, Sigríður. Sigríður tengdamóðir mín er látin. Það kom mér ekki á óvart að Siggi ætti jafn glæsilega móður og Sigríði. Hún var dökk yfirlit- um, suðræn í útliti, orðhnyttin og fljót til svars, leiftrandi persónu- leiki og jafnan hrókur alls fagn- aðar á góðum stundum. Hár og smitandi hlátur fylgdi henni alla tíð. Frá fyrsta degi tók Sigríður mér opnum örmum. Í dag eru 40 ár liðin og margs er að minnast. Fyrstu þrjú árin vorum við Siggi, ungu hjónin, í kjallaranum á Æg- isíðu 58 og þar kynntist ég náið daglegu lífi tengdaforeldra minna. Mér skildist fljótt að hús- freyjan á efri hæðinni átti engan sinn líka að atorku til allra verka. Yfirferðin var ótrúleg hvort held- ur var matseld, veisluhald, hann- yrðir, garðyrkja eða listsköpun. Allt lék henni í hendi. Nýupptek- ið grænmeti á borðum og afskor- in blóm í vösum beint úr garð- inum alla daga sumarlangt. Fallega bóndarósin blómstraði fyrir framan stofugluggann minn. Ótal skemmtilegar minningar koma upp í hugann. Ógleyman- legt er þegar við vorum saman á Ítalíu. Þið Sigurjón voruð alvön að ferðast akandi á eigin vegum um alla Evrópu sem þið þekktuð orðið eins og lófana ykkar. Sig- urjón fór þess vegna létt með það nær áttræður að aldri að aka eig- in bíl báðar leiðir frá Lúxemborg til Mílanó. Þannig ferðuðumst við saman hvort á sínum bílnum vítt og breitt um Langbarðaland í heila viku. Fyrir réttum tveimur áratug- um fluttuð þið Sigurjón í Hauka- nesið á meðan við Siggi fórum í langferð til útlanda. Þú hélst heimili af þinni alkunnu röggsemi fyrir krakkana okkar þrjá í heilan mánuð. Afi sá um allan akstur og amma eldaði allan tímann svo góðan mat sögðu þau. Börnin okkar geyma ómetanlegar minn- ingar frá þeim tíma. Þarna fengu þau tækifæri til að spyrja afa og ömmu spjörunum úr um liðnar stundir í lífi þeirra. Elsku tengdamóðir, ég þakka þér fyrir öll árin sem við áttum þig að. Þótt þú sért nú farin frá okkur eigum við áfram allar góðu minningarn- ar. Hanna Hjördís (Anný). Elsku amma okkar Sigríður er látin eftir langa og viðburðaríka ævi. Það er tæpast hægt að minn- ast ömmu Sigríðar án þess að nefna afa heitinn Sigurjón. Þau voru einstaklega samhent hjón og það var ömmu óskaplegur missir þegar afi kvaddi fyrir sjö árum síðan. Amma Sigríður var tilfinn- ingarík og hrifnæm kona. Þegar eitthvað vakti áhuga hennar eða kátínu klappaði hún gjarnan saman lófunum og brosti fagn- andi. Jafnvel undir það síðasta hlustaði amma á frásagnir okkar og samgladdist innilega. Amma Sigríður var líka mikil stemn- ingskona, hún kunni að skemmta sér og gleðja aðra og tók ávallt á móti okkur með opinn faðminn. Það var sannarlega engin logn- molla í kringum hana ömmu. Hún var alltaf með hendur og huga full af verkefnum enda mörgu að sinna í stórri fjölskyldu og þau afi áhugasöm um svo ótalmargt. Hún var orkumikil og miklaði hlutina ekki fyrir sér. Hún lét til dæmis snjóþungann ekki stöðva sig í því að heimsækja nýfætt barnabarn á fæðingardeildina heldur tók fram gönguskíðin og hélt ótrauð af stað sem leið lá á Landspítalann. Amma Sigríður var listakona góð og þegar um fór að hægjast hjá þeim afa sinnti hún list sinni af mikilli elju. En listhneigð ömmu skein líka í gegn í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur, hvort sem það var í leik með barnabörnunum, undirbún- ingi fyrir stórhátíðir eða matar- gerð í eldhúsinu. Við systkinin erum svo lánsöm að hafa notið nærveru bæði föð- ur- og móðurforeldra okkar lengi og gefist tækifæri til að kynnast þeim vel. Sem krakkar vorum við mikið á Ægisíðunni enda voru amma og afi ætíð boðin og búin til að hlaupa undir bagga með for- eldrum okkar. Á Ægisíðu var alltaf nóg um að vera og mikið sport að heimsækja ömmu og afa. Það varð allt svo skemmtilegt í meðförum ömmu og það var svo notalegt að sitja í rólegheitum og spjalla við afa Sigurjón. Þau gerðu sér bæði far um að leyfa okkur að taka þátt í daglegum störfum og finna upp á einhverju skemmtilegu til að gera saman. Á kvöldin var gjarnan setið við borðstofuborðið og tekið í spil. Stigakeppni í Ólsen Ólsen eða Veiðimanni varð oft fyrir valinu eða Svarti-Pétur þar sem nebb- inn á þeim sem ekki hafði heppn- ina með sér var litaður svartur með kolum. Á Ægisíðu bjuggum við líka til kartöflukarla, tíndum fallegar skeljar og steina og föndruðum áramótahatta, að ógleymdri ævintýraleitinni að földum hlut. Stundum fékk mað- ur að fylgjast með ömmu að störf- um við brúðugerð í vinnuher- berginu uppi á lofti eða í kjallaranum þar sem hún brenndi fallegu leir- og glermunina sína. Gaman var að fá að hjálpa til í eldhúsinu þar sem hún reiddi fram dýrindis kræsingar – amma var nefnilega ótrúlega lunkin við að finna til verk sem við réðum við og gátum þannig orðið að liði. Nú er komið að kveðjustund og við systkinin minnumst ynd- islegrar ömmu með miklu þakk- læti. Blessuð sé minning ömmu Sigríðar, stundirnar með henni og þeim afa munu fylgja okkur alla tíð. Fríða Sigríður, Soffía Dóra og Sigurjón. Nú er elsku amma Sigríður farin frá okkur til afa Sigurjóns. Amma lagði alltaf mikið upp úr því að fjölskyldan væri eining Sigríður Kjaran Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og hlýhug við andlát okkar ástkæra ÓSKARS GUÐMUNDSSONAR plötu- og ketilsmíðameistara, Hæðargarði 10, Reykjavík. Rósa Ólafsdóttir, Edda Sóley Óskarsdóttir og fjölskylda, Aðalbjörg Rós Óskarsdóttir og fjölskylda, Valdís Óskarsdóttir og fjölskylda. MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk sími 587 1960 www.mosaik.is TILBOÐSDAGAR Frí uppsetning á höfuðborgarsvæðinu og frí sending út á land á legsteinum sem pantaðir eru í nóvember

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.