Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ómar
Lífsstíll Erla Gerður Sveinsdóttir læknir segir mataræði, hreyfingu og daglegar venjur skipta máli.
ekki vera lagða á þyngd kvennanna
heldur frekar á lífsstílsbreytinguna.
Að konurnar átti sig á stöðu sinni og
hvernig þær geti komið sér af stað til
að bæta heilsu sína. Þó þurfi konur
sem eru of þungar vissulega ekki að
þyngjast meira á meðgöngu. Með
fræðslunni sé stuðlað að því að kon-
urnar fari að lifa heilbrigðara lífi og
hreyfi sig eftir góðum leiðbeiningum.
Í Heilsuborg er góð aðstaða fyrir
barnshafandi konur en svokölluð easy
line-tæki sem þar eru þarf hvorki að
stilla né læra sérstaklega á. Tækin
laga sig einfaldlega eftir hverjum ein-
staklingi þannig að ekki er hætta á að
fólk fari fram úr sjálfu sér. Þá taka
þau á öllum vöðvahópum líkamans á
stuttum tíma. Erla Gerður segir slíkt
æfingaprógramm vera eina af mögu-
legu leiðunum til að hreyfa sig en
einna mikilvægast sé að kon-
urnar velji sér hreyfingu sem þeim
finnist skemmtileg.
Hvað varðar hreyfingu á með-
göngu segir Erla Gerður að huga beri
að nokkrum atriðum. Í fyrsta lagi
þurfi að skoða í hvaða ástandi hver og
einn einstaklingur er og hvernig sé
best að byrja. Almennt þurfi að hafa í
huga að öll liðbönd verða slakari og
því verði að passa upp á grindina,
bakið og stoðkerfið. Líkamsstaðan og
beitingin skipti langmestu máli og
það kenni Anna sjúkraþjálfari meðal
annars.
Mataræðið of einhæft
Erla Gerður segir offitu hafa
aukist mjög hratt hér á landi og sem
samfélag hafi fólk sofnað á verðinum.
„Mataræði, hreyfing og dag-
legar venjur skipta máli. Að konurnar
vinni með viðhorf sín og skoði sjálfar
sig. Oft er mikil óregla á mataræði og
það er of einhæft til að líkaminn fái
alla þá næringu sem hann þarfnast.
Líkaminn er því alltaf í ójafnvægi og
markmið okkar er að koma þessu
jafnvægi á á ný til að allt verði auð-
veldara. Það vakir líka fyrir okkur að
horfa á einstaklinginn sem er að
koma í heiminn og hans vegferð. Það
er mikilvægt að barnið fái góða nær-
ingu strax í móðurkviði og að móðirin
sé meðvituð um hvað sé mikilvægt í
þeim efnum. Þetta getur dregið úr
heilsufarslegum vanda síðar meir á
ævi barnsins,“ segir Erla Gerður.
Hún segir næringarfræðsluna byggj-
ast á því sem er best þekkt í dag og
miða að því að konurnar átti sig á því
sem búi að baki ráðleggingunum.
Leyfi til að slaka á
„Við vitum að þörfin er mikil og
viljum hvetja konur til að mæta. Þær
geta síðan valið sér þá leið sem þær
vilja í framhaldinu. Ég hef engar
rannsóknir fyrir mér í þessu en hef á
tilfinningunni að í gegnum tíðina hafi
konur gefið sér leyfi til að þyngjast á
meðgöngunni og slaka á þeirri stýr-
ingu sem þær höfðu því það væri eðli-
legt ástand að fitna. En það er það
ekki og nú er orðin meiri vakning og
fræðsla í samfélaginu. Það er mik-
ilvægt því ég held að þjóðfélagið sé að
breytast þannig að þeir sem eru
hraustir og passa upp á heilsuna gera
það mjög vel en þeir sem eru komnir í
óefni með þyngdina eru að þyngjast
meira. Skilin eru því að verða meiri,“
segir Erla Gerður.
Fræðslufundirnir verða haldnir
fyrsta miðvikudag í mánuði í Heilsu-
borg og verður sá næsti haldinn 7.
desember. Þeir hefjast klukkan 14.30
og er aðgangur ókeypis en skráning
fer fram í móttöku Heilsuborgar.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
Stórt Rís
59kr
...opið í 20 ár
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs
er heldur betur dugleg að bjóða upp á
fjölbreytta menningarviðburði í Slát-
urhúsinu á Egilsstöðum. Skemmst er
að minnast vel heppnaðra tónleika
Mugison og í gær var Spáð í himin-
geyminn á Dögum myrkurs, sem inni-
hélt meðal annars stjörnuskoðun.
Í kvöld kl. 20 verður boðið upp á
Hryllingssófabíó þar sem sýnd verður
hin sígilda kvikmynd Dr. Jekyll and
Mr. Hyde, en hún er frá 1931. Nota-
legt að orna sér við meistarastykkið
og ekki kostar nema 500 krónur inn.
Á morgun föstudag kl. 20.30 verð-
ur opnun á því sem einfaldlega heitir
talnaruna dagsins: 11.11.11 en þó inn-
an sviga: (Það sem gerist í Sláturhús-
inu eftir myrkur). Þar mun Listafólk
Sláturhússins taka á móti gestum,
þau Jóna Björt, Kox, Ásdís, Íris, Dúi,
Kári, Erla, Haraldur og Lóa.
Í boði verða sýningar um myndlist,
tónlist, fatahönnun, kvikmyndalist og
ljósmyndun. Á opnuninni verður lif-
andi tónlist í höndum Slowsteps.
Sýningin stendur til 20. nóv. og vert
er að taka fram að frítt er inn.
Á laugardagskvöld kl. 21 verða fer-
ilstónleikar Dóra Pella. Þar verða
sagðar sögur, flutt tónlist og framdir
gjörningar. Og sem fyrr er frítt inn.
Framundan er girnileg tónlistar-
helgi í lok mánaðar því föstudaginn
25. nóv. verða tónleikar með djass-
sveitinni ADHD og daginn eftir, laug-
ardag 26. nóv., verða tónleikar með
sjálfri Lay Low ásamt hljómsveit.
Sláturhúsið á Egilsstöðum
Hryllingssófabíó og annað fjör
Sýning Magdalenu Mar-
grétar Kjartansdóttur,
Perlur, verður opnuð
næstkomandi laugardag
klukkan 14.00 í Menning-
armiðstöðinni Gerðu-
bergi. Sýning Magdalenu
er um konur en myndefni
hennar er skáldskapur í
bland við veruleika og
fjallar hún oftast um
kvenlíkamann á hinum
ýmsu stigum frá barn-
æsku til hinstu stundar.
Sýningarheitið vísar í rit-
ið Perlur sem gefið var út
árið 1930 en þar stendur:
„Leikfimi fyrir konur skal
vera kvenleg“ og er hug-
myndin að sýningunni
runnin frá þessum orð-
um.
Magdalena Margrét vinnur með grafískri tækni, tré- og dúkristur og hand-
þrykk á japanskan pappír. Húnlauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands 1984 og hefur sýnt í mörgum virtum söfnum og galleríum, t.d. á Norð-
urlöndum, Ungverjalandi, Kína, Bandaríkjunum og í nær öllum söfnum
hérlendis. Þá eru verk eftir hana í eigu Listasafns Íslands, Listasafns Reykja-
víkur, Listasafns Kópavogs, Hafnarborgar auk erlendra léna í Svíþjóð.
Listasýning
Konur Magdalena fjallar um kvenleikann á hinum
ýmsu stigum á sýningunni.
Leikfimi fyrir konur skal vera
kvenleg samkvæmt Perlum
Samhliða aukinni þyngd verðandi mæðra hefur tilfellum meðgöngusyk-
ursýki fjölgað til muna síðastliðin ár. Meðgöngusykursýki er áhættuþátt-
ur sem getur skaðað heilsuna ef ekki er gripið til viðeigandi meðferðar.
Þó er vel mögulegt að meðhöndla hana og margar leiðir mögulegar til
þess. Meðgöngusykursýki má til að mynda oftast meðhöndla með réttu
mataræði. Væg sykursýki á meðgöngu er yfirleitt einkennalaus og er oft-
ast greind með sykurþolsprófi.
Tilfellum fjölgar
MEÐGÖNGUSYKURSÝKI
Ljósmyndasýningin Málshættir í fókus
verður opnuð í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi næstkomandi laugardag.
Það eru félagsmenn í Fókus, félagi
áhugaljósmyndara, sem sýna verk sín
en félagið stendur reglulega fyrir ljós-
myndasýningum. Að þessu sinni er
þemað málshættir, en myndirnar á
sýningunni eiga það sammerkt að
túlka íslenska málshætti. Málshættir
eru skilgreindir sem skýr stuttorð
málsgrein, oftast ein setning, sem
skilst án samhengis. Margir þeirra
skírskota til almennt viðurkenndra
sanninda en aðrir eru einskonar spak-
mæli eða lífsspeki. Fjölmargir máls-
hættir eru okkur flestum kunnir en
aðrir eru minna þekktir. Allt er vænt
sem vel er grænt, Allt er hey í harð-
indum, Þeir fiska sem róa, Maður er
manns gaman, Kalt er kattar gamnið,
Margar hendur vinna létt verk, Fold
skal við flóði taka og Af litlu verður
músin mett eru örfá dæmi um máls-
hætti sem fangaðir eru í ljósmyndum
á sýningunni.
Sýnendur eru alls tuttugu og níu
talsins en Fókus, félag áhuga-
ljósmyndara var stofnað árið 1999.
Það er opið öllum áhugamönnum um
ljósmyndun, jafnt byrjendum sem
lengra komnum. Markmið félagsins er
að skapa vettvang fyrir félagsmenn til
að sinna ljósmyndun.
Sýningin stendur til 8. janúar 2012
og er opin virka daga kl. 11-17 og kl. 13-
16 um helgar. Hér gefst gestum tæki-
færi til að sjá málshættina okkar í
glænýju og skemmtilegu ljósi.
Ljósmyndasýning
Málshættir séðir með augum ljósmyndara á sýn-
ingu félags áhugaljósmyndara
Oscar Bjarnason
Brugðið á leik Málshátturinn Betur sjá augu en auga er skemmtilega túlkaður á þessari mynd.